Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1947, Síða 3

Samvinnan - 01.04.1947, Síða 3
 - I. I Hekla fim mtndaginn 17. april, séð frá suðri. Toppgigurinn og axlargigurinn nyjrðri gjósandi. — Fjallið er heitt, breeðir af sér nýsnœvið. H E K L A: Þjóðin undrast hamfarirnar - óttast hermdarverkin TJ1ÍK.LUGOS hafa jafnan þótt tíð- T induni sæta á landi liér. Svo varð erin hinn 29. marz, er það spurðist, að eldur væri uppi í Heklu, enda Jiugðu niargir, að Loki mundi bundinn °rjufandi fjötri undir bjargstuddum r°tum fjallsins. Allt dægurþras þagn- aði Urn sinn. Mönnurn skildist, að Itér 'leru þeir atburðir að gerast, er víða utyndu spyrjast og orkað gætu fast á ‘l r°nni þjóðarinnar. Laugardagsmorguninn 29. marz var leiðskírt veður um Suðurland, með ':eSTÍ norðaustanátt. Um fótaferðar- tllUa> kl. nærri 6i/,, sá hvítleitan gufu- luókk leggja upp af Heklutindi. ^jUkkaði liann skjótt og dökknaði. v ■ 6.47 fannst jarðskjálftakippur um uðurland og allt til Faxaflóa að j^unsta kosti, en eftir það virðist gos- ila-fa komizt í algleyming. Opnaðist Pálmi Hannesson rektor rit- ar um fyrstu þrjár vikur Heklugossins, fyrir Samvinnuna þá gígaröð eða samfelld eldsprunga eftir endilangri fjallsegginni, en bik- svartir bólstrar, hlaðnir vikri og ösku, stigu upp þaðan líkt ogveggur.Móleitt gosmistur breiddist um allar lágsveitir Suðurlands og náði upp fyrir miðjar hlíðar fjallanna, en yfir það reis hinn firnamikli mökkur hátt upp á Irimin- livolfið líkt og ægileg kynjamynd, gin- livítur efst, undir sól að sjá, en svartur hið neðra og varpaði koldimmum skugga langt til norðvesturs. Gosdun- ur lieyrðust víða um land, allt til Vest- fjarða og út í Grímsey, að því er talið er. Gosmökkinn lagði líkt og svartan fána suður um Fljótshlíð austanverða og F.yjafjallasveit, en síðan á haf út. Gerði þar svo dimmt, að ekki sá fyrir gluggum í húsum inni í fullan klukku- tíma, en vikurhríðin dundi á þökum líkt og stórgert hagl. í fyrstu féll gróf- ur vikur, mógrár að lit, og dreifðist hann meira út til austurs og vesturs en hinn svarti sandur og aska, er síðar féll. Öskuifallið var langmest fyrsta klukkutímann, en fór síðan rénandi framyfir dagmál. Eftir það féll ekki aska til neinna muna. Á þessum tíma var vindátt stöðug. Rak öskuna því lítið til hliðar, heldur fram eftir geira, er stefnir frá fjallinu skemmstu leið til sjávar. í Fljótshlíð nær öskusvæðið frá Hlíðarenda og inn fyrir Þórólfsfell, en undir Eyjafjöllum milli Skógaár og Markarfljóts. Utan þessa svæðis féll að vísu nokkur aska, 3

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.