Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1944, Blaðsíða 20

Samvinnan - 01.04.1944, Blaðsíða 20
SAMVINNAN 4. HEFTI STEINGRÍMUR BALDVINSSON: Islenzk samvinna 60 áva Ef hart var, í ári og hungur í sveitum, var horft uvp í loftið og spáð, vonað og beðið bœnum heitum um bata og drottins náð. En náðin var einungis útför þeim snauða l ölmusubrauði — eða hungurdauða, sem engu var lakari, ef að var gáð. Starfið, það missir sitt líf og og sinn Ijóma, ef lokkandi hagsvon ei sést. Þjóðin var fjötruð í fátœktar dróma, þvi framtaksins egg var ei hvesst. Afrakstur starfsins var af henni tekinn, hver atvinnuvegur til hagsmuna rekinn erlendri verzlun, er mátti sín mest. Kúgun með þögulli þrjózku var svarað, þvingun af tómlœti mœtt. í skortinum djúpt inn í draumheima starað og deyfðin með hugsmiðum bœtt; lífsþyrstar sálir þar leituðu gamans, þvl lokuð var brautin til þroskans og framans og tilraunum fólksins til framsœkni hætt. orð eru þó undanskilin, en það hefur ætíð verið aðeins fyrir lærða menn að skýra þau og rannsaka. Hin forna stafsetning og munur á framburði veldur því, að alþýðumenn skilja ekki sum ritin, en það er síst að undra, því að það er kunnugt, að þegar í forn- öld skildu menn ekki almennt kveðskapinn né forna talshætti nema með umhugsun og rannsókn (sbr. Víga-Glúms og Grettis sögur). En þar sem þessu elzta lifandi tungumáli Evrópu er enn svona farið, mætti enn halda því við og hindra gereyðingu þess. Það þarf ekki miklar orðalengingar til að sanna, að þetta beri að gera, þótt önnur sé skoðun þeirra íslendinga, sem látið hafa í ljós þá ósk, að það yrði lagt niður með öllu. Skynsamir menn og lærðir menn telja Norður- löndum og þá einkum Danmörku og Noregi það hinn mesta hróður að hafa verndað tungu þessa. Margar hinar ágætustu hetjur og þjóðhöfðingjar hafa látið sér annt um þjóðtungur sínar og verndun þeirra, ásamt öðrum hinum mikilvægustu málefnum. Má í því sambandi nefna Karl mikla og Loðvík 14.“ Settist á þjóðina, lá yfir landi, lamandi kyrrstöðu ryk. Þróaðist manndóms- og þrifnaðar fjandi: Þýlyndi, klœkir og svik œxluðust hratt eins og arfi í þeim garði, sem erlenda kaupsýslan ræktaði og varði. Sögunnar nótt varð þá svört eins og bik. Þó mjög yrði þjóðin frá vild sinni’ að víkja og vinna án launa margt starf, þá tókst aldrei frá henni tunguna’ að svíkja, né tryggð við sinn menningararf. Rœturnar lífskrafti leyndu í sverði, þó lágvaxinn hlininn og krœklóttan gerði toppkal og limbit, er sárast að svarf. — Er nálgaðist vorið til sjávar og sveita, sulturinn hafði’ úti klœr. í búðina var ekki bjargar að leita: „Birgðirnar þrutu í gœr.“ Menn fundu að kaupmannsins forsjá að treysta var fánýtt, því ylur af mannúðarneista skammt yfir ísbreiður auðshyggju nœr. Hart var í ári til hafs og til sveita; menn hugsuðu úrbótaráð, sáu, að einhverju yrði að breyta, ekki var kaupmannsins náð bjargrœðisvegur, nei, liðs varð að leita hjá landinu, þjóðinni, kraftanna að neyta. Það kostaði stríð — en það stríð skyldi háð. \ Hart var í ári á Þingeyjarþingi, en þróttur í fólkinu var. í þorrans og góunnar gaddbylja kyngi gagnsókn var skipulögð þar. Traustið á sjálfan sig, trúna á landið tengdi við starfsþrána samvinnubandið. Fálmandi spurning hlaut fullnægju svar. Þeirra var hugur til harðrœða gerður, sem höfðu þar forystu-ráð. Gautlöndum, Auðnum og Grímsstöðum verður ei gleymt, meðan saga er skráð á íslenzka tungu, — og Yztafell rís þar. Upp yfir jafnsléttu kynslóðum vísar þingeysku bœndanna draumur og dáð. 120

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.