Fréttablaðið - 08.08.2009, Page 34

Fréttablaðið - 08.08.2009, Page 34
 8. ágúst 2009 LAUGARDAGUR8 RÁÐNINGARÞJÓNUSTA Ráðningarþjónusta HH Ráðgjöf • Fiskislóð 81 • 101 Reykjavík • Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is Hæfniskröfur Veitingastjóri Starfið hentar ekki síður konum en körlum. Nánari upplýsingar eru veittar hjá HH Ráðgjöf Ráðningarþjónustu í síma 561 5900. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu HH Ráðgjafar www.hhr.is Starfssvið · Þátttaka í almennum störfum · Starfsmannastjórnun · Ábyrgð á þjónustu og gæðum á sinni vakt · Skipulagshæfileikar · Leiðtogahæfileikar · Rík þjónustulund · Hæfni í mannlegum samskiptum · Dugnaður og metnaður í starfi Veitingastaðurinn Pítan óskar eftir að ráða ábyrgan og metnaðarfullan einstakling í starf veitingastjóra kvöld- og helgarvakta. Unnið er á tvískiptum vöktum 2 daga aðra vikuna og 5 daga hina. Um 65% starf er að ræða. Pítan er rótgróinn veitingastaður með yfir tveggja áratuga farsæla sögu. Lagður er metnaður í að veita góða þjónustu og bjóða uppá úrvalsmat úr besta hráefni. Afgreiðslustarf Álafoss Mosfellsbæ vill ráða hressa og atorkusama manneskju til starfa í verslun sína í Mosfellsbæ. Vinnutími er frá 09-18 alla virka daga og tilfallandi helgarvinna. Æskilegt er að hún hafi kunnáttu í prjónaskap og einhverja tungumálakunnáttu. Umsókn með mynd sendist á addi@alafoss.is fyrir 11. ágúst. Grunnskóli Seltjarnarness – Valhúsaskóli Óskum eftir að ráða skólaliða til starfa við unglingadeild Grunnskóla Seltjarnarness. Upplýsingar um starfi ð veitir Þorvaldur H. Skaftason í síma 5959-250 /822-9125 S E L T J A R N A R N E S B Æ R www.alcoa.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /A L C 4 69 23 0 8/ 09 Álver Alcoa Fjarðaáls við Reyðarfjörð er eitt af þeim fullkomnustu í heiminum og mikið hefur verið lagt upp úr því að búa til góðan og öruggan vinnustað. Starfsmenn fá hollan mat í glæsilegu mötuneyti og boðið er upp á akstur til og frá vinnu. Hjúkrunarfræðingar og læknir sinna heilsuvernd starfsmanna í álverinu. Sérfræðingur á rannsóknastofu Við leitum að sérfræðingi á rannsóknastofu álvers Alcoa Fjarðaáls. Viðkomandi þarf að hafa menntun á sviði efnafræði. Reynsla af störfum á rannsóknastofu er æskileg. Starfið er fjölbreytt og felst meðal annars í að greina sýni og miðla niðurstöðum rannsókna, hafa eftirlit með tækjum og búnaði á rannsóknastofu, taka þátt í að þróa verkferli fyrir rannsóknavinnu og þjálfa starfsfólk í notkun rannsókna- búnaðar. Véliðnaðarmenn Við leitum að véliðnaðarmönnum til að sinna viðhaldi tækja í álveri Alcoa Fjarðaáls. Notkun og viðhaldi tækjanna er stýrt í samræmi við raunverulegt ástand þeirra og markmiðið er að tryggja fullkominn áreiðanleika. Unnið er í teymum og verkefnin eru fjölbreytt. Áhersla er lögð á frumkvæði og stöðugar endurbætur. Tækifæri til símenntunar og starfsþróunar eru óvíða fleiri. Umsóknarfrestur fyrir þessi störf er til og með 23. ágúst. Framtíðarstörf hjá Alcoa Fjarðaáli Ef þú hefur áhuga á þessu störfum, hafðu þá samband við Tómas Odd Hrafnsson hjá Capacent í síma 540 1000 eða netfangið tomas.hrafnsson@capacent.is eða skráðu umsókn þína á www.capacent.is og haft verður samband við þig. Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.