Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1947, Page 30

Samvinnan - 01.04.1947, Page 30
ala önn fyrir sér. Þú veizt að til er líka nokkuð það, sem kallast stolt. . . .“ Sigbritt leit spyrjandi á hann. „Hvað kemur það þessu máli við?“ „Talsvert mikið. Maður getur orðið langþreyttur á því að bíða og bíða eftir þeirri, sem vill hann ekki. — Þú hefur haft nægilegan umhugsunarfrest til að ákveða þig, en enn- þá hefur þú hvorki sagt já eða nei. Þú getur það víst raunar ekki heldur. En það er alls ekki ætlun mín að hengja mig þar fyrir eða verða piparsveinn alla ævi. Fái eg ekki þá, sem eg vil, þá get eg sjálfsagt fengið einhverja, sem vill mig, og sé hún góður félagi, sem gott er að lynda við, bæði í blíðu og stríðu, þá getur ástin líka vaknað með tíð og tíma. Ann- að eins hefur skeð.“ Hann hafði horft beint fram undan sér, meðan hann lét þessa dælu ganga, en nú leit hann á Sigbritt. Hún gekk álút og lét ekki sjá í augu sér. „Eg get aldrei lagt mig allan fram við þetta verk, sem eg er með, fyrr en eg hef fundið mér félaga," hélt hann áfram. „Þess vegna koma að mér köst, er eg vildi helzt fleygja öllu frá mér.“ Sigbritt sagði ekkert, og um stund gengu þau þegjandi. Svo hóf Einar máls að nýju: „Eg veit, hvernig á þes.su stendur. Það er sama, hvar mað- ur fer eða flækist utan æskuheimilisins, hvort heldur er í höll eða hreysi, — maður festir þar ekki yndi, nema einhver sé þar, sem manni er vel við. Hið minnsta hreysi getur orð- ið unaðslegt, ef einhver á þar heima, sem manni þykir vænt um. Eg man þá tíð. . . . Mér þótti einu sinni vænt um stúlku. — Það er ekki svo að skilja, að eg kærði mig nú um að eiga hana, og það var hvorki hreint eða vistlegt heimá hjá henni. En eg kunni svo dásamlega vel við mig í kofanum! Mér fannst hvert tangur og tetur, sem þar var, hreinasta þing, af því að það var í kringum hana. Og í annað skipti. ..." „Hvað liefur þú eiginlega verið oft ástfanginn?" spurði Sigbritt í hvössum róm. „Úr því að þú hefur svona mikla reynslu, ættir þú að vera fær í allan sjó.“ „Það er sitt hvað að vera skotinn og vera ástfanginn,“ sagði Einar. „Menn eru sífellt að verða hálfskotnir annað slagið, þangað til þeir vita, hvað það er að verða ástfangnir. Þá fer að fara af gamanið." Þau voru komin heim undir Hlíð. Sigbritt dró hand- legginn að sér og nam staðar. „Eg veit ekki, hvernig því er varið,“ sagði hún kvíðafull, „en eg er hálfhrædd við að koma að Hlíð í dag.“ „Þá átt þú engan elskhuga þar!“ sagði Einar öruggur. „Bull! Eg átti alls ekki við það,“ sagði Sigbritt og gekk heim að bænum. 22. KAFLI „Hvað er orðið af Anitu?" „Hver þremilinn getur stúlkan hafa gert af sér?“ sagði Kari. „Hún hefur líklega farið að kveðja á bæjunum í kring, en hún hefði nú getað látið vita af því. —■ Nema hún hafi hlaupið í felur til þess að þurfa ekki að fara.“ Vagninn stóð á hlaðinu, og folinn hafði verið sóttur út í haga og stóð með aktygjum í hesthúsinu. 30 í þessum svifum kom Sigbritt. Einar stóð úti á hlaði hjá piltunum, sem hímdu þar daufir í dálkinn og óánægðir, en gátu ekkert aðhafzt. „Koma Blomshjónin hingað í dag?“ spurði Sigbritt, jafn- skjótt og hún haðfi heilsað. „Nei, ekki það eg veit,“ svaraði Kari stuttaralega. „En Hjálmar er að sækja dýralækninn og sýslumanninn, — þ° að hann hefði ekki þurft að koma, hefði eg vitað það fyrr, sem eg veit nú.“ „Hvað er það nú?“ „Jú, nú veit eg að minnsta kosti, að það e r Aníta, sem tók skeiðina. Skeiðina fann eg í körfunni drengsins. Þar hafði hún falið hana.“ „Nei, hvað heyri eg!“ sagði Sigbritt hissa. Hún hafði aldrei fest trúnað á, að Aníta hefði stolið einu né öðru. „Jú, svo sannarlega sem eg stend hér. Og nú hef eg loks- ins rekið hana úr vistinni. Það er að segja, — farin er hún ekki ennþá, því að hún hefur ranglað eitthvað, en þarna stendur Helmer og bíður með vagninn.“ Meðan Kari rausaði þessu úr sér, hafði Sigbritt náfölnað, og ótti skein úr augum hennar. Hún gekk til Kari og tók 1 handlegg hennar. „Hvað ertu að segja? Hefur þú látjð Anítu fara?“ Hún hljóp að glugganum og kallaði á Einar. „Komdu inn,“ hrópaði hún æst. „Hér er ekki allt með felldu, Einar!“ Einar kom þegar inn ásamt piltunum. „Kari húsfreyja segir, að Aníta sé orðin uppvís að þjófm aði — og. . . .“ tók Sigbritt til máls. „Eg hef þegar heyrt ótíðindin," sagði Einar. — „Og nú er eg hræddur um, Kari húsfreyja, að þér munið sjá eftir þvl’ sem þér hafið gert. Aníta kom til mín rétt áðan. . . .“ Þ''1 næst skýrði hann frá því, sem þeirn hafði farið á milli. Kan hneig niður á stól, öskugrá í andliti. „Guð minn góður, hún hefur þá fyrirfarið sér!“ æp11 Agnes háskælandi. „Þegi þú, skæludósin þín!“ hvæsti Kari. „Þú skalt ekk1 reyna að gera illt verra! Þess háttar fólk, sem Aníta, fyrirfe1 sér ekki, — það hefur önnur úrræði." „Anita er ekki „þess háttar fólk“ fremur en þér eða eg> sagði Einar svo grafalvarlega, að alla setti hljóða. „Hvernig skeiðin hefur komizt þangað, sem hún fannst, skal eg láta ósagt, en hitt er eg viss um, að Aníta hefur ekki tekið hana’ — Og svo er hún rekin umsvifalaust burtu við skömm vegalaus og allslaus. . . . Getur ekki hugsazt, að skeiðin haf1 blátt áfram dottið ofan í körfuna?" Sigbritt hrökk við, og henni fannst hún ætla að hníga niður. Hún greip í bríkina á eldhúsb.ekknum og vætti þurf' ar varimar með tuntmbroddinum. O „Kari mín....“ sagði hún buguð, — „nú dettur mé1 nokkuð í hug. Eg rankaði við mér, þegar Einar spurði. • • • þarna á dögunum, þegar skeiðin hvarf. . . . Eg hafði mataé1 drenginn með einni skeiðinni, — eg tók hana á borðinu og þvoði hana. — Svo tók hann skeiðina og var að leika sér að henni, — og þá kallaðir þú — eða einhver á mig.. . . Gæ11 ekki skeð. ...? Gæti hann ekki hafa misst skeiðina? Eg steingleymdi henni. ..."

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.