Fréttablaðið - 08.08.2009, Qupperneq 52
32 8. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
„Ég flutti inn Haddaway í fyrra
og það gekk vonum framar
þannig að ég ákvað að endur-
taka leikinn og fá hljómsveit-
ina 2 Unlimited til landsins. Það
tók mig svolítinn tíma að hafa
uppi á henni en það hafðist
að lokum,“ segir Arnvið-
ur Snorrason tónleika-
haldari. Hljómsveitin
var stofnuð árið 1991 og
í þau fimm ár sem sveit-
in var starfrækt var hún
ein vinsælasta dans-
sveit Evrópu.
„Hljómsveit-
in klofnaði árið
1996 og það er
söngkonan, Anita
Doth, sem kemur
hingað til lands
ásamt dönsurum
og plötusnúðum.
Hún leikur bara
gömul 2 Unlimited-
lög þannig að þetta
verður án efa besta
90‘s-skemmtikvöld-
ið á Íslandi til þessa.
Við verðum með reyk-
vélar og „glow-stick“ og svo hvet
ég að sjálfsögðu alla til að mæta
í sínu fínasta 90‘s-pússi.“ Inntur
eftir því af hverju hann telji að
90‘s-tónlistin hafa gengið í end-
urnýjun lífdaga síðustu ár svar-
ar Arnviður að það sé einföld
skýring á því. „Ég held að það
sé vegna þess að kynslóðin
sem ólst upp við þessa tón-
list er sama fólk og stendur
í því að skipuleggja nætur-
lífið í Reykjavík í dag. Ætli
maður sé ekki svolítið að
leita í ræturnar og nost-
algíuna og það er það
sem gerir þetta svona
skemmtilegt.“
Tónleikarnir verða
haldnir 5. september
á Broadway og verð-
ur miðasala auglýst
síðar.
- sm
folk@frettabladid.is
> BÝÐUR OFT Í MAT
Jennifer Aniston er ekkert að skafa
ofan af hlutunum í nýjasta tölublaði
The Oprah Magazine og segir
heimili sitt vera besta veitinga-
staðinn í Los Angeles. Leikkon-
an er dugleg að bjóða vinum
og vandamönnum í mat og
finnst best að borða heima
hjá sér. Aniston þarf þó ekki
sjálf að hafa fyrir gestunum
því hún er með einkakokk
sem sér um eldamennskuna.
„Haffi Haff er líflegur og
skemmtilegur performer og
þegar við töluðum við hann var
hann meira en til í að taka þátt
í þessu með okkur,“ segir Ólaf-
ur Hjörtur Ólafsson á
skemmtistaðnum Jac-
obsen. Staðurinn verð-
ur með sinn eigin vagn í
gleðigöngu Hinsegin daga
í dag, þar sem plötusnúð-
arnir Yamaho, Sexy
Lazer og DJ Magic
munu þeyta skíf-
um og Haffi Haff
syngja.
„Haffi verður
síðan með „show“
á efri hæðinni í
kvöld og E&E Crew
verða að spila,“ útskýrir Ólaf-
ur sem var um það bil að fara
að skreyta vagninn fyrir göng-
una þegar blaðamaður náði tali
af honum. „Hugarástand Casa-
nova & Frímanns spila í kjallar-
anum alla nóttina, en hugmyndin
er að breyta kjallaranum í svona
„gay dungeon“ þar sem fílingur-
inn verður eins og maður sé að
koma inn í búr. Við þurfum
samt að redda dóti fyrir
það, en vonum að það tak-
ist. Þetta á eftir að vera
frábær helgi hjá okkur,“
segir Ólafur. - ag
Haffi Haff syngur
á vagni Jacobsen
SYNGUR Í GÖNGUNNI Haffi
Haff tekur lagið á vagni
Jacobsen í gleðigöngunni
í dag.
Sólveig Thoroddsen hörpuleikari kveð-
ur landið með tónleikum á Rósenberg
í kvöld, en hún spilar með Rósinni
okkar.
Hún segir tónleikana óformlega
kveðjutónleika. „Ég er að fara út í nám,
til Cardiff í Wales, í Royal Welsh College
of Music and Drama.“
Sólveig útskrifaðist úr Menntaskól-
anum í Reykjavík í vor sem dúx en er
þó hógværðin uppmáluð. Sem dúx voru
henni allir vegir færir í háskólanámi
en hún setur stefnuna á tónlistina enda
búinn að læra í níu ár á hörpu. „Ég ætla
að reyna það, já.“ Spurð hvort hún eigi
ekki ágætis möguleika á því þá svarar
hún „jú, jú, svo sem, vonum það bara.“
Sólveig er einnig útskrifuð úr Tón-
skóla Sigursveins. Auk þess að spila með
Rósinni okkar hefur hún tekið að sér sin-
fóníuhljómsveitarverkefni.
Með flutningunum út flytur Sólveig
að heiman. Hvernig er að vera að fara
af landi brott? „Það er svolítið sér-
stakt og ég átta mig ekki alveg á því.“
Er verið að flýja kreppuna? „Nei, nei,
ég er ekkert betur stödd í námi erlend-
is að borga himinhá skólagjöld,“ segir
hún og hlær.
Skólinn byrjar í september en Sól-
veig nýtur dvalarinnar á Íslandi þang-
að til. Tónleikarnir eru talsvert öðru-
vísi en skemmtiatriði dagsins, sjálf Gay
Pride-gleðigangan með öllu tilheyrandi.
„Kannski aðeins,“ segir hún og hlær.
„Við erum aðallega að fara að spila írsk
þjóðlög, eitthvað líka íslensk og norsk.“
Tónleikarnir hefjast klukkan 21.30. - kbs
Kveður Ísland með hörpuspili
RÓSIN ÞEIRRA Sólveig ásamt Rósinni okkar, en
hún kveður bandið með tónleikum í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
2 Unlimited til Íslands
í september Vinsældapoppararnir í Hjaltalín eru að taka upp
aðra breiðskífu sína. Með-
limir sveitarinnar hafa
hertekið Stúdíó Sýrland og í
gær naut Hjaltalín aðstoðar
rúmlega þrjátíu annarra
hljóðfæraleikara.
„Við erum að taka upp efni fyrir
okkar aðra plötu,“ segir Rebekka
Bryndís Björnsdóttir, fagottleikari
Hjaltalíns. Bandið tekur upp í Stúd-
íói Sýrlandi þar sem rúmlega þrjá-
tíu manns bættust í hljómsveitina í
gær.
„Þetta er alls konar gott fólk. Í
hljómsveitinni er mikið af mjög
klárum hljóðfæraleikurum og mús-
íköntum, góðum félögum, fólki sem
er rosalega gaman að vinna með og
spila með. Þetta er mjög skemmti-
legt og virkar vel,“ segir Rebekka
um liðsaukann.
Hljómsveitin er notuð „í góðri
summu af lögum, en það verður
ekki öll platan svona. Það stendur til
að taka átta lög á þennan hátt. Þetta
verður ekki alveg sami hljómurinn.
Hann verður svolítið stærri. Fólk
verður bara að tékka á þessu.“
Hljómsveitarstjórar eru Högni og
Viktor en þeir eru söngvari og fiðlu-
leikari Hjaltalíns. Tekið er upp yfir
tvo daga, í gær og í dag. Af viðtali
blaðamanns við Rebekku að dæma
leiðist þeim ekki, en mikil hlátra-
sköll heyrðust þar sem hljómsveitin
var að yfirgefa upptökuhúsnæðið.
„Við erum bara þreytt eftir lang-
an vinnudag, þannig að við erum
kannski með svolítinn galsa,“ segir
Rebekka og hlær. „Þetta gengur
vel og er búið að vera skemmtilegt.
Það er mjög góð stemning.“ En hve-
nær kemur svo gripurinn út? „Það
er aðeins óvíst í augnablikinu, við
erum að skoða það.“
kolbrun@frettabladid.is
Stórsveit í hljóðveri Hjaltalíns
FRÍÐUR FLOKKUR Högni stýrir hópi tónlistarmanna sem breyta Hjaltalín úr stórsveit í
risaband. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ashton Kutcher og eiginkona hans,
Demi Moore, voru hætt komin á
síðasta fimmtudag þegar einka-
flugvél Kutchers bilaði. Upp komst
um bilun í vélinni skömmu eftir að
hún fór í loftið um hádegi og þurfti
því að nauðlenda í Las Vegas sex
mínútum síðar.
S a mk væmt T w it ter - síðu
Kutchers ofhitnaði vélin svo
fjöldi slökkviliðsbíla var viðbúinn
þegar vélinni var lent. Hann sagð-
ist vera þakklátur fyrir að vera á
lífi. Atvikið varð þó ekki til þess
að koma í veg fyrir að hann hélt út
á lífið um kvöldið, en tilefnið var
teiti í tengslum við nýjustu kvik-
mynd Kutchers, Spread.
Þurftu að nauðlenda
HÆTT KOMIN Ashton Kutcher og Demi
Moore voru um borð í einkaflugvélinni
sem bilaði og þurfti að nauðlenda í Las
Vegas.
ENGIN TAKMÖRK
Hljómsveitin 2
Unlimited var
ein vinsælasta
danshljómsveitin á
sínum tíma.
Rafræn skráning á listdans.is
Inntökupróf í grunnskóladeild
fara fram 15. ágúst
9-11 ára kl.11.00.
11-15 ára kl.12.00.
Skólasetning framhaldsdeildar
er 19. ágúst kl. 14.00.
Kennsla hefst 20. ágúst.
Frank Fannar Pedersen
útskrifaðist úr Listdansskóla
Íslands 2008 og hefur störf hjá
IT DANSA í Barcelona í haust.
Við óskum Frank til hamingju
með árangurinn.
Munið frístundarkortin.