Fréttablaðið - 08.08.2009, Síða 47
LAUGARDAGUR 8. ágúst 2009
„Þetta er alhliða æfingakerfi sem bygg-
ir upp styrk og þol, auk þess sem með
þessu fæst samvera með krökkunum og
góð útivist,“ segir Melkorka Árný Kvar-
an sem hefur ásamt Höllu Björgu Lárus-
dóttur innleitt nýjung til landsins, svo-
kallað kerrupúl, að bandarískri fyrir-
mynd sem hefur náð vinsældum vestan
hafs.
Markmiðið með kerrupúli er eins og
fyrr sagði að byggja upp styrk og þol
og byggjast æfingar meðal annars upp
á armbeygjum, kraftgöngu og skokki
utandyra. „Já, við skokkum með kerr-
urnar,“ segir Melkorka hlæjandi og full-
vissar blaðamann um að börnunum stafi
engin hætta af. „Nei, enda með belti og
svo er þetta alls ekkert maraþon.“
Halla fékk þá hugmynd að kynna
þetta æfingakerfi fyrir landsmönnum
þegar hún flutti heim eftir sex ára bú-
setu í Bandaríkjunum. Hún fékk Mel-
korku til liðs við sig, sem er íþrótta-
kennari og matvælafræðingur að mennt
og þær eiga samanlagt sjö börn á aldrin-
um eins til fjórtán ára. En verður ekki
kalt í haust og vetur? „Nei, maður klæð-
ir sig bara eftir veðri, þótt við sjáum
kannski til hvernig fer í mesta kuldan-
um í vetur,“ segir Melkorka.
Fyrsta námskeið hefst á mánudags-
morgun klukkan 10. „Við hittumst við
inngang Fjölskyldu- og húsdýragarðs-
ins, þar sem við verðum að æfa í Laug-
ardalnum,“ segir Melkorka.
Nánar á www.kerrupul.is og skráning
á kerrupul@kerrupul.is.
Kerruhlaup til heilsubótar
TEKIÐ Á ÞVÍ Kerrupúl byggist meðal annars á
styrktar- og þolæfingum.
Hátíðin Sumar á Selfossi verður haldin nú um helg-
ina. Hátíðin er nú haldin í fjórtánda sinn og hefur
Knattspyrnufélag Árborgar annast hátíðahöld síð-
ustu sex ár. Dagskráin hófst í gær með Olísmótinu í
5. flokki karla í knattspyrnu.
Í dag hefst dagurinn með hópgöngu á Ingólfs-
fjall klukkan átta að morgni. Þá verður boðið
upp á veglegt morgunverðarhlaðborð í íþrótta-
sal Vallaskóla klukkan níu. Meðal ann-
arra dagskrárliða á laugardag má nefna
bíla- og tækjasýningu við íþróttahús-
ið, kassaklifur og markað í íþróttahúsi
Vallaskóla. Boðið verður upp á leis-
ertag og peintboll, trúbadorapartí á
Kaffi krús, listflug og margt fleira.
Ingó og Veðurguðirnir halda síðan
sérstaka barnatónleika í Hvíta hús-
inu klukkan 16.
Sléttusöngurinn fer nú í fyrsta
sinn fram í bæjargarðinum við Sigtún klukk-
an 21.30. Árni Johnsen sér um hann af sinni al-
kunnu snilld.
Glæsileg flugeldasýning verður á bökkum
Ölfusár en kvöldinu lýkur með balli í Hvíta hús-
inu þar sem Ingó og Veðurguðirnir ásamt Á móti
sól spila fyrir dansi.
Ætlunin er að öll hverfi Selfoss verði skreytt
með sérstökum litum og því ljóst að skemmtileg
stemning mun myndast við það.
Á sunnudaginn heldur Olísmótið áfram.
Messa er í Selfosskirkju klukkan 11 en
boðið upp á súpu og brauð í safnaðarheim-
ilinu að henni lokinni. Klukkan ellefu er
leiðsögn um myndlistarsýninguna Ferju-
staður í Hellisskógi.
Hátíðinni lýkur með verðlaunaaf-
hendingu við lok Olísmótsins klukk-
an 14.30.
Skemmtilegt Sumar á Selfossi
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Kristín Þórsdóttir
frá Bakka í Svarfaðardal, Mímisvegi 10,
Dalvík,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri laugardaginn 1. ágúst.
Jarðsungið verður frá Dalvíkurkirkju föstudaginn 14.
ágúst kl. 13.30; jarðsett verður að Tjörn.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri,
Jón Steinarr Árnason,
Finnsstöðum Eiðaþinghá,
lést á heimili sínu föstudaginn 31. júlí. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey.
Systkinin og fjölskyldur.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát okkar ástkæra eigin-
manns, föður tengdaföður, afa og langafa,
Rögnvaldar Björnssoar
byggingameistara, Berjarima 3.
Þorbjörg Hulda Þorvaldsdóttir
Katrín Rögnvaldsdóttir Gunnar Hannesson
Björn Rögnvaldsson Olga Hafberg
Þorvaldur Birgir Rögnvaldsson Andrea Robertson
Jóna Kristín Rögnvaldsdóttir Gunnar Guðbjörn
Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Þökkum auðsýnda hlýju og vinarhug við
andlát og útför ástkærs bróður okkar,
Hallgríms Helgasonar
Tröllagili 14, Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki lyfjadeildar FSA.
F.h. aðstandenda
Sigurlaug Helgadóttir
Björg Helgadóttir
Páll Helgason
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Ingunnar Helgu
Hallgrímsdóttur
áður til heimilis í Sæborg, Glerárhverfi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Dvalarheimilinu Hlíð
fyrir kærleiksríka umönnun og einstakan hlýhug.
Hallgrímur Gísli Friðfinnsson Anna Lísa Jóhannesdóttir
Sóley Rannveig Friðfinnsdóttir
Skúli Friðfinnsson Margrét Anna Hjaltadóttir
Þórdís Friðfinnsdóttir Bergþór Ragnarsson
Brynja Friðfinnsdóttir Viðar Þorleifsson
Edda Friðfinnsdóttir Guðjón Stefánsson
Hrönn Friðfinnsdóttir Þengill S. Stefánsson
Jóhannes B. Long
ömmu- og langömmubörn.
Okkar ástkæri,
Björgvin Þór Guðmundsson
Langagerði 122, Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi þann 27. júlí sl.
Útförin fór fram frá Digraneskirkju þann 6. ágúst sl.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Áss
styrktarfélags, fyrir frábæra umönnun og aðstoð,
einnig læknum og hjúkrunarfólki lungnadeildar
Landspítala.
Megi minningin um góðan dreng lifa.
Ingibjörg Sveinbjörnsdóttir
Svanhvít Hannesdóttir Helgi Valmundsson
Guðmundur Björgvinsson
Rúnar Guðmundsson Sigrún Lilja Jónasdóttir
Birna Guðmundsdóttir Þorvaldur Aðalsteinsson
Árni Guðmundsson Hugrún Aðalsteinsdóttir
Hannes Guðmundsson
Hilma Guðmundsdóttir Jónas Jónasson
Sólveig Guðmundsdóttir Hlynur Bragason
Vilborg Helgadóttir Sverrir Gunnarsson
Þökkum auðsýnda samúð og virðingu við
andlát og útför,
Jóns H. Björnssonar
Ásgarði 125, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarþjónustu
Karitas og líknardeildar Landspítala í Kópavogi fyrir
einstaklega góða umönnun.
Elín Þorsteinsdóttir
Sigríður Lóa Jónsdóttir Sigurður Ingi Ásgeirsson
Gunnlaugur Björn Jónsson Kristrún Jónsdóttir
Ingibjörg Svala Jónsdóttir Ólafur Ingólfsson
Sigrún Jónsdóttir
Björn Þór Jónsson
Elísa Ólöf Guðmundsdóttir Vignir Kristjánsson
Þorsteinn Ágúst Ólafsson Sandra Shobha Kumari
Árni Björnsson
og barnabörn.
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
Ágúst Guðmundsson
bifreiðastjóri og ökukennari,
Norðurbrú 5, Garðabæ,
áður að heimilis Ásgarði 149, Reykjavík, lést á
Landspítalanum Fossvogi föstudaginn 24. júlí. Útförin
fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 11. ágúst kl.
13.00.
Robert John Severson
Margrét Ágústsson Aðalsteinn Ólafsson
Kristján Ágústsson Stefanía Sara Gunnarsdóttir
Ágúst Björn Ágústsson Þórdís Björg Kristinsdóttir
Bjarni Ágústsson Þórdís Lára Ingadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Fréttablaðið biðst afsökunar á mistökum í
tilkynningu sem birt var 07/08/09.
Ástkær eiginmaður minn, faðir og afi,
Friðrik Pétursson
fv. kennari, Borgarholtsbraut 20,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum Fossvogi fimmtudaginn 30. júlí.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 14.
ágúst kl. 15.00.
Jóhanna Herdís Sveinbjörnsdóttir
Ríkharður H. Friðriksson
Jóhanna Vigdís Ríkharðsdóttir
Kristín Helga Ríkharðsdóttir.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur vináttu, samúð og hlýhug við andlát
og útför,
Hreiðars G. Viborg
Hraunvangi 3, Hafnarfirði, áður
Barmahlíð 34.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Hjúkrunarheimilis Vífilsstaða.
Jóna Helgadóttir
Helgi Þór Viborg Hildur Sveinsdóttir
Guðmundur Viborg
Sigríður María Hreiðarsdóttir
afabörn og langafabörn.
Móðir okkar,
Lára Vilhelmsdóttir
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund miðviku-
daginn 22. júlí sl. Útförin fer fram mánudaginn 10.
ágúst nk. í Bústaðakirkju kl. 13.00. Blóm og kransar
vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á ABC barnahjálp.
Ingþór Friðriksson
Hallbera Friðriksdóttir
og fjölskyldur.