Samvinnan - 01.05.1953, Blaðsíða 8
Samvinna d kaffiekrum Kilimanjaro
Aleð sam.VLn.nu stórbæta blökkumenn lífskiLyrði sin
Klukkan er hálfsjö að morgni. Bif-
reiðin skröltir eftir ósléttum veginum,
sem fikar sig í ótal krókum upp frjó-
samt gróðurlendið neðan við Kibon-
goto. Morgunsólin varpar rauðleitum
bjarma á landið, og fyrr en varir stíg-
ur „binn hvíti maður“ fram úr móð-
unni í allri sinni dýrð — Kilimanjaro,
hæsta fjall Afríku. Þetta 6000 metra
háa eldfjall gnæfir hátt yfir umhverfi
sitt. Venjulega er það hulið móðu, og
því er það fátíð sjón og ógleymanleg
að sjá glitrandi snæhettuna teygja sig
upp í heiðríkjuna.
„Jambo“ — hvarvetna hljómar hún
í eyrum okkar með mismunandi blæ-
brigðum þessi fjörlega og vingjarn-
lega morgunkveðja þorpsbúa. Fólkið
er opinskátt og gáfulegt á svip. Ungar
stúlkur með þungar kaffikörfur á
höfði nema staðar og veifa. Kibon-
goto er snoturt, lítið þarp. Þrifalegir
leirkofar standa við breiða þorpsgöt-
una, sem liggur til markaðstorgsins,
en þangað er ferðinni heitið í dag.
Héðan af hásléttunni er víðsýni mik-
ið. Þegar frá eru skilin fáein sérkenni-
leg tré, er landslag hér ekki ósvipað
Texti og myndir eítir
ADRIANE WAHLGREN
(N. E. P.)
því, sem er í Sviss! aðeins er það mun
stórbrotnara.
Á markaðstorginu er mikið um
dýrðir. Alls kyns vörur eru breiddar
út til sýnis. Litfagrir baðmullardúk-
ar ljóma í sólskininu eins og marglit
blómabeð. Verðið stígur og fellur. í
baksýn er grá steinbygging. A skilti
nokkru getur að lesa: „East African
Cooperative Trading Society“ (Sam-
vinnuverzlunarfélag Austur-Afríku).
I dag fer þar fram arðsúthlutun til
meðlima í Kaffiræktarsamvinnufélagi
Kilimanjaro. Það er merkisdagur,
enda er þá háð réttarþing jafnframt
því, sem haldinn er markaður.
Chagga-þjóðflokkurinn, sem heim-
kynni á í suðurhlíðum Kilimanjaro í
Tanganyika, á sér merkilega sögu.
Um aldaraðir hefur hann vaxið og
blandazt öðrum þjóðflokkum — eink-
um Bantu-svertingjum, sem tóku sér
bólfestu í þessu frjósama héraði. Á
síðustu 30 árum hefur þjóðflokkurinn
tekið miklum framförum bæði í þjóð-
félagslegu og efnahagslegu tilliti. Nú
er hér stundaður landbúnaður með
nýtízku, innfluttum vélum; skólar eru
hér og sjúkrahús, sem stjórnað er af
innfæddum að vesturlenzkri fyrir-
mynd. Þess ber þó einkum að geta, að
Chagga-þjóðflokkurinn hefur borið
gæfu til að tileinka sér samvinnufé-
lagsanda án þess að glata nokkru af
eigin menningu. Þvert á móti hefur
honum auðnazt að móta forna þjóð-
félagsháttu eftir nútíma lifnaðarhátt-
um.
Segja má, að Uganda sé paradís
hins svarta kynstofns, og Tanganyika
mun fyrr en varir ávinna sér sama
sess. Til þess liggja þær meginorsak-
ir, að Afríkumenn hafa ekki fylgzt
með hinni efnahagslegu framþróun:
fátækt og vanmáttur gegn ofurveldi
indverskra kaupmanna, sem náð
höfðu á sitt vald verzlun allri og við-
skiptum. Þrátt fyrir þetta stendur
efnahagslíf Chagga-þjóðflokksins með
8