Fréttablaðið - 08.08.2009, Qupperneq 26
● inni&úti
Berjamór fyrir
borgarbúa
HVERT SKAL HALDIÐ?
Góð berjalönd eru að sögn sér-
fræðinga svo mörg og góð á Ís-
landi að óþarfi er að haga sér eins
og berjasvæðið sem maður upp-
götvaði sé hernaðarleyndarmál.
Nóg er til handa öllum.
Heiðmörk þykir ágætis berja-
land. Ef búið er að tína mikið þar
sem þú kemur skaltu halda innar
í mörkina.
Hraunið meðfram Reykjanes-
brautinni – sérstaklega í nágrenni
Grindavíkur. Hvassahraun
þykir þar gott.
Grímsnesið og Grafn-
ingur. Berjalönd þar
þykja góð.
Hvalfjörður og þá sér-
staklega Brynjudalur sem
gengur inn af Hvalfjarðar-
botni þykir gott berjaland.
Selvogur. Margt fallegt að
skoða í leiðinni – svo sem Stranda-
kirkju.
Nesjavallaleið. Þar má allt-
af finna berjalönd meðfram öðru
hvoru.
Hafravatn. Berjalönd þar í
kring.
Gleymið ekki að athuga í kring-
um bústaðinn þar sem þið dvelj-
ið hvort ekki megi nýta svæðið í
kring og tímann í berjatínslu.
HVAÐ SKAL TAKA MEÐ?
Ílát undir berin með góðu loki. Í
þetta má nýta gamlar málning-
arfötur, stórar Machintosh-dósir,
Tupperware-box og jafnvel potta,
krúsir eða box utan af matvælum
ef þú ert staddur í bústað og berja-
tínsla kemur upp sem óvænt hug-
mynd. Þar skiptir hugmyndaflug-
ið máli.
Krækiber eru núna orðin fullþroskuð víðast hvar. NORDICPHOTOS/GETTY
● FRÁ UMHVERFISSTOFNUN „Heimilt er að tína ber, sveppi,
fjörugróður og aðrar jurtir en ef tínt er í miklum mæli innan eignar-
landa þarf til þess leyfi. Heimilt er að tína ber og jurtir á þjóðlendum og
afréttum. Athugið að nokkrar jurtir sem vaxa í íslenskri náttúru eru fá-
gætar og friðaðar og óleyfilegt er að skerða þær.”
Bláber eru rándýr í búðun-
um svo það er um að gera að
láta ekki ókeypis náttúruafurðir
framhjá sér fara nú í ágúst. Úr þeim má
síðan gera bökur og annað góðgæti.
● Það eru ekki allir sem komast í stórkostlegu
berjalöndin á Vestfjörðum þetta sumar eða á
Austurlandi. Það þarf þó ekki að örvænta því í ná-
grenni borgarinnar má finna feiknagóð berjalönd.
Nesti. Það er ómögulegt að
gleyma góðu nesti því enginn vill
þurfa að keyra í miðri tínslu eftir
orku. Hér er sérstaklega mælt með
heitu súkkulaði og heimasmurðum
samlokum.
Mjúkar buxur sem eru örlítið
þykkar til að vernda hnén.
Berjatína ef fólk kýs þá aðferð
frekar en handtínslu.
Útvarpstæki með batteríi (út-
varpssagan í berjamó er snilld).
Grifflur getur verið þægilegt að
hafa ef kalt er. Fingurnir ná ekki
góðu taki á berjunum með vettling-
um sem ná alveg yfir puttana.
Regnslá og annar aukafatnaður
ef veður breytist.
HVERNIG SKAL GEYMA?
Fryst í lausu. Sniðugt er að nota
gömul box undan ís eða slíkt. Enn
sniðugra er að setja smjörpappír
milli berjalaga í boxinu, þá er auð-
veldara að þíða smærri skammta
í staðinn fyrir að allt fari í eina
frostklessu.
Sulta. Ótrúlega einfalt og svo
má líka frysta sultuna ef fólk kýs.
Kíló af berjum á móti kíló af sykri
er gamla reglan.
Þeir í hollustunni geta minnkað
hlutfallið í 800 g af sykri á móti kíló
af berjum. Sumir nota þurrkaða
ávexti, agavesýróp, hrásykur, hlyn-
sýróp, hunang og annað og minnka
þannig sykurmagnið enn frekar.
Söft. Góðar uppskriftir eru
til dæmis víða á internetinu og í
bókum.
Alls kyns bakstur. Má þar
nefna bláberjamuffins, kræki-
berjahlaup, bláberjaostakökur og
margt fleira. - jma
Svæðið í kringum Selvogskirkju er
eitt af góðum berjalöndum í nágrenni
Reykjavíkur.
N
O
RD
IC
PH
O
TO
S/
G
ET
TY
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
4
20
40
0
4.
20
08
Rannsóknir sýna að notkun sykurlauss Extra eykur
munnvatnsframleiðslu, jafnar sýrustig, heldur tönnunum
hreinum og stöðvar sýklaárásir á þær.
Extra minnkar upptöku hitaeininga og dregur það
úr streitu í amstri hversdagsins.
ott bragð fyrir heilbrigðar tennur...G
8. ÁGÚST 2009 LAUGARDAGUR4