Samvinnan - 01.05.1953, Síða 15
Bóndi, sérfræðingur í afurðasölu-
málum, samvinnumaður, postuli í
kirkju mormóna, landbúnaðarráð-
herra. Þessi orð ber hæst í ævisögu
Ezra Benson, mannsins vestan úr
Klettafjöllum Bandaríkjanna, sem
Eisenhower forseti gerði ráðherra yf-
ir hinum mikla og margþætta land-
búnaði Ameríkumanna.
Benson, sem er frændi og var lengi
stuðningsmaður Roberts Taft, öld-
ungadeildarmanns og helzta keppi-
nauts Eisenhowers í eina tíð, átti þess
sízt allra hluta von, að hinn nýkjörni
forseti mundi fela sér eitt ábyrgðar-
mesta og vandasamasta ráðherra-
embættið í stjórn sinni. Hann maldr-
aði í móinn, talaði um stöðu sína inn-
an mormónakirkjunnar og kvaðst
trúar sinnar vegna ekki geta tekið
þátt í hrossakaupum og samninga-
makki stjórnmálanna. Það var ein-
mitt þetta, sem Eisenhower vildi, —
menn, sem stæðu við skoðanir sínar,
og hann lagði að Benson, unz hann
lét undan.
Landbúnaður Bandaríkjanna hefur
búið við fjölþætt ríkisafskipti undan-
farin 20 ár, og er ábyrgðarverð á flest-
um afurðum, sem framkvæmt er
þannig, að stjórnin kaupir allt það
magn, sem ekki selst öðrum kosti á
ábyrgðarverðinu. Þetta hefur leitt til
þess, að stjórnin hefur hlaðið upp í
geymslum sínum feiknum af landbún-
aðarafurðum, sem stundum hafa
selzt og stundum ekki. Þannig átti
stjórnin fyrir nokkrum vikum
127 000 000 pund af smjöri, 187 000
000 pund af þurrmjólk og 61 000 000
pund af osti, samtals 2.240 milljón ís-
lenzkra króna virði. En þetta hefur
tryggt bændum hátt afurðaverð og
hindrað verðsveiflur.
Benson og repúblíkanar eru and-
vígir þessari skipan landbúnaðarmála.
Þeir vilja draga stórlega úr þessum
ríkisafskiptum eða afnema þau, og
láta bændur bjarga sér sjálfa á frjáls-
um markaði. Hefur Benson ráðizt
djarflega gegn þessum vandamálum,
en orðið að láta undan síga í fyrstu
lotu og halda áfram að kaupa smjör
og þurrmjólk. Hann hefur þó engan
veginn lagt árar í bát, og mun verða
fylgzt af athygli með því, hvernig
honum tekst að koma stefnu sinni
fram og hvernig amerískir bændur
taka henni og áhrifum hennar.
'ipir iamtí&i
armanna:
Bóndi, samvinnumaður,
mormóni og ráðherra
Um Ezra Benson, hinn nýja land-
búnaðarráðherra Bandaríkjanna.
15