Fréttablaðið - 08.08.2009, Qupperneq 44
24 8. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
Hvenær voruð þið hamingjusöm-
ust?
Rebekka: Í dag.
Ívar: Í dag.
Rikki: Í dag.
Hvaða störf dreymdi ykkur alltaf
um að gegna í framtíðinni?
Rebekka: Vinna við tónlist og leik-
list.
Ívar: Ég vissi alltaf að ég yrði tón-
listarmaður.
Rikki: Tónlist og kvikmyndagerð.
Hvernig mynduð þið lýsa tónlist-
arstefnu Krooks?
Rebekka: Danstónlist af bestu
gerð.
Ívar: Áfram.
Rikki: The Shit.
Hvað er það dýrasta sem þið hafið
nokkurn tíman keypt ykkur?
Rebekka: Eitthvað í fataskápnum.
Ívar: Eitthvað vafasamt.
Rikki: Bíll á láni frá Lýsingu.
Hvað er það versta sem nokkur
hefur sagt við ykkur?
Rebekka: Ég veit það ekki því ég
var ekki að hlusta.
Ívar: I‘m a dude.
Rikki: Hvar á ég að byrja?
Ívar, gætir þú hafa verið í Mer-
cedes Club, og Rebekka, hefðir þú
viljað að vera í Dr. Mister & Mr.
Handsome?
Rebekka: Já, fínt ride.
Ívar: Nei, ég er ekki nógu mass-
aður.
Ef þið byggjuð ekki í Reykjavík,
hvar mynduð þið vilja búa?
Rebekka: Portúgal.
Ívar: Púertó Ríkó.
Rikki: Miami.
Uppáhaldshljómsveitir ykkar fyrr
og síðar:
Rebekka: Johnny Cash og fleira.
Ívar: Þær eru svo margar.
Rikki: Alice in Chains.
Uppáhaldskvikmynd og af
hverju?
Rebekka: Walk the line. Situr enn
þá í mér.
Ívar: Dead Man. Góð músík, góð
taka, góður leikur, góð saga.
Rikki: The Big Lebowsky. Það er
bara einn dude.
Draumahelgin ykkar í einni setn-
ingu:
Rebekka: Endalaus.
Ívar: Ibiza.
Rikki: Enginn mánudagur.
Hvert er versta starf sem þið hafið
nokkurn tímann gegnt?
Rebekka: Klippa pulsur.
Ívar: Færiband.
Rikki: Hnýta saman úldna þorsk-
hausa.
ESB, með eða móti?
Rebekka: Á móti, mjög á móti.
Ívar: Lélegt band.
Rikki: Á móti.
Uppáhaldsstaðurinn þinn á
Íslandi?
Rebekka: Heima hjá mömmu.
Ívar: Jökulsárslón.
Rikki: Sveitin hjá mömmu.
Hvers konar tónlist hefur mest
áhrif á þig og hvaða lag hlustar
þú á mest í dag?
Rebekka: Tímalaus tónlist með sál.
Röyksopp.
Ívar: Raftónlist. Ég hef svo lítinn
tíma til að hlusta á eitthvað annað
en Krooks þessa dagana.
Rikki: Rokk. People like them með
Tomcraft.
Er eitthvað sem heldur fyrir þér
vöku á nóttunni?
Rebekka: Ívar og Rikki.
Ívar: Samviskan er ekki laus við
smá bletti.
Rikki: Gott partí.
Ef þú gætir breytt einhverju í for-
tíð þinni, hvað myndi það vera?
Rebekka: Ekkert.
Ívar: Nenni ekki að spá í því.
Rikki: Hinu og þessu.
Trúir þú á framhaldslíf?
Rebekka: Já, en ekki endurhold-
gun.
Ívar: Já.
Rikki: Já.
Hvenær fékkstu síðast hlátur-
skast?
Rebekka: Í gærkvöldi yfir stand-
uppinu hans Ívars.
Ívar: Í gærkvöldi í standuppinu
mínu.
Rikki: Á Bruno. Heavy fyndin.
Áttu þér einhverja leynda nautn?
Rebekka: Kannski, he he.
Ívar: Já, hún er æðisleg.
Rikki: Þetta er ekki Bleikt og
blátt.
Hvaða núlifandi manneskju lítur
þú mest upp til?
Rebekka: Mannsins míns og
mömmu
Ívar: Mömmu.
Rikki: Mömmu.
En hvaða núlifandi manneskju þol-
irðu ekki?
Rebekka: Ég nenni ekki að standa
í að þola ekki fólk.
Ívar: Allt bíff endar hjá mér.
Rikki: Enginn í augnablikinu. Hver
vill?
Uppáhaldsorðið þitt?
Rebekka: Kláraðu mig ekki.
Ívar: Basicly skiluru.
Rikki: Fuck.
Hvaða lag á að spila í jarðarför-
inni þinni?
Rebekka: Spiritual með Johnny
Cash.
Ívar: Squeeler með Red.
Rikki: Ég var að heyra lag í gær,
ég veit ekkert hvað það heitir eða
hvernig það er eða neitt.
Danstónlist
af bestu gerð
Ívar Örn Kolbeinsson var annar hluti tvíeykisins
alræmda Dr. Mister & Mr. Handsome á meðan
Rebekka systir hans kleif vinsældarlistana með
Merzedes Club í fyrra. Nú hafa þau slegist í lið
með bróður sínum Ríkharði Grétari og stofnað
hljómsveitina Krooks. Anna Margrét Björnsson tók
þau í þriðju gráðu yfirheyrslu.
KROOKS Systkinin Ívar Örn, Rebekka og Rikki fara fyrir þessu nýja danstónlistarbandi. Steini úr Quarashi er einnig meðlimur. Rikki
er lengst til hægri á myndinni við hlið Rebekku og Ívar er fyrir miðju. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
■ Á uppleið
Varðeldar Þó farið sé að kólna þá
er sumarið ekki búið enn. Varðeldar
ylja manni á notalegum kvöldum úti í
guðsgrænni náttúrunni.
Útsölur Nú
þegar fólk
hefur almennt
minna á milli
handanna er
um að gera að
nýta sér útsölur.
Menn verða
þó að fara með
opnum huga og
muna að það er hægt að breyta og
lagfæra flík þannig að hún verði alveg
einstök.
Vatn Vatn er langsam-
lega besti drykkurinn,
sá hollasti og ódýrasti.
Það er líka sniðugt að
panta sér vatn í stað
sóda sem bland á
barnum, það minnkar
líkurnar á þynnku og
sparar þér 250 krónur.
Matarboð Margir kvarta undan
því að hafa ekki tíma til að hitta
fjölskyldu og vini. Allir þurfa þó að
borða, því ekki að sameina hitting-
inn og kvöldmáltíðina? Það er alltaf
gaman að brjóta brauð með góðum
vinum.
■ Á niðurleið
Andlitsfarði Orðtakið „less is more“
á svo sannarlega við í þessu tilviki.
Konur á öllum aldri eru mun fallegri
þegar þær hafa ekki hlaðið á sig
meiki og augnskugga. Sérstaklega
á sumrin þegar fólk er sólbrúnt og
sællegt.
Bílar Bensínverð er orðið nógu hátt
til að setja mann á hausinn, með
því að hjóla meira eða ganga sparar
maður peninga, svo ekki sé minnst á
kosti þess að hreyfa sig
meira.
Drykkjuleikir Sumir
drykkjuleikir eru bara of
flóknir og leiðinlegir og geta
drepið stemninguna í stað
þess að skapa hana.
Óstundvísi Það er leiðin-
legt að þurfa að bíða eftir
fólki. Allir ættu að temja sér
stundvísi og mæta á réttum tíma.
MÆLISTIKAN
ÞRIÐJA GRÁÐAN
Undirstöðunámskeið í STEINANUDDI
Akureyri og í Reykjavík í ágúst.
Námskeið hannað fyrir fagfólk.
Kennsla í nuddi með heitum & köldum steinum.
Kennslan fer fram á ensku og íslensku.
Kennarar:
Júlía Brynjólfsdóttir, lögg. sjúkranuddari og
Debbie Thomas frá Jane Scrivner Stone, London.
Þetta námskeið eitt og sér og gefur þér allt til að verða steinameðferðaðili
en er uppá diploma til framhaldsnámskeiða bæði á Íslandi og Bretlandi
Farið verður í megin atriðum yfir lífeðlisfræðileg áhrif hita og kælimeðferða
steinanna, viðbrögð líkamans og aðferðarfræði.
Bráðir/krónískir verkir.
Heilsufar/hvað er varhugar vert
Með steinum er hægt að vinna dýpra og léttir álaginu á hendur nuddarans.
Listin er að framkvæma kröftuga meðferð sem kemur jafnvægi á líkama og
sál.
Staðsetning og dags.:
Akureyri 10.-12. ágúst – Sunnuhlíð
Reykjavík 14.-16. ágúst – Rósinni, Bolholti 3
Nánari upplýsingar: Júlía Brynjólfsdóttir s: 898-4022 juliam@simnet.is
Ath takmarkaður fjöldi á hvert námskeið.