Samvinnan - 01.01.1956, Page 30
X
auóauióur
EFTIR TRAUSTA REYKDAL, SIGLUFIRÐI
Hjál'þ í nauðum.
Þeir, sem á þig tóku trú
og treysta mætti þínum,
yfir mótgangselfi brú
eiga í bænum sínum.
Birtir aftur.
Utiloka allan kala
áttu úr barminum.
Vonleysi mátt ekki ala
útaf harminum.
Þó að skorti skæru Ijósin
á skemmstum deginum.
Aftur sprettur rauða rósin
rétt hjá veginum.
0 hap'pamaður.
Ágætt nafn að erfðum fékk,
uppeldi með prýði,
samt á villugötur gekk
ginntur öfgalýði.
T ómahljóð.
Breytist rómur, þagnar þrá,
þrýtur hljóm í ljóði.
Það er dómur öllu á,
— allt með tómahljóði.
Eina leiðin.
Heimur greiða gjörist spar,
grimmur, reiðilegur.
Allar leiðir ófærar,
utan neyðarvegur.
Sléttubönd.
Sögur smíðar þjökuð þjóð,
þögul stríða daga.
Fögur tíðurn lagar ljóð,
lögum hlýðir Braga.
Slitnir skór.
Labbað hef eg langan veg
lífs með þunga byrði,
enda skórnir, eins og ég,
orðnir lítlis virði.
Að ná heim.
Komast heim er hjartans þrá,
hörðum gleyma sporum.
Engan dreymir dýrri en þá
drauma í heimi vorum.
Sigling.
Sigling búa brátt ég má
þó bátur fúinn leki.
Ferðalúinn landi frá
legg ég, rúinn þreki.
Hugur blandast æðru ei,
eyðast vandamálin,
ef að landi flýtur fley
fyrir handan álinn.
Allar tegundir af smurningsolíum
fyrir allar tegundir véla
— Merki gæðarma —
@>
- Tákn þjónustunnar -
v ‘Æ'ft. v! * ,1 , K-b
OLIUFELAGIÐ H. F.
Jbf
mw m
m
SI.MI B160D
26