Fréttablaðið - 08.08.2009, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 08.08.2009, Blaðsíða 62
42 8. ágúst 2009 LAUGARDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 PERSÓNAN LÁRÉTT 2. þrjóskur, 6. sjúkdómur, 8. erlendis, 9. sigað, 11. tveir eins, 12. bein, 14. eyðileggja, 16. rykkorn, 17. lyftist, 18. þangað til, 20. kringum, 21. hviða. LÓÐRÉTT 1. umstang, 3. óreiða, 4. tala, 5. bók, 7. stýra, 10. völlur, 13. belja, 15. sjúk- dómur, 16. í viðbót, 19. vörumerki. LAUSN LÁRÉTT: 2. þrár, 6. ms, 8. úti, 9. att, 11. tt, 12. kjúka, 14. ónýta, 16. ar, 17. rís, 18. uns, 20. um, 21. kast. LÓÐRÉTT: 1. ómak, 3. rú, 4. áttatíu, 5. rit, 7. stjórna, 10. tún, 13. kýr, 15. asmi, 16. auk, 19. ss. VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8. 1. Peter Rabe og Rúnar Þór Róbertsson. 2. Sonia Sotomayor. 3. Til borgarinnar San Marcos í Texas í Bandaríkjunum. Halldóra Eydís Jónsdóttir Aldur: 25 ára í dag. Starf: Nemi en vinnur í ágúst í Vogafjósi í Mývatnssveit. Fjölskylda: Einhleyp en á syst- kinin Þórhöllu Bergeyju, Arnþrúði Önnu og Skarphéðin Reyni. Foreldrar: Ólöf Hallgrímsdóttir og Jón Reynir Sigurjónsson. Þau eru bændur sem reka ferðaþjónustuna Vogafjós í Mývatnssveit. Búseta: Býr í London en á lög- heimili í Mývatnssveit. Stjörnumerki: Ljón. Halldóra Eydís er komin í tíu manna úrslit í skóhönnunarkeppni Viva la Diva sem kallast Nýja skóstjarnan. Áhugaverð orðaskipti áttu sér stað á blogg- síðu Eiríks Jónssonar, ritstjóra Séð og heyrt, á DV.is í gær. Eiríkur birti mynd af Gunnari V. Andréssyni, ljósmynd- ara Fréttablaðsins, þar sem hann deildi við Vilhjálm H. Vilhjálmsson lög- mann í héraðsdómi í vikunni. Eiríkur sagðist þekkja þá báða en Gunnar betur, sem betur fer. Vilhjálmur svaraði fljótlega í athugasemdakerfi síðunnar og vandaði ritstjór- anum ekki kveðjurnar: „Það var ekki sami hrok- inn í þér þegar þú varst að væla út gjaldfrest og afslátt af dráttarvöxtum og innheimtuþóknun eftir að þú varst dæmdur fyrir ærumeiðing- ar gagnvart Þóru Guðmundsdóttur í Hæstarétti. Sjaldan launar kálfurinn ofeldið, en njóttu vel.“ Fatahönnuðurinn Birta Björnsdóttir og Jón Páll Halldórs- son húðflúrmeistari skírðu dóttur sína á dögunum. Dóttirin fékk nafnið Ylfa Vár. Nafnið mun vera fengið úr norrænni goðafræði. Fyrir áttu þau Birta og Jón Páll soninn Storm Björn. Leikarinn Vignir Rafn Valþórsson lýsti því yfir í Fréttablaðinu á mánu- dag að hann væri að undirbúa leiksýninguna Sporvagninn Grease. Sýningin átti að vera um þau Sandy og Danny, 20 árum eftir að Grease gerist. Og einhvern veginn átti Snæfríður Íslandssól að blandast inn í söguna. Frumsýningin átti að vera í dag á artFart-hátíðinni. Af því varð ekki og litlar sem engar skýringar fást á því. Sagan segir að leikarar sem áttu að vera í sýning- unni viti ekki einu sinni af hverju hún var slegin af. Þeim var tilkynnt það í SMS-skilaboði. - hdm FRÉTTIR AF FÓLKI Jógvan Hansen og Friðrik Ómar vinna að nýrri plötu. Verkefnið miðar að því að kynna færeyska tónlist fyrir Íslendingum og öfugt, en helstu perlur íslenskra dægurlaga verða þýdd yfir á færeysku. Lögin eru frá ýmsum tímum og eru í uppáhaldi hjá félögunum. „Ég valdi fyrir hann tíu fær- eysk lög og hann valdi fyrir mig tíu íslensk lög og svo eru þau þýdd á hitt tungumálið,“ segir Jógvan. Stefnt er á að úr verði tvöföld geislaplata. „Þetta er nátt- úrulega stórt verkefni og kostar mikið, en það er erfitt að fjár- magna hvað sem er í dag, enginn á pening, sérstaklega ekki við Friðrik, tónlistarmennirnir. Von- andi getum við gert þetta í haust, ef ekki þá snemma næsta ár. Mig langar ekki að gera þetta í kring- um jólin, þá fellur platan bara í einhverja súpu. Þá vil ég frekar syngja jólalög.“ Jógvan hefur þegar sungið Traustan vin, Vegbúann og Lítinn dreng á Færeyskum dögum, með færeyskum textum. „Færeying- ar og Íslendingar eru góðir vinir í dag og við viljum kynna tónlist- ina betur fyrir þjóðunum. Ótrú- legt en satt þá er tónlistin okkar ólík. Þegar fólk heyrir færeysku lögin fyrst þá er ekkert víst að þeim líki þau. Þegar ég kom til Íslands þá fílaði ég ekki Sál- ina hans Jóns míns, Stuðmenn, Í svörtum fötum, Írafár og allt það. Ég skildi ekki tónlistina og ekki textana, sem gerir mikið. En eins og allt annað þá lærir maður að elska þau með tímanum.“ Jógvan vill ekki gefa upp að svo stöddu hverjir sjá um þýðingar. „Það er allt voðalega fallegt og vel gert, enda vanir menn sem sjá um það.“ Hvernig heldur hann að Íslend- ingar taki því að heyra slagarana sína á færeysku? „Það minnsta sem fólk getur gert er að taka vel á móti því,“ segir Jógvan í gríni. „Ég vona innilega að Íslending- um líki það en ég get ekki ákveð- ið það fyrir þá. Það er allavega skemmtilegt fyrir þá að heyra hvernig Vegbúinn eða Traustur vinur hljómar á færeysku. Íslend- ingar hlæja mikið að því hvernig Færeyingar tala og öfugt. Annars held ég að það sé engin ástæða til að fíla þetta ekki, Færeyingar eru búnir að semja frábær lög í gegn- um tíðina.“ kolbrun@frettabladid.is JÓGVAN HANSEN: VINNUR MEÐ FRIÐRIKI ÓMARI AÐ NÝRRI PLÖTU Perlur Íslands á færeysku LÆRIR AÐ META ÍSLENSKA TÓNLIST Jógvan færir Íslendingum færeyskar perlur og Færeyingum íslenskar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Viðtökurnar hafa verið ótrúlegar. Það hafa 50- 60 manns hringt bara í dag og allir hafa ein- hverja sögu að segja,“ segir Sigurður Svavars- son hjá bókaútgáfunni Opna. Í fyrradag kom út ný útgáfa bókarinnar Matur og drykkur eftir Helgu Sigurðardóttur sem hefur verið ófáan- leg um langt skeið. Talsverð spurn hefur verið eftir bókinni og hefur til að mynda heyrst af fólki sem skráð hefur sig á biðlista eftir henni hjá fornbókasölum landsins. Þessi endurútgáfa byggist á þriðju útgáfu verksins frá 1954 sem var síðasta útgáfan sem Helga Sigurðardóttir gekk sjálf frá. „Það er langt síðan ég hef upplifað álíka við- brögð við nýrri útgáfu. Fólk virðist gríðar- lega þakklátt fyrir þetta framtak okkar, og það gleður vitaskuld mikið. Ein kona kom hér við áðan og labbaði út með sjö eintök. Hún ætlaði að tryggja að öll börnin hennar hefðu eintak við höndina, svo hún hefði sína bók í friði,“ segir Sigurður. Sigurður segir að þessar viðtökur stað- festi hversu mikið grundvallarrit Matur og drykkur sé. Margar þjóðir eigi sér bók sem þessa; bæði Norðmenn og Danir og auðvitað Ítalir, en Silfurskeiðin var einmitt gefin út á íslensku í fyrra. Tímasetning útgáfunnar er líka góð. „Nú eru menn að huga að rótunum, farnir að rækta sjálfir og svona. Þá er leitað í grunnuppskriftirnar,“ segir Sigurður. Ekki skemmir svo fyrir á krepputímum að Helga Sig lagði áherslu á hagsýni. Nanna Rögnvaldardóttir ritar formála bók- arinnar og rifjar þar upp þekkt viðkvæði á íslenskum heimilum í gegnum tíðina þegar redda þurfti einhverju í eldhúsinu: „Það er best að athuga hvað Helga segir.“ Sigurður útgefandi á ekkert nema lof yfir bókina og hina merku Helgu Sig: „Þessi kona var alveg stórmerkileg og rís alveg undir því að vera kölluð matmóðir Íslendinga.“ - hdm Matmóðir Íslendinga fær góðar viðtökur STOLTIR ÚTGEFENDUR Sigurður Svavarsson og Guðrún Magnúsdóttir hjá Opna hafa vart kynnst öðrum eins viðbrögðum og þau hafa fengið við endurútgáfu bókar Helgu Sigurðardóttur, Matur og drykkur. Ein kona keypti sjö eintök. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Sjö stelpur í Listafélagi Verslunar- skólans ætla að bóna bíla í bikini- fötum einum fata í Faxafeni 10 á morgun. Með uppátækinu ætla þær að safna fyrir starfsemi félagsins í vetur þar sem leikrit og ýmis nám- skeið verða á döfinni. „Meirihlutinn af okkur hefur mikinn áhuga á leiklist og söng. Síðan eru hinar líka rosalega hressar og skemmtilegar en hafa kannski ekki reynslu. En við erum allar rosalega klikkaðar,“ segir Hallfríður Þóra Tryggvadóttir, formaður Listafélagsins. „Þetta er amerísk hugmynd að þvo bíla fyrir pening, alveg eins og að selja lím- onaði. Okkur fannst svo fyndið að hafa það konsept að gera hluti sem bara stelpur gera. Staðalímyndin að stelpur séu rosalega sexí að bóna bíla fannst okkur mjög fynd- in. Okkur finnst mjög gaman að leika og þetta verður held ég lítið mál fyrir okkur að koma svona fram,“ segir hún. Þær stöllur hafa brugðið á fleiri ráð í fjársöfnuninni. Þær sungu í nýlegri auglýsingu Símans og Tón- listar.is, hafa safnað flöskum og ætla að selja kökur í Kolaportinu. Bílabónið í Faxafeninu hefst klukkan 14 á morgun og stendur yfir fram eftir degi. Ef rigning verður úti verður bónað innandyra og til að halda uppi góðri stemn- ingu verður plötusnúður á staðn- um. Almenningur borgar 2.000 krónur fyrir þvottinn en Versling- ar fá hann á 1.000 krónur. - fb Fáklæddar bóndömur safna peningum KLÁRAR Í BÓNIÐ Hallfríður Þóra og vinkonur ætla ekki að láta sitt eftir liggja í bíla- bóninu á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.