Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1947, Qupperneq 6

Samvinnan - 01.04.1947, Qupperneq 6
Norski samvinnuskolinn, hið nýja, glcesilega menntasetur norskra samvinnumanna, Skólastjórinn, Sverrir Nielsen, t. v. ORNSTEINNINN að samvinnu- skóla Norðmanna var lagður 29. júní 1939. Og á næstu 9 mánuðum var húsið reist og fullgert. Skólinn stendur á skógivöxnum ási með fagurri útsýn yfir Barumbyggð, 15 km. vestur frá Oslo. Lengi hafði það verið hinn stóri draumur inorskra samvinnumanna að koma upp samvinnuskóla. í upphafi var það aðeins „Fata morgana", eins og forstjóri sambands norskra samvinnufélaga orðaði það í ræðu sinni við skólavígsluna. En smátt og smátt skópu árin og mannlegar at- hafnir drætti veruleikans í hina fjörru sýn draumsins. Og á stjórnarnefndar- fundi í N. K. L. —- Norges Kooperative Landsforening — sem haldinm var 25. maí 1935, var tekin ákvörðun um það, að byggja samvinnuskóla og hafinn undirbúningur að framkvæmdum. Þegar skólinn stóð fullgerður á út- mánuðum 1940, var byggingarkostn- aðurinn 612 þús. kr. Þá var ákveðið að Frá setustofunni. hann skildi taka til starfa um hvíta- sunnuleytið það sama ár. En það ganga ekki ávallt allir hlutir eftir óskum eða samkvæmt áætlun. 9. apríl, örlagadaginn mikla, bar í milli, og þar með var Noregssaga næstu ára mörkuð einræði, kúgun og þrældómi í stað framþróunar og vax- aindi félagsþroska, innan og út frá ung- um og frjálsum samvinnuskóla. Þrátt fyrir hin skiptu sköp fékk skólahúsið strax hið þýðingarmesta hlutverk í ströngu varnarstríði hins norska þjóðarsóma. Það varð barnaheimili stríðsárin öll, verndartré 70 ungra borgara á villtri úlfatíð nazismans. Barnaheimilið stóð áður í nágrenni flugvallar eins, og því á stríðstímum í stöðugri sprengju- hættu. Þess vegna voru börnin flutt þaðan burtu. Nazistarnir gerðu fleiri tilraunir til þess að fá samvinnuskól- ann til sinna þarfa. En með lagni og hyggindum tókst forstöðukonu barna- heimilisins að bægja þeim í burtu aft- ur í hvert skipti, sem þeir knúðu á og vildu festa þar hönd á húsinu. Það var mikið happ fyrir hlutaðeig- endur samvinnuskólans, að missa hann ekki á vald hinna þýzku dáta. Og það var mikið gæfumerki, að hann skildi verða skjöldur og skjól hinnar yngstu kynslóðar á skelfingartímum hernáms- ins. Á síðastliðnu hausti flutti barna- heimilið til sinna fyrri stöðva og fyrri- partinn í vetur var unnið að lagfasr- ingu og frágangi á skólahúsinu, svo að þar gæti hafizt liin fyrirhugaða skóla- starfsemi samvinnumanna. Skólahúsið er byggt með þeim hætti, að kjallarinn er steinsteyptur, en að öðru leyti er húsið hlaðið úr rauðbrún- um múrsteini. — Skólinn er vinkil- bygging. Auk kjallarans eru tvær hæð- ir og annarri álmunni er hin þriðja hæðin — einn stór salur. Hver hæð fyr- ir sig, og eins 'kjallarinn, eru 800 m • Utan íbúða skólastjórans og umsjónar- mannsins, eru í skólanum 21 nemenda- herbergi, sem rúma tvo nemendur hvert. Ein allstór kennslustofa og tvo minni herbergi fyrir námsflokka. Bókasafn, setustofa, arinstofa, rúmgóð- ur matsalur, eldhús með öllum nýtízku raftækjum auk ainnarra nútíma þæg- inda o. fl. o. fl. Innanstokksmunir nemendaher- bergjanna eru sínir með hverju móti- Þeir eru gjafir frá samvinnufélögum 1 hinum ým,su landshlutum og bera hverjir stíleinkenni sinna byggða- Hvert herbergi ber nafn þeirrar byggðar, sem hefur sett það upp, °o Peir ætla að IIIIIIIIIIMIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII III1411 M II MM II1111II Jónas Baldursson segir í þessari grein frá hinum nýja Samvinnuskóla Norðmanna. Þar er starfs- mönnum samvinnufélaganna kennt að mæta fjöl- breyttum viðfangsefnum hins daglega lífs, með nýstárlegum kennsluaðferðum. IMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM 6

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.