Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1947, Side 14

Samvinnan - 01.04.1947, Side 14
• • SLEÐAFOR AVETRARDEGI Myndir og frásögn um erfiðleika bændanna fyrir norðan og austan af völdum mestu snjóþyngsla í tíu ár liefur snjóað drjúgum í Bretlandi í vetur. Þar hefur fennt fé í stórum stíl, samgöngur hafa stöðvast og bæir einangrazt. Vöð vitum Jretta allt gjörla, því að fréttaþjón- usta Lundúnaútvarpsins er með ágætum og við njótum hennar daglega. En það hefur líka snjóað á íslandi. Um gjörvallt Norður- og Austurland kyngdi niður snjó frá því í febrúarbyrjun og til marzloka. Þetta er mesti snjóavetur í þessum landsfjórðungum síðan 1936 og erfiðleikarnir, sem snjórinn og samgönguleysið hafa skapað fólkinu á þessum svæðum, eru miklir. Þeirra heyrist þó sjaldnar getið í frétt- um en vandræðanna í Bretlandi. Um sunnan- og vestanvert landið hefur verið snjólaust að mestu í allan vetur og fjall- vegir á þeim slóðum hafa verið greiðfærir. En norðan lands og austan var gjörsamlega ófært bifreiðum innan sveita og sums staðar á Norðausturlandi var fannfergið svo mikið. að ekki varð brotist með hesta bæjarleið. 14 Fólkið í þessum héruðum hefur átt við margvísleg vand- ræði að etja af völdum snjóþyngslanna, einkum þó bænd- urnir. Aðdrættir allir hafa verið miklum erfiðleikum bundnir, og stutt bæjarleið hefur reynst erfið og löng, er þurfti að draga björg í bú og brjótast með hest og sleða i kaupstað. í Eyjafirði tók af bifreiðafæri um mestan hluta héraðsins í febrúar og marz. Snjóýtur unnu mikið verk að halda veg- inum opnum ,en þar kom, að snjógarðarnir við vegbrúnir voru orðnir svo háir, að ekki var fært að ryðja meiru til hliðar og bifreiðar stöðvuðust. Þá varð að grípa til hestsins og sleðans. Mjólkin þurfti að komast á áfangastað. Það var nauðsyn fyrir búskapinn og fyrir neytendurnar. Dag eftir dag var mjólkurbrúsunum raðað á sleðann og brotist áfram yfir ófærðina. Mjólkinni var komið á rnarkað og sleðarnir færðu björg í bú heim aftur. En þetta var erfitt verk. Leið-

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.