Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1956, Blaðsíða 13

Samvinnan - 01.01.1956, Blaðsíða 13
Myndin er nf málverki af stofnfundi SIS að Yztafelli 20. febrúar 1902. Starfsmenn SÍS gáfu þvi málverkið á fimmtiu ára afmœli þess. Stofnfunditm sátu, talið frá vinstri: Steingrimur Jónsson, Hxisavik, Benedikt Jónsson, Auðnum, Sigurður Jónsson, Yztafelli, Pétur Jónsson, Gautlöndum, Helgi Laxdal, Tungu, Árni Kristjánsson, Lóni og Friðbjörn Bjarnason, Grýtubalcka. andi félagsins frá 1888 til 1894. Rit- stjóri Tímarits kaupfélaganna frá 1907 til 1916. I stjórn Sambandsins frá 1909 til 19171 Gegndi og mörgum fleiri trúnaðarstörfum. Ferðaðist um landið 1911 til 1915 og flutti erindi um samvinnumál. Var landskjörinn þingmaður 1916 til 1925 og atvinnu- málaráðherra 1917 til 1920. Kona: Kristbjörg Marteinsdóttir (f. 30. marz 1863, d. 28. febrúar 1938) að Lundar- brekku, Halldórssonar. Sigurður and- aðist á heimili sínu Yztafelli 16. jan- úar 1926. Benedikt Jónsson (var ritari fund- arins). Fæddur 28. janúar 1846 að Þverá í Laxárdal, S.-Þing. Foreldrar: Jón Jóakimsson, bóndi og hreppstjóri að Þverá í Laxárdal og kona hans, Herdís Asmundsdóttir að Sóruvöllum í Bárðardal, Davíðssonar. Bóndi á Auðnum frá því um 1870 til alda- móta. Var þá hreppstjóri mörg ár og gegndi fleiri trúnaðarstörfum. Flutti til Húsavíkur um aldamót og var skrifari hjá sýslumanni til 1920. í stjórn Kf. Þingeyinga frá 1883 til 1923. Bókavörður við sýslubókasafn Þingeyinga og fastur starfsmaður kaupfélagsins frá 1920. Benedikt var einn af ötulustu stofnendum Kf. Þingeyinga og vann meira eða minna fyrir kaupfélagið frá fyrstu tíð til æviloka. Hann var bæði listfengur og listelskur, safnaði sæg af þjóðlögum fyrir séra Bjarna Þorsteinsson á Siglufirði og taldi séra Bjarni hann mikilvirkasta aðstoðarmann sinn við söfnunina. Hann var ritstjóri blaðs- ins Ofeigur. Heiðursfélagi Kf. Þing- eyinga og heiðursborgari Húsavíkur- bæjar. Kona: Guðný Halldórsdóttir á Geitafelli Jónssonar. Benedikt andað- ist 1. febrúar 1939. Steingrímur Jónsson (frá Kf. Þing- eyinga). Fæddur 27. 12. 1867. Al- bróðir Péturs. Stúdent 1888. Cand. jur. 1894. Aðstoðarmaður í ísl. stjórn- ardeildinni í Kaupmannahöfn frá 1. sept. sama ár. Settur sýslumaður í Þingeyjarsjlslu 15. maí 1897 og skip- aður 5. maí 1898. Sýslumaður í Eyja- fjarðarsýslu og bæjarfógeti á Akur- eyri 16. júní 1920. Lausn frá 1. júlí 1934. Konungskjörinn alþingismaður 1906 til 1916. I stjórn Kf. Þingeyinga frá 1905 til 1920, oftast varaformaður. For- maður Sambandsins frá 1905 til 1910. Kona: Guðný (f. 3. maí 1868) Jóns- (Framh. á bls. 15) 9

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.