Samvinnan - 01.06.1950, Blaðsíða 9
um 100 vörutegundum a£ venjuleg-
um skömmtunarvörum og nýlendu.-
vörum. Einn morgun, þegar við erum
á leið til Ballater, segir Mr. Nichol-
son, að hann sé að hugsa um að láta
mig vera með vögnunum í þrjá daga.
Eg tek þessu með þökkum, mér er for-
vitni að kynnast þessari verzlunarað-
ferð, og þá fæ ég tækifæri til að sjá
betur sveitirnar.
Söluvagninn er kominn að búðar-
dyrunum; vagnstjórinn og eg flýtum
okkur að fylla hillurnar af öllum þeim
vörum, sem venjulegt er að hafa, og
svo er haldið at stað.
Það er ekið með ógnarhraða, því að
Mr. Dennis var flugmaður í stríðinu
og hann virðist enn tæplega kominn
niður á jörðina, og fer því í loftköst-
um. En brátt neyðist hann til að hægja
á sér, og við verðum að fara lélega
krókavegi heirn að bæjunum. Hús-
freyjurnar koma þjótandi með körf-
una, Dennis setur niður búðarborðið
og fer að verzla, eg þríf skærin og
skömmtunarmiðana, því að hér er
annar Elís Ó. og nógir pappírar. Marg-
ar húsfreyjurnar láta í ljósi ánægju
sína yfir því að fá söluvagninn heim;
það eru þægindi, sem þær vilja ekki
tapa. Við Dennis þykjum því ágætir
gestir og njótum þess. Við komumst
því stundum ekki lijá því að koma í
eldhús og drekka bolla af te og fá
fleira sælgæti. Ekki þurfa íslenzkar
húsmæður að öfunda stallsystur sínar
í þessum hluta Skotlands af þægind-
unum, því að mér sýnist þau vera
harla lítil, að minnsta kosti í eldhús-
unum; víða eru eldstæðin opin og
ketillinn er hengdur í krók yfir. Ef til
vill hafa skozkar húsmæður ekki átt
neina Aðalbjörgu, Rannveigu eða
Kristínu, sem sjá alveg um heimilis-
liagfræðina hér heima. A meðan
Dennis heldur áfram verzluninni, fæ
eg tækifæri til að skreppa út á akur-
inn og tala við bónda, senr er að
plægja í hryggi fyrir kartöflur. Hann
tekur upp vasaklútinn og þurrkar af
sér svitann, og virðist vera feginn að
fá þennan Grænlending í skákina og
heyra um stéttarbræður sínar á Is-
landi. Það kemur í ljós, að liann býr
við sömu erfiðleikana og við. Skozka
landbúnaðinn vantar vélar, miklu,
miklu meira af vélurn. „Eg er orðinn
nærri sextugur,“ segir hann, ,,og alveg
uppgefinn að keyra liestana.“ Svo
bendir liann mér á nýjan Ferguson-
traktor á akri nákrannans, með eitt-
hvert ferlíki í eftirdragi. „Heldurðu
að það sé munur “ St o hottar hann á
hestana sína, og við Dennis höldum
okkar leið.
VIÐ ökum í gegnum gamla, stór-
vaxna skóga, og landslagið er
hrikalegt. Allt í einu sé ég nokkuð,
sem vekur undrun mína. Næstum lieil
fjallshlíð, sem fyrir fáum árum var
þakin þykkum skógi, stendur nú nak-
in og ber. Þetta finnst mér óhugnan-
leg sjón. Það er eins og maður sjái yfir
fallna herdeild á orustuvelli. Hnyðjur
og rætur standa upp úr jarðveginum,
livítar og berar, eins og liðin lík.
„Hvernig stendur eiginlega á þessu?“
segi ég við félaga minn. „Því er farið
svona hroðalega með skóginn? Því er
hann ekki grisjaður, fremur en að
gjöreyða honum?“ En það stendur
ekki á svarinu: „Stríðið, stríðið! Það
var of seint að grisja hann; nokkur
hundruð manna frá Nýja-Sjálandi
voru fengnir til að höggva hann; þeir
voru látnir byrja á öðrunr endanum,
það var fljótlegra; svo var timbrið
notað í hernaðinn, til dærnis í skip.
Nú er því mikið af þessum skógi á
hafsbotni." Þannig hefur þetta fagra
hérað greitt sína ægilegu skuld til
stríðsins. En við rústirnar standa
sveitabæirnir, og nú er umhverfis svið-
in jörð, þar sem áður var gróandi skóg-
arlíf. Miklum fjárliæðum mun verða
varið á næstunni til að græða þessa sár,
og er raunar nokkuð byrjað á því.
Svo er haldið áfram, undirlendið
verður rneira, skógurinn vex og bæja-
raðirnar þéttast, \ ið erum að nálgast
konungshöllina. Umhverfis eru um
sextíu konungsjarðir, og landsetar
kóngs verzla rnargir \áð kaupfélagið.
Ferðalagið sækist því seint, en því bet-
ur gengur verzlunin, og það hækkar
vel í peningakassanum. Tveggja ára
ljóshærður hrokkinkollur veifar og
veifar til okkar, hann kann sig, þessi
snáði, það er auðséð að við erum að
koma í kóngsgarð. Og allt í einu blas-
ir svo við þessi gamla, virðulega kast-
alabygging, nteð öllum sínum turn-
um, útflúri og bogagöngum. Steingrá
að lit og fornfáleg fellur hún vel inn
í mikilfenglegt landslagið, því að hér
eru fjöllin svipmikil, há, svört og nak-
in, en næsta umhverfi fjölskrúðugur
skógur og grænar grundir, en því mið-
ur er ekki tími til langdvalar, og við
kveðjum kóng og prest, en loks þegar
við höfum lokið dagssölunni, förum
við svolítinn útúrkrók og lítum á
whiskyverksmiðju. Þar er enginn
hættutími, því mjöðurinn mallar dag
og nótt. Einn starfsmaður þar, sem er
hálfur eða vel það, sýnir mér, hvernig
allt gengur til, frá því að kornið kem-
ur inn á þurrkloftin og þar til hið
skozka wliisky rennur eins og lækur í
ámurnar, tilbúið að seytla út í æðar
þegnanna, livort sem það eru nú hin-
ar hárfínu æðar kónga og stórhöfð-
ingja eða rónanna í Hafnarstrætum
allra landa. Hér eru framleidd 1600
gallón á viku fyrir 16.000 pd. sterling
eða 416.000 ísl. krónur, og þegar okk-
ur er sagt, að lagerinn sé að verðmæti
2.000.000 sterlnigspund, þykir okkur
nóg komið af svo góðtt og kveðjum
alla þessa brennivínsberserki og liöld-
um heirn eftir mikinn verzlunardag.
ANNIG líða dagarnir í þessum
skozku skógarþorpum eins og
mismunandi ævintýri. Þó dvelst mér
heldur lengur en ráð var fyrir gert;
framundan eru aðalfundir kaupfélags-
ins, einn í hverju þorpi, og Mr.
Nicholson segir að eg fari ekki fet,
fyrr en eg sé búinn að fara með sér á
þessa fundi, og auðvitað hef ég áhuga
fyrir að konra á slíkar samkomur og
stenzt ekki freistinguna, en frásögn af
þessum fundarhöldum gæti verið önn-
ur saga.
Eftir fimm vikna dvöl meðal vina í
þessu kaupfélagi er ákveðið, að ég fari
aftur til Glasgow og til dvalar í öðru
félagi. Eg kveð þetta velgerðaríólk mitt
með hálfgerðum söknuði og lield nú
út í óvissuna á ný. Einn sólbjartan
júnímorgun fylgir Mr. Nicholson og
fjölskylda hans mér á járnbrautarstöð-
ina í Aboyne. Lestin ryðst inn á stöð-
ina, og brátt sígur hún af stað. Það er
veifað og veifað. Hvenær sjáumst við
aftur? Það er rödd framtíðarinnar,
sem svarar því.
ÞRIÐJA OG SIÐASTA GREININ
í þessum greinaflokki Finnst Krist-
jánssonar mun birtast í næsta hefti.
Fjallar hún um Glasgow og Kelwin-
grow, frægan skemmtistað í og Kelvin-
verksmiðjuborgarinnar, sem er ein
helzta menningarmiðstöð Skotlands.
9