Fréttablaðið - 08.08.2009, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 08.08.2009, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Júlíu Margrétar Alexandersdóttur Í dag er laugardagurinn 8. ágúst 2009, 220. dagur ársins. 4.57 13.33 22.07 4.28 13.18 22.05 Á vormánuðum tók ég eftir nokkrum ljósum hárum á höku mér og þegar ég horfði í spegil í ákveðinni birtu á hlið sá ég að svæðið í kringum höku og munn var helst farið að minna á norskan ungling. Skeggjaða konan. Hversu oft hafði maður hlegið að því? Ekki jafn fyndið þegar maður fékk að reyna það á eigin skinni. HÖFÐU brjóstin á mér minnk- að? Hafði höfuðhárið þynnst og var ég að fá ístru? Mér fannst ég sjá þess ótvíræð merki að eitt- hvað mikið væri að. Var ég að breytast í karlmann? Ég hringdi í lækni og sagðist vera að breyta um kyn. Ég var klárlega talin galin af mínum nánustu sem hristu hausinn og biðu eftir að þessi della gengi yfir – ég væri ekki að breytast í karlmann. LÆKNIRINN sannfærði mig um að ég væri ekki að sturlast og skoðaði álkuna á mér í smá- sjá – jú, þarna væri húðin eitt- hvað grófari. Ég hringdi sigri hrósandi í fjölskylduna sem ég hafði margsinnis dregið með mér út á svalir, steytt puttan- um framan í mig: „Sjáðu bara, sjáðu!“ en annaðhvort, kurteisi eða blindu vegna, hafði enginn þóst sjá neitt. TIL að komast að því hvað nákvæmlega væri í gangi reynd- ist mikilvægt að senda mig í blóðprufu og athuga skjald kirtil og hormónabúskap. Ferlið var langt, enda þurfti blóðprufan að fara fram á sérstökum tíma og sumarfrí alls staðar. Fyrir tveimur vikum fékk ég niður- stöður sem sýndu að magn testó- steróns í blóðinu hafði hækkað og herra Júlíus horfði á börnin sín, hugsandi hvernig hún ætti að segja þeim að nú ættu þau tvo feður og hvernig sambýlismað- urinn myndi taka tíðindunum. LAUSN er, þökk sé læknavísind- unum, til fyrir þó flesta kvilla er hrjá nútímamanninn í dag. Væri ég uppi á öðrum tíma hefði ég kannski endað sem hlægilega goðsögnin um skeggjuðu kon- una í sirkusnum. Fólkið mitt horfir hins vegar furðu lostið á mig veifa niðurstöðunum sigri hrósandi – ég vissi það! Ég ER að breytast í karlmann. Enn fremur sýndi þetta mér að það er mun oftar sem við eigum að hlusta á eigið hjarta og fylgja fyrstu tilfinningu – brjóstvitið hefur nefnilega slag í slag rétt fyrir sér. Herra Júlíus
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.