Fréttablaðið - 08.08.2009, Qupperneq 8
8 8. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
1. Hvað heita þeir sem hlutu
lengstu fangelsisdómana vegna
umfangsmesta fíkniefnasmygls
Íslandssögunnar?
2. Hvað heitir fyrsti hæstarétt-
ardómari Bandaríkjanna sem
er af rómönskum uppruna?
3. Hvert ætlar jógakennarinn
Guðjón Bergmann að flytja
ásamt fjölskyldu sinni?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 42
LONDON, AP Ronald Arthur Biggs,
betur þekktur sem hinn alræmdi
lestarræningi Ronnie Biggs, var í
gær látinn laus úr fangelsi í Bret-
landi. Hann tók þátt í lestarráninu
mikla 8. ágúst 1963, fyrir nákvæm-
lega 46 árum í dag.
Jack Straw, dómsmálaráðherra
Bretlands, náðaði Biggs af mann-
úðarástæðum, en hann er sagður
við dauðans dyr. Biggs á 80 ára
afmæli í dag, og framdi því ránið
á afmælisdaginn sinn.
Ættingjar Biggs sögðust í gær
vonast til þess að hann næði að
njóta þess litla tíma sem hann eigi
eftir. Talið er að litlar breyting-
ar verði á högum hans þrátt fyrir
nýfengið frelsi, enda mun hann að
mestu rúmliggjandi eftir að hafa
fengið hjartaáfall oftar en einu
sinni.
Biggs var í fimmtán manna
gengi sem rændi póstlest í ágúst
1963, og komst undan með 2,6
milljónir punda, sem myndi á verð-
lagi dagsins í dag jafngilda um 8,2
milljörðum króna. Ránsfengurinn
fannst aldrei.
Lögreglan handtók Biggs og
flesta hina lestarræningjana
skömmu eftir ránið. Biggs var
dæmdur til 30 ára fangelsisvist-
ar, en flúði úr fangelsi í júlí 1965,
eftir fimmtán mánaða fangelsis-
vist, með því að klifra yfir fang-
elsisvegginn með kaðalstiga.
Biggs flúði land, lét breyta and-
liti sínu með lýtaaðgerð í Frakk-
landi, og eyddi svo næstu árum í
Ástralíu. Hann flúði þaðan árið
1970, eftir að fréttamenn komust
á snoðir um hvar hann hélt sig, og
eyddi næstu þremur áratugum í
Brasilíu.
Bresk stjórnvöld reyndu að fá
Biggs framseldan frá Brasilíu, en
enginn samningur um framsal var
í gildi. Biggs hafði að auki feðrað
barn með brasilískri konu og fann
skjól í lögum sem banna brasilísk-
um stjórnvöldum að vísa foreldr-
um brasilískra ríkisborgara úr
landi.
Biggs ákvað að snúa aftur til
Bretlands árið 2001, þá á 72. ald-
ursári, en þá var heilsu hans farið
að hraka verulega. Hann var hand-
tekinn við komuna til Bretlands,
en þá átti hann eftir að afplána 28
ár af dómi sínum.
Hans þáttur í þessum fræga
glæp var þó langt frá því að vera
mikilfenglegur. Eina verkefni
Biggs í lestarráninu mikla var að
útvega mann sem kunni að stýra
lestinni sem gengið rændi, en það
tókst ekki betur til en svo að sá
sem hann fann til verksins þekkti
ekki þá tegund lesta sem pósturinn
notaði. Hann fékk því það hlutverk
að bera peningapoka úr lestinni.
Þrettán af ræningjunum fimmt-
án voru handteknir, en aldrei hefur
verið upplýst hverjir tveir ræn-
ingjanna voru. brjann@frettabladid.is
Ronnie Biggs
er frjáls á ný
Hinn alræmdi lestarræningi Ronnie Biggs hefur
verið látinn laus úr fangelsi í Bretlandi. Hann var
í fimmtán manna gengi sem framdi lestarránið
mikla árið 1963. Biggs er sagður við dauðans dyr.
LAUS ÚR FANGELSI Lestarræninginn Ronnie Biggs var handtekinn við komuna til
Bretlands árið 2001, 36 árum eftir að hann flúði úr fangelsi og komst úr landi. Biggs
er nú sagður rúmliggjandi og við afar slæma heilsu. NORDICPHOTOS/AFP
STJÓRNSÝSLA Björn L. Bergsson
hæstaréttarlögmaður var sett-
ur ríkissaksóknari í málefnum
er varða bankahrunið af dóms-
málaráðherra í gær. Gildistími
setningarinnar er til 1. júní 2010.
Málið kom upp eftir að Valtýr
Sigurðsson ríkissaksóknari sagði
sig frá málaflokknum í heild
sinni.
Björn er fæddur 4. mars 1964
og lauk lagaprófi frá HÍ árið
1990. Hann hlaut héraðsdóms-
réttindi árið 1992 og varð hæsta-
réttarlögmaður árið 1999. Hann
starfaði sem fulltrúi á Lögfræði-
skrifstofu Guðjóns Ármanns
Jónssonar hdl. 1990-1993, var
fulltrúi á Lögmannsstofu Arn-
mundar Backman hrl. 1993-1995
en er nú einn eigenda Mandat-
lögmannsstofu.
- vsp
Björn settur ríkissaksóknari:
Settur yfir
bankahrunið
IÐNAÐUR Skrifað var í gær undir
fjárfestingarsamning milli ríkis-
stjórnar Íslands og Century Alu-
minum Company og Norðuráls
Helguvíkur ehf. vegna byggingar
álvers í Helguvík.
Samningurinn byggist á lögum
sem samþykkt voru í apríl en í
þeim er fjallað um starfsemi fyr-
irhugaðs álvers, verkefni þess og
skyldur.
Nýverið lá fyrir sú niðurstaða
Eftirlitsstofnunar EFTA að ekk-
ert væri að athuga við lögin en í
þeim er meðal annars kveðið á um
afslátt af almennri skattlagningu
fyrirtækja.
Samið hefur verið við HS orku
og Orkuveitu Reykjavíkur um
orkukaup. Orkan er ekki til og
þurfa fyrirtækin að ráðast í virkj-
anagerð til að uppfylla skuldbind-
ingar sínar. Katrín Júlíusdóttir
iðnaðarráðherra kvaðst í samtali
við Fréttablaðið ekki trúa öðru
en að fyrirtækin standi við gerða
samninga.
Fimm ár eru liðin síðan vinna
við undirbúning álversins hófst.
Fyrsta skóflustungan var tekin
fyrir rúmu ári og er nú unnið að
byggingu kerskála. Áætlanir miða
við að starfsemi geti hafist í nýju
álveri haustið 2011.
Gangi allt eftir verður Helgu-
víkurálverið fjórða álbræðslan á
Íslandi. Fyrir eru Fjarðaál í Reyð-
arfirði, Norðurál í Hvalfirði og
Ísal í Straumsvík. Í ár eru liðin
fjörutíu ár síðan starfsemin hófst
í Straumsvík. - bþs
Fjárfestingarsamningur ríkisins og Norðuráls um álver í Helguvík undirritaður:
Unnið að undirbúningi í fimm ár
HELGUVÍK Bygging kerskála stendur yfir.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SRÍ LANKA, AP Yfirvöld í Srí Lanka
hafa að undanförnu yfirheyrt
Selvarasa Pathmanathan, nýjan
leiðtoga Tamíltígra.
Pathmanathan, sem hafði áður
umsjón með vopnasmygli Tamíl-
tígra, tók við forystu uppreisnar-
sinnanna eftir að stjórnvöld á Srí
Lanka drápu þáverandi leiðtoga
þeirra, Veluppillai Prabhakaran.
Eftir að stjórnvöld komust að því
að Pathmanathan hefði tekið við
stjórn Tamíltígranna var hann
handtekinn. Talið er að handtak-
an hafi komið sér vel fyrir for-
seta Srí Lanka, Mahinda Raja-
paksa, en þingkosningar í landinu
eru í þann mund að hefjast. - fb
Leiðtogi Tamíltígra í haldi:
Yfirheyrslur
standa yfir
Innritun fer fram á www.tskoli.is
Kvöldskóli
Byggingatækniskólinn
Raftækniskólinn
Tæknimenntaskólinn
Véltækniskólinn
Meistaraskólinn
Fjarnám
Byggingatækniskólinn
Fjölmenningarskólinn
Upplýsingatækniskólinn
Skipstjórnarskólinn
Raftækniskólinn
Véltækniskólinn
Meistaraskólinn
Diplómanám
Endurmenntunarskólinn
• Rekstur og stjórnun í atvinnulífinu
- Útvegsrekstrarfræði
- Flugrekstrarfræði
- Almenn lína í rekstri og stjórnun
- Rekstrarfræði
• Lýsingarfræði
• Lýsingarhönnun
Flugskóli Íslands
Í september hefjast:
• MCC námskeið
• ATPL námskeið
• PPL námskeið
(einkaflugmannsnámskeið)
• Flugkennaranámskeið
www.flugskoli.is
Það er leikur að læra
Innritun lýkur 26. ágúst.
Aðstoð við innritun er 26. ágúst frá kl. 16 :00 – 19:00.
Innritun í kvöld- og f jarnám er haf in
Enn er nóg eftir af hvalveiðikvóta:
Búið að veiða 110 hvali
SJÁVARÚTVEGUR Veiddir hafa verið
samtals 110 hvalir við strend-
ur landsins í sumar samkvæmt
upplýsingum frá Fiskistofu. Um
fjórðungur hrefnukvótans hefur
verið veiddur og innan við helm-
ingur langreyðarkvótans.
Fyrsta langreyðurin veiddist um
miðjan júní, og síðan hafa 64 dýr
verið dregin á land, 33 tarfar og 31
kýr. Frá því fyrsta hrefnan veidd-
ist í lok maí hafa 46 hrefnur veiðst,
8 kýr og 38 tarfar. Samkvæmt
veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofn-
unar má veiða 200 hrefnur og 150
langreyðar á árinu 2009.
Gunnar Bergmann Jónsson,
framkvæmdastjóri Félags hrefnu-
veiðimanna, segist ekki endilega
gera ráð fyrir því að það takist að
veiða upp í allan hrefnukvótann
enda sé það ekki markmið í sjálfu
sér. Kvótinn hafi verið aukinn úr
100 dýrum í 200 dýr í júní þegar
allar ráðstafanir hrefnuveiði-
manna hafi miðað við að veiða
100 dýr.
Gunnar Bergmann segir sölu
hrefnukjöts hafa gengið vonum
framar. „Fram að þessu höfum við
ekki fryst eitt einasta kjötstykki.
Þetta hefur allt farið ferskt á inn-
anlandsmarkað, enda líklega eitt
vinsælasta grillkjöt sumarsins.“
- bj , - th
LANGREYÐUR Veiðst hafa 64 langreyð-
ar það sem af er ári, en kvótinn er 150
dýr. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VEISTU SVARIÐ?