Fréttablaðið - 08.08.2009, Qupperneq 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Júlíu Margrétar
Alexandersdóttur
Í dag er laugardagurinn 8. ágúst
2009, 220. dagur ársins.
4.57 13.33 22.07
4.28 13.18 22.05
Á vormánuðum tók ég eftir nokkrum ljósum hárum á
höku mér og þegar ég horfði í
spegil í ákveðinni birtu á hlið sá
ég að svæðið í kringum höku og
munn var helst farið að minna
á norskan ungling. Skeggjaða
konan. Hversu oft hafði maður
hlegið að því? Ekki jafn fyndið
þegar maður fékk að reyna það
á eigin skinni.
HÖFÐU brjóstin á mér minnk-
að? Hafði höfuðhárið þynnst og
var ég að fá ístru? Mér fannst ég
sjá þess ótvíræð merki að eitt-
hvað mikið væri að. Var ég að
breytast í karlmann? Ég hringdi
í lækni og sagðist vera að breyta
um kyn. Ég var klárlega talin
galin af mínum nánustu sem
hristu hausinn og biðu eftir að
þessi della gengi yfir – ég væri
ekki að breytast í karlmann.
LÆKNIRINN sannfærði mig
um að ég væri ekki að sturlast
og skoðaði álkuna á mér í smá-
sjá – jú, þarna væri húðin eitt-
hvað grófari. Ég hringdi sigri
hrósandi í fjölskylduna sem ég
hafði margsinnis dregið með
mér út á svalir, steytt puttan-
um framan í mig: „Sjáðu bara,
sjáðu!“ en annaðhvort, kurteisi
eða blindu vegna, hafði enginn
þóst sjá neitt.
TIL að komast að því hvað
nákvæmlega væri í gangi reynd-
ist mikilvægt að senda mig í
blóðprufu og athuga skjald kirtil
og hormónabúskap. Ferlið var
langt, enda þurfti blóðprufan
að fara fram á sérstökum tíma
og sumarfrí alls staðar. Fyrir
tveimur vikum fékk ég niður-
stöður sem sýndu að magn testó-
steróns í blóðinu hafði hækkað
og herra Júlíus horfði á börnin
sín, hugsandi hvernig hún ætti
að segja þeim að nú ættu þau tvo
feður og hvernig sambýlismað-
urinn myndi taka tíðindunum.
LAUSN er, þökk sé læknavísind-
unum, til fyrir þó flesta kvilla er
hrjá nútímamanninn í dag. Væri
ég uppi á öðrum tíma hefði ég
kannski endað sem hlægilega
goðsögnin um skeggjuðu kon-
una í sirkusnum. Fólkið mitt
horfir hins vegar furðu lostið á
mig veifa niðurstöðunum sigri
hrósandi – ég vissi það! Ég ER
að breytast í karlmann. Enn
fremur sýndi þetta mér að það
er mun oftar sem við eigum að
hlusta á eigið hjarta og fylgja
fyrstu tilfinningu – brjóstvitið
hefur nefnilega slag í slag rétt
fyrir sér.
Herra Júlíus