Fréttablaðið - 08.08.2009, Blaðsíða 27
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
ÓLAFUR INGI JÓNSSON verður með leiðsögn
um sýninguna Falinn fjársjóður: Gersemar í þjóðareign
í Listasafni Íslands á sunnudaginn. Leiðsögnin hefst
klukkan 14. Ólafur mun sérstaklega fjalla um málverk
Kjarvals, Hvítasunnudag.
Eva Björk Guðmundsdóttir og Mar-
grét Dan Þórisdóttir, eða Maggý
eins og hún er kölluð, láta sig ekki
vanta í gleðigönguna í ár frekar en
fyrri ár.
„Við byrjum á að hitta vinkon-
ur okkar á Hlemmi þar sem má fá
yfirsýn yfir atriðin og búningana
en ætlum svo að finna góðan stað á
Laugaveginum til að fylgjast með.
Ég er nefnilega komin rúmar 35
vikur á leið og ætla því að fara mér
hægt,“ segir Eva en hún og Maggý
eiga von á frumburðinum níunda
september. „Í kvöld er okkur svo
boðið í árlega veislu til vinkvenna
okkar en þar verður öllu tjaldað
til og flaggað í öllum regnbogans
litum.“
Eva segir mikla tilhlökkun fylgja
Hinsegin dögum enda margir vinir
og kunningjar sem koma saman.
„Hátíðin teygir sig nú yfir á marga
daga með alls kyns viðburðum.
Má þar nefna stelpu- og stráka-
böll, regnbogamessu og fleira. Ég
er ekki jafn virk og áður en við
ætlum þó að líta inn á Barböru á
sunnudag þar sem vinkona okkar
er að spila.“
Hvað meðgönguna varðar segist
Eva hafa verið hraust og er hún enn
að vinna, sem vörustjóri hjá Sjóvá.
„Við erum orðnar mjög spenntar og
get ég uppljóstrað því að von er á
enn einni stelpunni á heimilið. Ég
á þó bágt með að trúa því að hún
hitti á settan dag og fái kennitöluna
090909 en það væri flott.“ Eva seg-
ist ánægð með nýlega lagabreyt-
ingu sem gerir samkynhneigðum
pörum kleift að fara í tæknifrjóvg-
un hér á landi og getur ekki beðið
eftir því að fá afraksturinn í hend-
urnar. vera@frettabladid.is
Litrík helgi fram undan
Þær Eva Björk Guðmundsdóttir og Margrét Dan Þórisdóttir eiga skemmtilega helgi fyrir höndum og hefst
hún vitanlega í gleðigöngunni. Þær munu þó fara sér hægt enda er Eva að því komin að eiga.
Maggý og Eva eru við öllu búnar ef það skyldi rigna í göngunni. MYND/SMÁRI ÞRASTARSON
!
"#$%
&'( )* +
,-%,.,/,-%,.,0&
365 er öflugasta fjölmiðlafyrirtækið á íslenskum markaði.
Fréttastofa Stöðvar 2 leitar að fréttamönnum til afleysinga allt árið.
Einnig vantar fréttamenn til afleysinga í sumar.
Umsækjendur þurfa:
- að hafa góða þekkingu á íslensku samfélagi og brennandi áhuga
á málefnum líðandi stundar
- að hafa gott vald á íslenskri tungu
- að vera öruggir í framkomu
- að vera færir í mannlegum samskiptum
- að geta unnið undir álagi
Reynsla af fréttamennsku er æskileg en ekki skilyrði.
Vinsamlegast sendið inn umsókn gegnum vef
www.365midlar.is - Um 365 – Störf hjá 365 – Fréttamenn