Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1952, Síða 4

Samvinnan - 01.12.1952, Síða 4
Arabisk móðir i Jerúsalem heldur á barni sinu og ber brauðkörfu á höfðinu samtimis. Við höfum nýlokið næturferð frá Damaskus, sem vel hefði getað kost- að okkur lífið. Einhvers staðar í eyði- mörkinni situr ekillinn ökkur hjá bílnum sínum, sem liggur öxulbrot- inn ofan í skurði. Við þrengdum okk- ur inn í jeppann, sem farangur okk- ar var fluttur í. Eltir snigilliæga ferð og langar tafir í landamæraþorpum komumst við til borgarinnar helgu. Við erum í elzta hluta Jerúsalem- borgar, sem féll í hendur Aröbum eft- ir Palestínustríðið. Nú neyðumst við til að stíga út úr jeppanum, því að jafnvel hann kemst ekki ferða sinna um þröngar tröppugöturnar. Við tök- um eins mikið af farangri með okk- ur og við getum borið, og röltum hægt upp Via Dolorosa í morgunskím- unni. Það er dauðaþögn í götunni, nema -hvað fótatak okkar bergmálast, og enn ekki annað ljós en dauft mána- skin. Sérkennileg tilfinning grípur okkur, er við göngum á milli drunga- legra múranna. Ævi Jesú frá Nazaret, sem við höfðum lært um þegar í bernsku, og þrátt fyrir allt var fyrst og fremst austurlenzkt ævintýr í huga okk- ar, verður nú skyndilega og sérkenni- lega lifandi fyrir hugskotssjónum okk- édin nótt oa einn daaue i derúóalem Cjaddauír óhiLir á miiii ^ömiu ot^ nýju. lor^arliÍutanna Texti og myndir eftir ADRIANE WAHLGREN (N. E. P.) Skammt frá Golgata snúum við inn í liliðargötu og komum síðan út á markaðstorg með óvenjulegum brunni frá tímum Rómverja. Það er kyrrt sem í gröf á torginu, þar til við allt í einu heyrum fótatak nálgast. Arabi einn birtist, klæddur í einkennisbúning eyðimerkurhermanna, með brugðna skammbyssu. Tuttugasta öldin minn- ir þannig á sig í borginni lielgu. Gistihús okkar er gamalt og virðu- legt, með því að það er byggt á rúst- um hallar Heródesar. Hluti af tígul- þöktum innri múr húsagarðsins hefur varðveizt, svo og nokkur múrbrot önnur. Við ljós olíulampa klifrum við upp háar tröppur, slitnar undan fót- um kynslóðanna, unz við komumst til herbergja okkar. Okkur verður þó ekki svefnsamt. Langdregið, skerandi óp rýfur þögn- ina, og annað kemur á eftir. Eftir nokkrar mínútur heyrist enn kór af væli og öskrum. Það virðist svo sem allir kettir Jerúsalemborgar séu sam- an komnir í garði Heródesar þessa nótt. Glugga er lnundið upp og eftir nokkur vel valin orð er einhverju ar. Þannig er um að litast við Damashushliðið i Jerúsalem i dag.

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.