Fréttablaðið - 08.08.2009, Side 20
20 8. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
H
afdís Erla er sund-
kona og þjálf-
ari sunddeildar
Styrmis, hún telur
félagið vera nauð-
synlegt í sam-
félagi samkynhneigðra þar sem
það stuðli ekki einungis að heil-
brigðu líferni heldur skapar einn-
ig sýnileika sem hún telur að geti
brotið á bak aftur ákveðnar stað-
alímyndir sem loða við samkyn-
hneigða. Hafdís æfði sund með
sundfélaginu Ægi frá árinu 1990
og keppti meðal annars með ungl-
inga- og aðallandsliðinu í sundi allt
til ársins 2004 en þá ákvað hún að
segja skilið við sundið. „Ég hætti
aðallega vegna þess að þetta var
orðið of mikið æfingaálag með-
fram námi, en hluti af ástæðunni
var líka það að mér fannst sem
ég gæti aldrei komið út úr skápn-
um á meðan ég æfði sund. Ég var
hrædd um að verða fyrir aðkasti
og óviss um hvert ég gæti leitað
ráða, eða hvort ég gæti yfirhöf-
uð leitað eitthvert. En eftir á að
hyggja þá sé ég eftir því að hafa
ekki látið reyna á það, en það er
auðvelt að vera vitur eftir á. Ég er
alls ekki að saka íþróttahreyfing-
una um að vera eitthvað sérstak-
lega fordómafull í garð samkyn-
hneigðra, alls ekki, þetta er bara
norm sem erfitt er að brjóta á bak
aftur,“ segir Hafdís Erla.
Erfitt að koma út úr skápnum
Vilhjálmur Ingi stundar nám í
íþróttafræðum við Háskóla Íslands
á Laugarvatni og er meðlimur fót-
boltadeildar Styrmis og hefur leik-
ið með liðinu frá því í vor. Hann
segir félagið hafa verið honum
nauðsynlegt stuðningsnet þegar
hann kom út úr skápnum fyrr í
vetur. „Þegar ég gekk til liðs við
Styrmi var ég nýbúinn að opin-
bera samkynhneigð mína fyrir
mínum nánustu og var að leita að
vettvangi þar sem ég gæti fundið
einhvers konar stuðning og félags-
skap á meðan ég væri að átta mig
á hlutunum. Það hafði tekið mig
langan tíma að safna kjarki til að
koma út úr skápnum því að ég var
búinn að gera mér í hugarlund að
þetta yrði svo erfitt og að ég myndi
mæta miklu mótlæti. En þegar ég
loks tók skrefið þá komst ég að
því að mikið af þessum fordómum
höfðu aðallega verið í hausnum á
mér,“ segir Vilhjálmur Ingi.
Hann segist hafa fengið mikinn
stuðning hjá fjölskyldu og vinum
eftir að hann kom út og segir þann
stuðning vera ómetanlegan. „Það
var erfitt að játa þetta fyrir fjöl-
skyldu og vinum en þau tóku þessu
mjög vel. Ég held að það sé mjög
einstaklingsbundið hvenær fólk
er tilbúið til að viðurkenna þetta
fyrir sjálfu sér. Fyrir mér var það
erfiðasta skrefið, að viðurkenna
þetta fyrir sjálfum mér. Þegar ég
lít til baka þá skil ég hversu mikil
þyngsli þetta voru á mér, ég varð
samt ekki hamingjusamur á einni
nóttu, þetta er ferli sem hver og
einn þarf að ganga í gegnum. Því
lengra sem maður kemst í ferl-
inu, þeim mun hamingjusamari er
maður. Ég held að mesti munurinn
sé sá að ég brosi meira í dag.“
Litaður af fordómum
En eru miklir fordómar gagnvart
samkynhneigðum innan íþrótta-
hreyfingarinnar? Hafdís Erla
telur að samfélagið geri samkyn-
hneigðum erfitt fyrir að koma
út úr skápnum því ungt samkyn-
hneigt fólk sé alið á sömu fordóm-
um og aðrir í samfélaginu. „Þegar
ég var að koma út úr skápnum
fyrir sjálfri mér sem unglingur þá
held ég að mestu fordómarnir hafi
verið hjá sjálfri mér því maður er
jafn litaður af fordómum samfé-
lagsins og allir aðrir. Hegðunar-
ramminn er mjög þröngur og þá
má alls ekki stíga hænufet út fyrir
hann. Þetta á sérstaklega við um
íþróttir. Hvert einasta frávik frá
„íþróttalegu hegðunarnormi“ ef
svo má að orði komast, ýtir við-
komandi langt út á jaðarinn. Þetta
er eins og að vera fastur í hjólfari
sem þarf átak til að komast upp
úr.“
Vilhjálmur telur að ný kynslóð
íþróttaþjálfara og iðkenda sé laus-
ari við fordóma en þeir sem eldri
eru. „Auðvitað verður maður var
við að fólk noti orðið hommi sem
neikvætt eða niðrandi orð, því
miður, en ég tek það ekki nærri
mér, enda engin ástæða til þess.
Ég get ímyndað mér að það sé
erfitt fyrir stráka á unglingsaldri
að koma út úr skápnum í þessu
umhverfi því þeir eru enn ómót-
aðir og að reyna að skilgreina
sjálfa sig. Ég held að vandinn sé
sá að samkynhneigðir karlar eru
almennt taldir kvenlegir og það
gengur ekki í heimi íþrótta þar
sem allt gengur út á karlmennsku.
Ég spurði meira að segja sjálfa
mig hvort ég ætti eftir að verða
kvenlegri við það að koma út úr
skápnum, en það er ekki þannig,
persónuleiki þinn breytist ekki
með kynhneigðinni.“
Yngstur í „hommaárum“
Vilhjálmur telur að íþróttafé-
lag líkt og Styrmir veiti mönnum
nauðsynlegan stuðning og félags-
skap. Hann segir jafnframt að það
hafi verið honum mikill innblást-
ur að umgangast þá sem komu
út úr skápnum þegar samfélagið
var enn fullt af fordómum í garð
samkynhneigðra. „Ég er yngst-
ur iðkenda Styrmis í „hommaár-
um“ og það var mér mikil hvatn-
ing að umgangast eldri leikmenn
sem þurftu virkilega að berjast
fyrir tilverurétti sínum. En þó að
samfélagið í dag sé mun betra en
það var þá er það því miður svo að
samkynhneigðir þurfa enn að berj-
ast fyrir réttindum sínum. Styrmir
getur þannig verið góð fyrirmynd
sem sýnir að hópíþrótt eins og
fótbolti og samkynhneigð geta vel
farið saman. Samkynhneigt fólk er
að finna í öllum kimum samfélags-
ins, líka í íþróttum.“
Hafdís er sama sinnis og segir
Styrmi vera heilbrigðan valmögu-
leika fyrir samkynhneigða. „Það
liggur í hlutarins eðli að samkyn-
hneigðir haldi hópinn. Félagslíf
samkynhneigðra hefur verið svo-
lítið bundið við skemmtistaði og
næturlífið og fyrir þá sem nenna
því ekki er þetta góður valkost-
ur.“
Aðspurð segir Hafdís árang-
ur sunddeildarinnar á nýafstöðn-
um Outgames hafa komið sér
skemmtilega á óvart, en liðsmenn
deildarinnar unnu til alls átján
gullverðlauna. „Við fórum þarna á
gleðinni fyrst og fremst en vissum
að við áttum góða möguleika því
við vorum með mjög sterka sund-
menn í liðinu og það var vissulega
mikil hvatning að koma heim með
alla þessa peninga. Mér fannst líka
mjög gaman að geta keppt aftur og
ná árangri sem er mældur í sek-
úndum og metrum, þó að litlu per-
sónulegu sigrarnir séu ekki síður
gleðiefni,“ segir Hafdís sem lætur
af þjálfarastarfinu í haust en þá
heldur hún utan í frekara nám.
„Ég er að flytja til Berlínar í haust
þar sem ég ætla að byrja á því að
læra svolitla þýsku og svo ætla
ég í sagnfræði. Í Berlín er nóg af
íþróttafélögum á borð við Styrmi
þannig að ég hef ekki áhyggjur af
því að geta ekki stundað sundið
áfram.“
Samkynhneigðir geta
líka verið afburða íþróttafólk
Hafdís Erla Hafsteinsdóttir sundkona og Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson fótboltakappi eru bæði meðlimir í Styrmi, íþróttafé-
lagi samkynhneigðra. Þau segja íþróttastarfið vera nauðsynlegt í samfélagi samkynhneigðra og segir Vilhjálmur Ingi að félagið
hafi verið honum ómetanlegt stuðningsnet þegar hann kom út úr skápnum í vetur. Sara McMahon ræddi við Hafdísi Erlu og
Vilhjálm Inga um fordóma, samstöðu og glæstan árangur Styrmismanna á hinum nýafstöðnum Outgames-leikum.
NJÓTA FÉLAGSSKAPARINS Hafdís og Vilhjálmur segja félagsskapinn í Styrmi vera góðan og veita fólki nauðsynlegan stuðning.
Erfitt sé fyrir samkynhneigða að taka þátt í starfi venjulegra íþróttafélaga. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Íþróttafélagið Styrmir er sérstakt fyrir
þær sakir að félagsmenn þess eru
allir samkynhneigðir, þó að gagnkyn-
hneigðir fái oft að vera með. Félagið
var stofnað í júní árið 2006 og hét
upphaflega Strákafélagið Styrmir en
því var síðar breytt í núverandi nafn.
Félagsmenn ákváðu sumarið 2006
að koma saman á Klambratúni og
leika knattspyrnu sér til gamans.
Síðan þá hefur mikið vatn runnið
til sjávar og fyrir stuttu tók Styrmir
meðal annars þátt í Outgames, sem
er alþjóðlegt íþróttamót samkyn-
hneigðra, með góðum árangri.
„Það er því miður þannig að
samkynhneigðir karlmenn hafa oft
átt erfitt uppdráttar í hópíþróttunum
líkt og fótbolta og handbolta, og
þeir virðast mæta meiri fordómum
en konur sem stunda sömu íþróttir.
Margir félagsmenn Styrmis hættu
að stunda íþróttir rétt áður en þeir
komu út úr skápnum því þeim
fannst þeir ekki geta komið út við
þessar kringumstæður. “ segir Alfreð
Hauksson, formaður Styrmis.
Að sögn Alfreðs er meginmark-
mið Styrmis að stuðla að fordóma-
lausum íþróttum og skapa jákvætt
og uppbyggilegt umhverfi fyrir þá
sem vilja stunda íþróttir. „Styrmir
býður ekki aðeins upp á íþrótta-
iðkun heldur einnig félagslegan
vettvang fyrir þá sem hafa ekki
áhuga á að stunda skemmtistaði.“
segir Alfreð Hauksson, formaður
félagsins.
Áhugasamir geta leitað upplýsinga
um félagið á vefsíðu þess á slóðinni
www.styrmir.is.
VILJA FORDÓMALAUSAR ÍÞRÓTTIR