Samvinnan - 01.01.1956, Page 29
Finnst ykkur ekki, lesendur góöir,
að jólasveinarnir á meðfylgjandi
mynd séu heldur seint á ferð? Það
eru þeir vissulega — í síðum Sam-
vinnunnar. En þeir voru mættir á
réttum stað og réttum tima um há-
tíðimar. Ástæðan til þess, að Sam-
vinnan vill segja frá þeim, er sú, að
þeir gefa örlitla smámynd úr hring-
iðu samvinnustarfsins.
Sambandsskipið Arnarfell á heima-
höfn á Húsavik, hjá elzta kaupfélagi
landsins. Hafa skólabörn þar í bæ
haldið uppi bréfaskriftum við skips-
menn og halda þannig sambandi við
skipið sitt, hvert sem það fer um
heimsins höf. Þennan vináttuvott
þökkuðu skipverjar Arnarfells með
því að senda börnunum epli um jólin
og tóku jólasveinarnir á myndinni
að sér að koma þeim til barnanna.
Þetta litla atvik gejur tilejni til
að ihuga líj sjómanna á kaupskip-
unum, sérstaklega tómstundir
þeirra. Þeim má verja á ýmsan hátt
á haji úti eða i erlendum höjnum,
en á Sambandsskipunum, sérstak-
lega á Arnarjelli, haja sjómennirn-
ir gert sérstakt átak til þess að nota
þœr vel.
Skipverjar á Arnarfelli hafa stofn-
að með sér tómstundafélag, sem þeir
kalla Emi, og hefur félagið skipulagt
kynnisferðir í erlendum höfnum,
gengst fyrir skákkeppni við önnur
skip á hafi úti og fleira. Er það
merkilegt, að skipverjar skuli geta
teflt hverjir við aðra, þótt annað tafl-
Frétti
og fleir
liðið sé á leið til New York og hitt á
Miðjarðarhafi. En svona eru sam-
göngur nútímans orðnar góðar.
Það er mikið skrijaö um Samband
íslenzkra samvinnufélaga og pað ekki
allt af vinsemd. Sum blöð í landinu
virðast hafa unað af því að elta uppi
fáránlegustu slúðursögur um SÍS og
breiða þær út. Oft er þetta svo frá-
leitt, að það er naumast svaravert,
en tíðum er það þó leiðrett — þótt
leiðréttingar i blöðum „-eii sjaldan
birtar undir jafn stórum fyrirsögn-
um og það, sem verið er að leiðrétta!
Eitt aj því, sem algengast er að sjá
i þessum blöðum eru jullyrðingar
þess ejnis, að SÍS sé að kaupa þetta
eða hitt jyrirtœkið. Stundum eru
þetta jyrirtœki eins og Hótel Borg,
stundum Vélsmiðjan Héðinn eða
jajnvel sjálj Morgunblaðshöllin. Ná-
lega alltaj eru þessar jregnir alger-
lega úr lausu lojti gripnar.
Með þessum fréttaburði eru viö-
komandi blöð fyrst og fremst að reyna
að koma þeirri hugmynd inn hjá al-
menningi, að SÍS vilji gina yfir öllu
og kaupa allt. Ekkert er fjær sanni.
Forustumenn samvinnuhreyfingar-
innar hafa skýrar hugmyndir um
hlutverk hennar og vöxt, og þeir hafa
hingað til leitt þróun hreyfingarinn-
ar eftir rökréttum og eðlilegum
vaxtarbrautum, þar sem samvinnu-
rekstur hefur getað gert þjóðinni
mest gagn. Hins vegar sýnir það
traust á SÍS, að jafnvel andstæðingar
þess leita til þess, þegar þeir gefast
upp við rekstur einhverra fyrirtækja.
Þá er helzta vonin, að SÍS geti rekið
þau vel og myndarlega!
KVENNAHÓPURINN á myndinni er
frá Eskifirði — kaupfélagskonur, sem
á síðasta sumri fóru á vegum félags-
ins í ferðalag norður í Þingeyjasýsl-
ur, þar sem þær sáu merka staði og
heimsóttu kaupfélög og fleiri stofn-
anir. Hefur kaupfélagið Björk á Eski-
firði boðið konum undanfarin þrjú
ár I slíkar ferðir og hafa þær vakið
'mikja ánægju á Eskifirði, enda er
þessi liður í starfsemi kaupfélaganna
hinn merkasti, því að fáar stéttir í
þjóðfélaginu eiga örlítið sumarleyfi
eins skilið og húsmæðurnar.
25