Samvinnan - 01.12.1952, Side 17
ekki hægt að gera viðhlítandi grein
fyrir starfi því, er stöðugt á sér stað
í skrifstofunni, en bezta mynd af
þeirri starfsemi býst ég við að gefa
með því að greina stuttlega frá starfs-
skipulaginu innan stofnunarinnar.
Skrifstofunni er skipt í 9 deildir,
sem svo skiptast aftur á ýmsan liátt
í undirdeildir, og eru deildirnar þess-
ar:
Deild málefna öryggisráðsins, sem
þjónar öryggisráðinu, eins og nafnið
bendir til, undirbýr störf þess og að-
stoðar það formlega.
Deild hagfrœðilegra mála er önnur
deildin, og skiptist hún í undirdeildir,
er fjalla um tolla og skatta, samgöngu-
og flutningamál, hagskýrslur, efna-
hagslega þróun og jafnvægi í heimin-
um.
Félagsmáladeildin er sú þriðja, og
skiptist hún innbyrðis í deild, sern
fjallar um mannréttindi, deild, er
rannsakar félagslega velferð, deild, er
berst gegn eiturlyfjum, deild, sem
fjallar um íbúa jarðarinnar, og enn-
fremur deild sérfræðinga í landakorta-
gerð.
Fjórða höfuðdeildin er svo gæzlu-
verndardeildin, er gegnir svipuðu
hlutverki undir gæzluverndarráðinu
og öryggismáladeildin undir öryggis-
ráðinu. Hún safnar og upplýsingum
frá ósjálfstæðum löndum í heiminum
og skilar um þau skýrslum til gæzlu-
verndarráðsins eða allsherjarþingsins.
Ennfremur hefur hún haft nokkurs
konar umsjón með gæzluverndarlend-
um, og nægir í því sambandi að minna
á fyrrverandi nýlendur ítala, Eritreu,
Libyu og ítalska Somaliland.
Fimmta deildin er deild tæknilegr-
ar aðstoðar. Er þetta yngsta deildin,
en þó líklega sú árangursríkasta sem
stendur, því að tæknilegrar aðstoðar
gætir nú í æ ríkari mæli innan Sam-
einuðu þjóðanna. Hinar ýmsu þjóð-
ir fara fram á aðstoð, og kemur til
kasta þessarar deildar að velja hæfan
mann, fá hann til starfsins og undir-
búa allar aðstæður. Heyrði ég oft
hinar furðulegustu sögur um það, hve
miklir erfiðleikar eru þessu samfara.
Eitt sinn mælti til dæmis ein grand-
varasta ríkisstjórn Evrópu sérstaklega
með manni sem færum siglingafræð-
ingi til aðstoðar ríki í Suður-Ameríku,
en þegar til kom reyndist maður þessi
(Framh. á bls. 28)
HirLÍr nýju. fundarsalir sameinuðu \bjóðanna
Hér sést allsherjarþing sameinuðu þjóðanna éi fyrsta fundi sinum i hinum nýju húsakynnum i Neiv
York. Fjöldi frccgra húsameistara frá mörgum löndum stjcmuðu smiði bygginganna, og hafa þær
vakið mikla athygli, enda fagrar og sérstæðar.
Hér sést hinn nýi fundarsalur öriggisráðs SÞ og sitja fulltrúamir við skeifulagað borðið, en að~
stoðarmenn þeirra fyrir aftan þá. Á vegg sést hið mikla málverk, sem Norðmenn gáfu öryggisráðinu,
en það var málað af Per Krogh og afhen af Oscar Torþ, forsætisráðherra Noregs.
17