Fréttablaðið - 08.08.2009, Side 24
● Forsíðumynd: Nodicphotos Getty Images Útgáfufélag:
365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512 5000
Ritstjórar: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og
Sólveg Gísladóttir solveig@frettabladid.is Auglýsingar:
Hlynur Þór Steingrímsson s. 512 5439 Útlitshönnuður:
Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is.
inni&úti
LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2009
● NÝ SÆLUHÚS Á MARKAÐ
Nýtískuleg í 19. aldar stíl
● EITT OG ANNAÐ UM BERJATÍNSLU
Vísaðu mér á berjamó
● FLUGMÓDEL Á AKUREYRI
Allur fl otinn á loft
TINNI ALLTAF
GÓÐUR Úlfhildur
Dagsdóttir segir
myndasögur og
hrollvekjur tilvaldar
í ferðalagið. SÍÐA 2
HOLLT OG GOTT
SÆLGÆTI
Ljúffeng döðlu-
kaka sem ekki
þarf að baka.
SÍÐA 5Sumarblað Fréttablaðsins
SUMAR
SÓLVEIG GÍSLADÓTTIR
● inni&úti
H
verjum Íslendingi er hollt að kynna sér undirstöðuatvinnu-
greinar landsins. Sérstaklega hafa ungmenni gott af því að
dýfa hendi í kalt vatn fiskikara eða reka kýr til mjalta.
Þar sem fjármálamarkaðurinn er hættur að teljast með
stend ég nokkuð vel að vígi varðandi þetta heilræði. Ung að aldri vann
ég eitt sumar í fiski fyrir vestan. Líkaði alveg stórvel að standa við
færibandið og skera þorsk, ýsu, grálúðu, karfa og ufsa. Síðastnefnda
fiskinn var skemmtilegast að vinna með, grálúðan var svo feit að hún
eyðilagði hanskana á skömmum tíma en þorskinn hef ég aldrei getað
borðað síðan. Best man ég eftir pásunum klukkan tíu þegar glumdi
í hátalarakerfinu: „Velkomin í morgunleikfimi, við byrjum á skíða-
göngu.“ Í Íshúsinu lærði ég að vinna, standa
í annan endann í átta tíma á dag sextán ára
gömul, og fá borgað eftir afköstum.
Almennum sveitastörfum hafði ég þó lítið
komið nálægt. Fór reyndar í sveit eitt sumar
eftir fermingu. Dróst þangað vegna einlægs
hestaáhuga en var mest í því að passa börn. Kýr
voru ekki á bænum og því hafði ég litla reynslu
af umgengni við þær. Það breyttist nú síðustu
helgi þegar fjölskyldan ákvað að gerast kúahirðir hjá vinafólki sínu í
sveitinni þar sem voru 22 mjólkandi kýr. Þessa tvo daga komst ég að
nokkrum merkilegum staðreyndum:
Kýr eru maddömur. Það þýðir ekkert að nálgast þær með æðibunu-
gangi eða koma fram við þær af vanvirðingu. Þær krefjast virðingar
og mjúkra handa. Það þýðir ekki að gaufast eitthvað af vankunnáttu,
þá fær sá hinn sami illt augnaráð og jafnvel spark að launum.
Kýr eru vanafastar. Þær vilja alltaf fara inn
á sama tíma, hafa sinn eigin bás og
sömu rútínu á hlutunum. Ef eitt-
hvað fer úr skorðum verða þær
æstar og láta ekki að stjórn.
Kýr skíta … mikið. Undirrituð fékk
það hlutverk að fylgja hverri kú út úr fjós-
inu eftir mjaltir og átti að sjá til þess að þær
skitu ekki á ganginn á leiðinni. Það tókst
aldrei.
Kýr fara í manngreinarálit. Þegar ókunn-
ugir koma í fjósið líst þeim illa á. Hvað þá
þegar þessi ókunnuga manneskja ætlar að
fara að nálgast þær og vilja eitthvað upp á
dekk við mjaltir.
VATN ER HOLLT eins og flestir vita. Meðal annars minnkar
mikil vatnsdrykkja líkur á hjartaáfalli, lagar höfuðverk og hreins-
ar líkamann.
„Ég byrjaði í sportinu 2006, en
hafði dreymt um þetta síðan
ég var krakki,“ segir Krist-
inn Ingi Pétursson, áhuga-
maður um fjarstýrðar flugvélar
og stjórnarmeðlimur í Flugmódel-
félagi Akureyrar. Félagið stendur
fyrir árlegri flugkomu á Melgerð-
ismelum, við Flugstöð Þórunnar
hyrnu, í dag.
Reiknað er með að þátttakendur
verði fimmtíu talsins en Kristinn
segir um það bil 250 manns stunda
þetta áhugamál hérlendis. „Þarna
verða flugmódel af öllum gerðum,
allt frá tvíþekjum úr fyrra stríði til
nútíma þotna sem fljúga hraðar en
hljóðið. Við munum tjalda öllu til.
Áhorfendur verða alls ekki svikn-
ir.“
Að sögn Kristins verða vélarn-
ar á bilinu 50 til 60 og sumar engin
smásmíði. „Algengt er að væng-
hafið sé á bilinu einn og upp í þrjá
metra,“ bendir hann á og bætir
við að meðal annars stærðarinn-
ar vegna líti félagsmenn á módelin
sem ósviknar flugvélar. „Af þeirri
ástæðu teljum við okkur vera al-
vöru flugmenn. Enda segja útlærð-
ir flugmenn sem hafa prófað mód-
elin að þeim sé sumpartinn erfið-
ara að fljúga en flugvélum í fullri
stærð.“
Rétt eins og hjá raunverulegum
flugfélögum fá ekki nema reyndir
flugmenn að taka í vélarnar á sýn-
ingunni og eingöngu þær sem hafa
verið samþykktar í skoðun hjá fé-
laginu teljast flughæfar. „Svo er net
sem skilur að áhorfenda- og flug-
svæðið enda viðbúið að mikill fjöldi
flugvéla sveimi um loftin blá.“
Hluti fjarstýrðu vélanna geng-
ur fyrir bensíni og segir Kristinn
eigendur þeirra ekki hafa farið var-
hluta af hækkun á eldsneytisverði.
„Þetta er orðið dýrt, enda sumir
að eyða allt að 20 lítrum á mán-
uði. Nokkrir hafa snúið sér að raf-
magnsvélum, það kostar minna að
reka þær á ársvísu og svo eru þær
líka umhverfisvænni.“
Kristinn segir uppákomur fé-
lagsins vel sóttar og býst við yfir
1.000 gestum í ár, en síðast mættu
um 300 manns. „Við bjóðum alla
velkomna, einkum yngstu kynslóð-
ina. Þetta hefst klukkan 9 og stend-
ur langt fram eftir degi. Svo verða
veitingar seldar frá 10 til 17,“ segir
hann hress. - rve
Flugvélaflotinn á loft
● Kristinn Ingi Pétursson hefur haft áhuga á fjarstýrðum flugvélum frá því hann var drengur.
Nú er hann meðlimur í Flugmódelfélagi Akureyrar sem stendur fyrir mikilli sýningu í dag.
É g horfi nú aðallega á þetta vegna allra sætu strákanna, eða sjónrænu ánægjunnar eins og fræðikonan Laura Mulvey
orðaði það,“ segir Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur
um sjónvarpsþættina Supernatural, sem hún mælir óhikað
með í sumarbústaðinn. „Aðalpersónurnar eru tveir bræður sem
hafa það að atvinnu, eða markmiði skulum við segja, að leita
uppi alls kyns óvættir og þá helst yfirnáttúrulegar. Þetta er
mjög skemmtileg hrollvekja.“
Bláa lótusinn tæki Úlfhildur helst með sér í ferðalagið
enda þeirrar skoðunar að þar sé á ferð einstaklega vel heppnuð myndasaga.
„Er ekki tilvalið að taka með sér bók um Tinna sem er nú alltaf á ferðinni,“ spyr
hún og hlær. „Í þessari bók er Tinni staddur í Kína, aðallega Sjanghæ, þar sem
hann hindrar meðal annars ópíumsmygl og gagnrýnir heimsvaldastefnu Vest-
urlanda en á ritunartíma bókarinnar var Kína ekki orðið að heimsveldi.“
Beðin um að mæla með góðri tónlist stingur Úlfhildur upp á öllu með Jeff
Who? „og reyndar öllum hljómsveitunum sem litli bróðir (Þormóður Dagsson)
er hættur í. Ég er enn að syrgja þá staðreynd að hann skuli hafa yfirgefið tón-
listarheiminn og bara rétt vona að það vari ekki lengi,“ segir hún.
Í FERÐALAGIÐ
Ófreskjur og ópíumsmygl
Til sjávar og sveita
Kristinn reiknar með að yfir eitt þúsund
manns mæti í dag. MYND/ÚR EINKASAFNI
Kýr eru maddömur.
Það þýðir ekkert að
nálgast þær með
æðibunugangi eða
koma fram við þær
af vanvirðingu. Alls kyns vélar verða til sýnis, allt frá tvíþekjum úr fyrra stríði upp í nútíma þotur. Vel er tekið á móti yngstu kynslóðinni.
www.salka.is
Endalaus
fjölskylduævintýri
í Reykjavík
Bókin er
bæði á
íslensku og
ensku
Bók uppfull
af hugmyndum og
nytsamlegum upplýsingum
- Allt sem fjölskyldan
þarf að vita.
8. ÁGÚST 2009 LAUGARDAGUR2