Fréttablaðið - 08.08.2009, Blaðsíða 6
6 8. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
STJÓRNSÝSLA Forsætisráðuneytið
keypti sérfræðiþekkingu og ráð-
gjöf fyrir um 300 milljónir króna
í kjölfar bankahrunsins á liðnu
hausti.
Samið var við átta aðila – ein-
staklinga og fyrirtæki – sem unnu
misumfangsmikil og -kostnaðar-
söm verkefni.
Þeirra kostnaðarsamast var
vinna bresku lögfræðistofunn-
ar Lovells LLP sem veitti ráðgjöf
vegna hugsanlegra málaferla rík-
isins við bresk stjórnvöld og aðstoð
vegna samskipta við Eftirlitsstofn-
un EFTA. Ekki varð af málaferl-
um.
Eftir að Jóhanna Sigurðardóttir
tók við embætti forsætisráðherra
óskaði hún eftir yfirferð Ríkisend-
urskoðunar á fyrirliggjandi verk-
samningum.
Starfsmenn Ríkisendurskoðun-
ar ræddu við starfsmenn forsæt-
isráðuneytisins um téða samninga
og kynntu sér margvísleg gögn
þeim tengd.
Að mati stofnunarinnar gerði
ráðuneytið fullnægjandi grein
fyrir ákvörðunum sínum og gerir
hún ekki athugasemdir við mat
þess á þörf fyrir utanaðkomandi
ráðgjöf og þekkingu.
Ríkisendurskoðun telur að nægi-
leg rök hafi legið fyrir því að bjóða
ekki út viðkomandi verk enda falli
þau undir undantekningarákvæði
laga um útboð. Verkkaupin hafi
verið algerlega nauðsynleg vegna
aðkallandi neyðarástands sem staf-
aði af ófyrirsjáanlegum atburð-
um. Því hafi verið nauðsynlegt að
sneiða hjá almennu útboði. „Ljóst
er að atburðarás var mjög hröð,
þörfin brýn og mjög erfitt hefði
verið við þær aðstæður að bjóða
út kaup á ráðgjöf, ekki síst þar
sem nauðsynlegt var talið að leita
til erlendra aðila,“ segir í skýrslu
Ríkisendurskoðunar.
bjorn@frettabladid.is
Eðlilega staðið að
kaupum á ráðgjöf
Ríkisendurskoðun telur að eðlilega hafi verið staðið að kaupum forsætisráðu-
neytisins á ráðgjöf fyrir um 300 milljónir króna í kjölfar bankahrunsins í haust.
Sænski bankasérfræðingurinn Mats Josefsson fær 29 milljónir fyrir störf sín.
Í KJÖLFAR HRUNSINS Geir H. Haarde stóð fyrir kaupum á sérfræðiþjónustu fyrir
um 300 milljónir króna vegna falls bankanna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Breskt fyrirtæki sem aðstoðaði við
almannatengsl
Norskt fyrirtæki sem annaðist almanna-
tengsl og krísustjórnun
Alþjóðlegt ráðgjafafyrirtæki sem var
ráðuneytinu og sérstökum starfsmanni
þess til aðstoðar í upphafi bankakreppn-
unnar, m.a. við að halda utan um og
samhæfa viðbrögð. Starfaði einnig fyrir
FME
Bresk lögfræðistofa sem veitti ráðgjöf
vegna hugsanlegra málaferla ríkisins við
bresk stjórnvöld og aðstoð vegna sam-
skipta við Eftirlitsstofnun EFTA o.fl.
Íslensk lögfræðistofa sem m.a. er með
skrifstofu í London. Lögfræðiráðgjöf í
tengslum við bankahrunið
Finnskur sérfræðingur sem falið var að
skoða löggjöf um banka og framkvæmd
bankaeftirlitsins
Sænskur sérfræðingur sem ráðinn var til
að stýra endurskipulagningu bankakerf-
isins
Alþjóðlegt fyrirtæki sem ráðið var til
að aðstoða við endurskipulagningu
bankakerfisins. Starfar einnig fyrir FME.
Áætlaður kostnaður er 300 þús. evrur
Headland
Retainer &
Company AS
McKinsey &
Company
Lovells LLP
LOGOS
Kaarlo Vilho
Jannari
Mats Josefsson
Oliver Wyman
13,1 m.kr
6,5 m.kr
42,6 m.kr
109,3 m.kr
33,8 m.kr
10,6 m.kr
29,0 m.kr (áætlað)
51,3 m.kr
AUKIN VIÐSKIPTI Í PÓLLANDI
Viðskiptasendinefnd
í Póllandi 6.-9. október
P
IP
A
R
P
IP
A
R
P
IP
APAPA
•
S
Í
•
S
Í
•
S
ÍA
•
9
A
•
9
A
•
9
A
•
9
9
6
9
6
19
6
9
66
19
6
11
9
66
11
9
6
19
6
11
9
6
9
6
9
6
11
9
6
9
Útflutningsráð undirbýr nú ferð viðskiptasendinefndar til
Póllands í samvinnu við sendiráð Íslands í Berlín. Pólland
hefur styrkt stöðu sína sem vænlegt viðskiptaland og hér
er því gott tækifæri fyrir þau fyrirtæki sem vilja efla
viðskipti sín þar eða skoða ný viðskiptatækifæri.
Farið verður til tveggja borga í sömu ferð og þannig
opnað fyrir fleiri möguleika á mismunandi markaðs-
svæðum. Fundir viðskiptasendinefndarinnar verða
í Gdansk 7. október og í Varsjá 8. október.
Á báðum stöðum verður unnið með þarlendum ráðgjöfum
að skipulagningu viðskiptafunda í samræmi við óskir
þátttökufyrirtækja. Einnig fer fram kynning á Íslandi
og íslensku viðskiptalífi.
Sendinefndin er opin fyrirtækjum úr öllum greinum
atvinnulífsins. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband
sem fyrst en óskir um fundi þurfa að hafa borist fyrir
15. ágúst.
Nánari upplýsingar veitir Þorleifur Þór Jónsson,
thorleifur@utflutningsrad.is, eða í síma 511 4000.
Borgartún 35 • 105 Reykjavík • sími 511 4000 • www.utflutningsrad.is
VIÐSKIPTI Bónus er með lægsta
verðið á 38 vörutegundum af þeim
55 sem verðlagseftirlit ASÍ skoð-
aði miðvikudaginn 5. ágúst. Nóa-
tún var oftast með hæsta verðið
eða í 28 skipti.
Athygli vakti hversu mikill
verðmunur er á grænmeti. Sam-
kvæmt verðkönnuninni mun-
aði 792 prósentum á kílóverði á
jöklasalati og var langdýrast í
Hagkaupum. Gunnar Ingi Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri Hag-
kaupa, segir þetta hins vegar mis-
tök. Greinilega hafi verið vitlaust
verðmerkt og verðeftirlitið ekki
farið á kassann til að skoða verð-
ið, því að kílóverðið er 449 krón-
ur. Verðmunurinn væri þá 141
prósent.
Verðmunur á agúrkum er 214
prósent, ódýrastar í Samkaupum
Úrval, 269 krónur kílóið en dýr-
astar í Hagkaupum á 797 krónur
kílóið. Mjólkin er ódýrust í Hag-
kaupum, kostar lítrinn 97 krónur
en 107 krónur í Fjarðarkaupum.
Lítill verðmunur var á forverð-
merktum vörum eins og til dæmis
SS-vínarpylsum. Verðlagseftirlitið
bendir á að slík forverðmerking sé
bönnuð og hamli samkeppni. Brýnt
sé að yfirvöld tryggi að verðsam-
keppni á þessum vörum verði með
eðlilegum hætti.
Könnunin var gerð í eftirtöld-
um verslunum: Bónus, Smáratorgi;
Krónunni, Lindum; Nettó í Hvera-
fold; Kaskó, Vesturbergi; Hagkaup-
um, Skeifunni; Nóatúni í Nóatúni;
Samkaupum Úrval, Miðvangi, og
Fjarðarkaupum, Hólshrauni. - vsp
Bónus er með lægsta verðið á 38 vörutegundum af 55 samkvæmt verðlagseftirliti ASÍ:
Mikill verðmunur á grænmeti milli verslana
DÓMSMÁL Rúmlega fertugur maður,
Arvydas Guobis, var í gær dæmd-
ur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir
hrottafengna líkamsárás í húsi við
Grettisgötu í byrjun júní síðastlið-
ins. Fórnarlambið hlaut lífshættu-
lega áverka af árásinni, sem stóð
yfir heila nótt. Arvydas þarf að
greiða fórnarlambinu 400 þúsund
krónur í bætur.
Af vitnisburðum að dæma var
kveikjan að barsmíðunum sú að
fórnarlambið hafði í óleyfi tekið
fé út af bankareikningi Arvydas-
ar. Því reiddist Arvydas mjög og
hóf að berja á manninum.
Ofbeldið hefði getað leitt til
dauða fórnarlambsins, sem hlaut
af því miklar bólgur í andliti, svo
að sá ekki út um augun, heilablæð-
ingu og brotnar tennur. Fórnar-
lambið missti meðvitund, var um
skeið í öndunarvél og glímdi fyrst
um sinn eftir árásina við jafnvæg-
istruflanir og tvísýni. Læknir telur
að áverkarnir gætu haft áhrif á líf
mannsins til frambúðar.
Maður og kona sem tóku þátt í
árásinni voru dæmd til að greiða
120 þúsund króna sekt í ríkissjóð
fyrir að annars vegar slá fórnar-
lambið einu sinni og hins vegar
sparka einu sinni í það. Þau voru
sýknuð af ákæru um að hafa látið
fyrir farast að koma fórnarlambinu
til hjálpar í neyð, enda benti allt til
þess að þau hefðu þvert á móti kall-
að til sjúkrabíl þegar þeim varð
ástand þess slasaða ljóst. - sh
Fimmtán mánaða dómur fyrir að berja mann til óbóta í húsi við Grettisgötu:
Dæmdur í fangelsi fyrir hrottaskap
HÚSIÐ VIÐ GRETTISGÖTU Barsmíðarnar
stóðu linnulítið alla nóttina í þessu húsi.
FRÉTTABLAÐIÐ / ARNÞÓR
Bónus Krónan Nettó Kaskó Hagk. Nóatún Samk. Fjarðarkaup
Heill ferskur kjúklingur =108,4%
479 524 539 898 949 898 898 998
Agúrkur = 213,8%
311 340 254 254 797 397 269 299
Smjörlíki 500 gr = 79,3%
191 150 168 168 269 178 211 159
Kötlu vanilludropar 30 ml = 88,5%
135 130 159 159 169 245 189 159
Jöklasalat kílóverð = 792,5%/141%
186 187 187 187 1.660(449*) 298 239 210
Verslanirnar eru í rétti röð: Bónus Smáralind, Krónan Lindum, Nettó Hverafold, Kaskó
Vesturbergi, Hagkaup Skeifunni, Nótaún Nóatúni, Samkaup Úrval í Miðvangi og Fjarðar-
kaup Hólshrauni
* Samkvæmt framkvæmdarstjóra Hagkaupa
PAKISTAN, AP Talsmaður talibana í
Pakistan staðfesti í gær að leiðtogi
þeirra, sem meðal annars er talinn
hafa stýrt fjöl-
mörgum sjálfs-
morðsárásum,
hefði fallið í
flugskeytaárás
Bandaríkjahers
á miðvikudag.
Flugskeyta-
árásin var gerð
á hús tengdaföð-
ur Baitullahs
Mehsud í Suður-
Waziristan, sem er fjallahérað
á landamærum Pakistans við
Afganistan. Kona hans féll einn-
ig í árásinni. Talið er að fráfall
Mehsuds muni hjálpa pakistönsk-
um og bandarískum stjórnvöldum
að ráða niðurlögum talibana og
liðsmanna Al-Kaída í Pakistan. - bj
Flugskeytaárás í Pakistan:
Leiðtogi tal-
ib ana fallinn
BAITULLAH
MEHSUD
Hefur þú tínt sveppi?
Já 25,7%
Nei 74,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Eru dómar í fíkniefnamálum of
þungir?
Segðu þína skoðun á vísir.is
LONDON, AP Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunin segir prófanir á bólu-
efnum gegn svínaflensunni H1N1
á áætlun. Áætlanir gera ráð fyrir
því að fyrstu skammtarnir verði
tilbúnir í september.
Tilraunir með lyfið eru nú
hafnar hjá þremur framleiðend-
um, en meðal þess sem kanna á
er hversu oft þurfi að bólusetja
hvern einstakling. Hingað til
hefur verið talið að hver maður
þurfi tvo skammta af bóluefni.
Íslenska ríkið hefur tryggt sér
kauprétt á 300 þúsund skömmt-
um, sem talið er að dugi til að
bólusetja 150 þúsund manns,
tæpan helming landsmanna.
Alls hafa nú 72 smitast af
svínaflensu hérlendis. Langflest-
ir eru á aldrinum 15 til 19 ára eða
alls 23. Ellefu börn á aldrinum 5
til 14 ára hafa smitast. - bj
Varnir gegn svínaflensu:
Bóluefni tilbúið
í september
KJÖRKASSINN