Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1952, Side 26

Samvinnan - 01.12.1952, Side 26
það var eins og hún hlægi að þyngd- arlögmálinu, er hún nálgaðist miðju. Að lokum var það kapphlaup við dauðann. „Ég er svo gamall,“ sagði Michelangelo, „að dauðinn togar í kápulafið mitt.“ En áður en hann dó, 89 ára gamall, sá Michelangelo Buon- arroti verki sínu — stærstu og falleg- ustu lofthvelfingu heims — að fullu lokið. Uppljómuð, fyllt bergmáli org- anleiks og kórsöngs, geymir hún, ef nokkuð er þess megnugt, síðasta boð- skap risavaxinnar sálar hans. Bláa perlufesíin (Framh. af bls. 9) enn upp minningarnar um það, sein hann hafði misst. Þessi kvöl hans gerði honum ókleift að taka þátt í gleði fólksins, sem var að gera jóla- innkaupin. Næstu tíu daga var mikið að gera. Símalandi konur komu í hóp- um, þreifuðu á gersemunum og reyndu að pranga. Þegar loks síðasti viðskiptavinurinn var farinn á að- fangadagskvöld, var sem fargi væri af honum létt. En fyrir hann var þó ekki öll nótt úti . . . Dyrnar opnuðust og ung kona gekk inn í búðina. Honum brá, því að hon- um fannst hann þekkja hana, en þó gat hann ekki munað, hvar eða hve- nær hann hefði séð hana. Hár henn- ar var ljóst — augun blá. An þess að segja orð dró hún upp úr tösku sinni pakka, sem purpurapappír hafði verið tekinn utan af. Síðan lagði hún bláu perlufestina glampandi fyrir hann. „Er þetta úr verzlun yðar?“ spurði hún. Pétur leit framan í hana og svar- aði blíðlega: „Já.“ „Eru perlurnar ósviknar?“ „Já — ekki af albeztu gerð, en samt ósviknar.“ „Getið þér munað, hverjum þér selduð festina?“ „Það var lítil stúlka. Hún hét Jó- hanna og hún keypti festina til að gefa eldri systur sinni í jólagjöf.“ „Hvað er festin mikils virði?“ „Verðið," svaraði hann alvarlega, „er ávallt trúnaðarmál verzlunarinnar og viðskiptavinarins.” „En Jóhanna fékk aldrei nema nokkra aura í vasapeninga. Hvernig gat hún greitt festina?“ Pétur strauk úr brotunum í skraut- umbúðunum og vafði þær aftur utan um kassann. „Hún greidd hæsta verð, sem nokk- ur getur greitt,“ sagði hann. „Hún greicldi með aleigu sinni.“ Það var djúp þögn í litlu fornsöl- unni. Frá fjarlægum kirkjuturni bár- ust klukkuhljómar. Pakkinn á borð- inu, undrunin í augum stúlkunnar og vonin um lífshamingju, sem var aftur að kvikna í brjósti mannsins — allt var þetta ávöxtur af ást lítillar stúlku. „Af hverju gerðuð þér þetta?“ spurði hún. Hann rétti henni pakkann. , Jólin eru komin,“ sagði hann. „Það er ógæfa mín, að ég hef engan, sem ég get gefið neitt. Má ég fylgja yður heim og óska yður gleðilegra jóla við dyrnar?“ Þannig atvikaðist það, að Pétur Richards og stúlkan, sem hann enn vissi ekki hvað hét, gengu á kvöldi gleðinnar inn í nýjan heim — heim vonanna. Varnir íslands (Framh. af bls. 15) útbúnað til björgunar. Er þessi sveit vel kunn af störfum sínum. FLOTINN. Bandaríski flotinn hefur ekki fast- ar bækistöðvar fyrir skip hér á landi, nema eitt lítið olíuskip af sömu gerð og Þyrill. Hins vegar hafa Atlants- Hodd, hodd! hafsríkin lialdið sameiginiegar flota- æfingar og samæft varnir sínar á sjó, og munu geta sent flotadeildir hvert sem er með stuttum fyrirvara. Ameríski flotinn hefur sinn eigin flugher, og það er sú deild hans sem kemur við sögu hér á Islandi. Hér hefur bækistöð deild könnunarflug- véla af svonefndri „Ventura" gerð, tveggja lueyfla flugvélar, svartar og ljótar, sem hafa það hlutverk að svífa yfir öldum hafsins og fylgjast með því, sem gerist á sjónum og í honum. Virðist það augljóst, að kafbátahætta sé aðalviðtangsefni þessarar sveitar, enda var kafbátahernaður geysimikill við strendur Islands í síðustu lieims- styrjöld, og yrði vafalaust á nýjan leik, ef til styrjaldar kæmi. Má nefna það sem dæmi, að dagana 2. og 3. nóv- ember 1942 var 11 skipum sökkt við ísland og 568 skipbrotsmenn fluttir hér á land, en mörg hundruð fórust. Það má telja tvímælalaust, að mik- ill kafbátahernaður rnundi aftur verða á Atlantshafi, ef svo ógæfu- lega færi, að styrjöld brytist út, og mundi því hlutskipti íslands verða svipað og í síðustu styrjöld. Miklar framfarir urðu í kafbátasmíðum í lok síðustu styrjaldar, þannig að kafbát- arnir geta siglt langar vegalengdir með miklurn hraða, án þess að koma upp á yfirborðið. Hafa flotaforingjar Atlantshafsríkjanna lagt geysimikla áherzlu á að fullkomna baráttuað- ferðir gegn kafbátum, enda eiga Rússar nú stórum meiri kafbátaflota en Þjóðverjar áttu í byrjun síðustu styrjaldar. Sú var reyndin í síðustu styrjöld, að flugvélar reyndust bezta vopnið gegn kafbátum, og mun svo vera enn. Flug- mennirnir á „Ventura“ flugvélum ameríska flotans hafa, auk flugkunn- áttunnar, allir hlotið venjulega sjó- mennskuþjálfun, sem flotinn veitir liðsforingjum sínum, þar sem allt þeirra ævistarf er bundið við sjóinn, enda þótt þeir fljúgi landflugvélum fiá landbækistöðvum. Auk þessara helztu sveita varnar- liðsins, sem liefur fasta bækistöð á ís- landi, má ekki gleyma því, að landið er aðeins hlekkur í varnarkeðju At- lantshafsbandalagsins, Aðrir hlekkir í þessari sömu keðju eru að rnörgu leyti líkir. Norðmenn ráða yfir stóru landi og hernaðarlega mikilsverðu. Þeir 26

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.