Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1944, Blaðsíða 30

Samvinnan - 01.04.1944, Blaðsíða 30
SAMVINNAN 4. HEPTI Visitala framfœrslukostnaðar í Reykjavík. Eftirfarandi tafla sýnir, hvernig útgjöld fjölskyldu í Reykjavík, með tæplega 5 manns í heimili og rúmlega 3.850,00 kr. útgjöld, miðað við verðlag í ársbyrjun 1939, hafa breytzt, vegna verðbreytinga síðan, bæði í heild sinni og einstökum út- gjaldaliðum. Útgjaldaupphæðin nær til 94,7% af meðalútgjöldum 40 fjölskyldna í Reykjavík, án skatts, samkvæmt rann- sókn 1939—’40, sbr. Hagtíðindi 1940, nr. 10—12. Taflan sýnir útgjaldaupphæðina miðað við verðlag á 1. ársfjórðimgi 1939 og í byrjun hvers af mánuðunum apríl 1943 og marz og apríl 1944, en með vísi- tölum er sýnt, hve mikið útgjaldaupphæð- in í heild og hver liður sérstaklega hefur hækkað síðan i ársbyrjun 1939. Útgjaldaupphœð Vísitölur kr. Jan.- —marz 1939= : 100 Jan.—apríl Apríl Marz Apríl Apríl Marz Apríl Matvörur: 1939 1943 1944 1944 1943 1944 1944 Kjöt 313.35 1.232.63 1.224.01 1.224.59 393 391 391 Fiskur 157.38 423.96 488.04 490.68 269 310 312 Mjólk og feitmeti .. 610.01 2.517.68 2.182.92 2.174.44 413 358 356 Kornvörur 266.76 725.74 818.24 817.39 272 307 306 Garðávextir og aldin 151.38 445.97 344.15 334.21 295 227 221 Nýlenduvörur 168.26 461.98 463.96 467.11 275 276 278 Samtals 1.667.14 5.807.96 5.521.32 5.508.42 348 331 330 Eldsneyti og ljósmeti 215.89 509.49 538.39 555.07 236 249 257 Fatnaður 642.04 1.535.61 1.674.50 1.705.19 239 261 266 Húsnæði 786.02 982.52 1.092.57 1.100.43 125 139 140 Ýmisleg útgjöld 541.92 1.207.33 1.364.90 1.363.95 223 252 252 Alls 3.853.01 10.042.91 10.191.68 10.233.06 261 265 266 Aðalvísitalan í aprílbyrjun í ár var 266, þ. e. 166% hærri heldur en á 1. ársfjórð- ungi 1939 eða nokkru fyrir stríðsbyrjun. Er hún 1 stigi hærri heldur en næsta mánuð á undan, og 5 stigum (eða 2%) hærri heldur en í aprílbyrjun í fyrra. Matvöruvísitalan var 330 í byrjun apríl- mánaðar. Er hún 1 stigi lægri heldur en næsta mánuð á undan. Matvöruvísitalan er nú 5% lægri heldur en í aprilbyrjun í fyrra. Eldsneytis- og ljósmetisvísitalan hefur hækkað um 8 stig næsta mánuði á undan. undanfarin ár hefur rekið bifreiða- stöð í Borgamesi. Rekur félagið nú bifreiðastöðina í Borgamesi með 10 bifreiðum til fólks- og vöm- flutninga. Stafar það af verðhækkun á rafmagni og gasi. Rafmagnshækkunin var að vísu orðin áður, en rannsókn á því, hverju hún næmi, ekki lokið fyrr en nú. Elds- neytis- og ljósmetisvísitalan var 257 í aprílbyrjun, og er það 9% hærra heldur en í aprílbyrjun í fyrra. Fatnaðarvísitalan hefur hækkað um 5 stig frá næsta mánuði á undan, og stafar það af verðhækkun á ytri fatnaði. Var hún 266 í aprílbyrjun eða 11% hærri heldur en í aprílbyrjun i fyrra. Húsnæðisvísitalan hefur hækkað um 1 stig frá næsta mánuði á undan vegna hækkunar húsaleiguvísitölu. Hún er nú 12% hærri heldur en um sama leyti í fyrra. Vísitalan fyrir liðinn „ýmisleg útgjöld" er óbreytt frá næsta mánuði á undan. Var hún 252 í aprílbyrjun þ. á. eða 13% hærri heldur en um sama leyti í fyrra. SAMVINIVATV 4. hefti apríl 1944. Útgefandi: Samband ísl. samvinnufélaga Ritstjórn: íónas Jónsson. Guðlaugur Rósin- kranz. Jón Eyþórsson. Sími: 5099 Afgreiðslustjóri: Konráð Jónsson Sambandshúsið, Reykjavík. Sími: 1080 Verð árgangsins, 10. hefti kr. 15,00 Forvígismenn. Helgí Bergs Helgi Bergs forstjóri Sláturfélags Suðurlands er fæddur að Fossi á Síðu 27. júlí 1888. Helgi er sonur Helga Bergssonar bónda að Fossi og konu hans Höilu Lárusdóttur. Helgi ólst upp í foreldrahúsum. Stundaði nám við Verzlunarskóla íslands í tvo vetur og lauk þar prófi 1909. Fór síðar námsferð til útlanda. Helgi hóf starf sitt hjá Sláturfélagi Suðurlands haustið 1909 sem skrifstofumaður. Varð forstöðumaður Matardeildarinnar 1914 og gegndi því starfi til 1916, að hann varð féhirðir og aðalbók- ari félagsins. Þessum störfum gengdi Helgi þar til hann varð for- stjóri félagsins 1924, er Hannes Thorarensen lét af störfum. Helgi Bergs hefur átt sæti í opinberum nefndum og hefur verið í kjötverð- lagsnefnd frá því hún var stofn- uð. Helgi Bergs er kvæntur Elínu Thorstensen, dóttur sr. Jóns Thor- stensen, fyrrum prests á Þingvöll- um. 130

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.