Samvinnan - 01.01.1956, Page 32
„Áhugi á skákíþróttinni hér á
íslandi hefur farið mjög í vöxt nú
hin síðustu ár. Kennsla í þessum
efnum hefur þó ýmissa orsaka
vegna reynzt örðug viðfangs og
lítt gætt utan Reykjavíkur. Það
veitti því íslenzkum skákunnendum
kærkomið og langþráð tækifæri,
þegar Bréfaskóli S.Í.S. hóf á sín-
um vegum skákkennslu, sem Bald-
ur Möller veitir forstöðu eins og
kunnugt er.
Kennslubréfin eru samin af
sænska stórmeistaranum G. Stáhl-
berg, og hefur honum að mínu
áliti tekizt einstaklega vel upp.
Hann veitir lesendum sínum hald-
góða þekkingu á undirstöðuatrið-
um skákarinnar, almennt yfirlit
yfir byrjanir og sýnir í stuttu máli
ljóslega, hverju ber að keppa að
og hvað ber að varast.
Ég ráðlegg þvi sérhverjum skák-
manni, jafnt byrjanda sem lengra
komnum, að notfæra sér þetta ein-
staka tækifæri. Sá, sem hefur notið
þessarar kennslu, hefur öðlast
næga þekkingu og innsýn í skák-
ina til þess að hafa skemmtun af
og er jafnframt undir það búinn
að kynna sér skák nánar, ef hann
hefur áhuga á því.“
Friðrik Ólafsson
Fylgið ráðum
skákmeistarans!
Ekki er hægt að fá betri vitnisburð uin ágæti skákennzlu
Bréfaskólans en okkar kunni skákmeistari, Friðrik Olafs-
son, hefur gefið hér til vinstri á síðunni.
Fjölmargir Islendingar, eldri sem yngri, hafa lært og eru
að læra skák í gegnum bréfanám. Kennslubréfin eru sam-
in af stórmeistaranum STAHLBERG og kennari er Bald-
ur Möller, skákmeistari.
Bréfaskólanám er hentugt námsform íyrir það fólk, sem
ekki hefur tíma né aðstöðu til að sitja á skólabekk, til
að afla sér ódýrrar og góðrar menntunar á hagkvæman
hátt.
Innritun í Bréfaskólann er allt árið og nemendur geta
stundað eina námsgrein eða fleiri að eigin ósk. Náms-
hraðanum ráða nemendurnir sjálfir.
Szmið, skrific), komið og fáið
ókeypis námsfiokkaskrá og
jafnframt ýtariegar
uppíýsingar
BRÉFASKÓLI SÍS
Sambandshúsinu — Reykjavík .