Samvinnan - 01.06.1950, Blaðsíða 31
r
Samvinnuritin eru gagnleg hverjum þeim, sem ætlar að
taka virkan þátt í starfi kaupfélaganna
Bókaútgáfan NORÐRI hóf útgáfu bókaflokksins „Samvinnurit“ árið 1948. —
Alls hafa fimm bækur komið út í þessum bókaflokki.
Þau samvinnurit, sem þegar eru komin út, eru:
FJÁRHAGSLEGT LÝÐRÆÐI eftir Anders Öme
ATVINNULÝÐRÆÐI eftir Folke Fridell
Þetta er fyrsta og annað samvinnuritið prentað í einni bók. Eru þetta stuttar, snjallar, efnis-
ríkar og vel skrifaðar ritgerðir um þjóðskipulagsmál og nokkur félags og efnahagseinkenni sam-
vinnufélaganna. — Verð kr. 22.00 ib.
SAMVINNA BRETA í STRÍÐI OG FRIÐI
Bók þessi er eftir hinn gamalkunna sænska íslandsvin, Thorsten Odhe, sem m. a. hefur skrifað
bók um Island, og er nú framkvæmdastjóri Alþjóðasambands samvinnumanna.
Bókin er glögg og skemmtileg frásögn af ferð höfundarins um Bretland á stríðsárunum. Greinir
hún m. a. frá heimsóknum hans hjá mörgum brezkum samvinnufélögum, en einnig er þarna að finna
fróðleik um sögu samvinnufélaganna í Bretlandi. — Verð kr. 20.00 ib.
HANDBÓK FYRIR BÚÐARFÓLK
Þetta er bók, sem hver einasti starfsmaður kaupfélaganna þarf að eiga, lesa og læra. Þeir Gísli
Guðmundsson, alþingismaður, og Þorvarður Ámason, verzlunarstjóri, þýddu og endursögðu þetta
rit úr sænskum og norskum bókum. Þama er að finna sérstaklega haldgóðar upplýsingar um rekstur
búða. Bókin er prýdd fjölda mynda. — Verð kr. 35.00 ib.
ÞEIR HJÁLPUÐU SÉR SJÁLFIR
Bókin er sjálfsævisaga írska samvinnumannsins Patrick Gallagher, sem með þrautseigju sinni,
bjartsýni og dugnaði, hjálpaði samborgurum sínum til þess að hjálpa sér sjálfir með því að hjálpa
hver öðrum. Þetta er óvenju skemmtileg og hrífandi bók, og jafnvel spennandi eins og hinar beztu
skáldsögur. — Verð kr. 30.00.
SAMVINNUFÉLÖG í NORÐURÁLFU
Jón Sigurðsson frá Yztafelli og Gísli Guðmundsson alþingismaður, tóku þessa bók saman með
hliðsjón af ýmsum erlendum samvinnubókum og ritgerðum. Bókin er haldgott yfirlit yfir þróun
samvinnunnar og samvinnuhreyfingarinnar frá upphafi og fram á vora daga. — Verð kr. 32.00.
Samvinnumenn, munið að
Samvinnuritin eru gagnleg hverjum þeim, sem ætlar að taka
virkan þátt í starfi kaupfélaganna.
Samband íslenzkra samvinnufélaga, Reykjavík