Samvinnan - 01.06.1956, Side 13
Jóhannes I>. Jónsson, kaupfélagsstjóri.
Úr nýlenduvörudcild kaupfclagsins. Myndin til
luegri á siðunni er úr vefnaðarvörudeildinni.
Kaupfélag Súgfirðinga
Súgandafirði
Suðureyri við Súgandafjörð er fag-
ur bær við þröngan fjörð, þar sem eyr-
ar tvær skapa undirlendi og nokkur
hafnarskilyrði, og er byggðin á þeirri
syðri, eins og nafnið bendir til. Þarna
býr þróttmikið fólk, sem sækir sjó af
kappi og skilar þjóðarbúinu ríflegri
framleiðslu úr fiskiðjuyerum sínum.
Kaupfélag Súgfirðinga, sem hefur
starfsemi sína á Suðureyri, hefur ný-
lega náð merkum áfanga í starfi sínu.
Það hefur lokið viðbyggingu við verzl-
unarhús sitt og breytingum miklum á
sölubúð sinni, þannig að segja má, að
það hafi opnað fyrstu nútímaverzlun
kaupstaðarins. Er þar allt sn}^rtilegt og
með fullkomnasta sniði, svo sem með-
fylgjandi myndir gefa nokkra hug-
mynd um. Hefur kaupfélagið með
þessu átaki náð merkum áfanga í
verzlunarmálum staðarins, en félaginu
veitir forstöðu Jóhannes Þ. Jónsson
kaupfélagsstjóri.
Ein kaupmannsverzlun er á Suður-
eyri í samkeppni við kaupfélagið. Sá
hún sér ekki annað fært en að reyna
að fylgjast með kaupfélaginu og hóf
einnig breytingar til batnaðar á sínum
húsakynnum. Sýna slík dæmi sem
þetta, að forusta kaupfélaganna um
stórar og smáar framfarir í verzlun og
framleiðslu hefur áhrif, sem ná langt
út fyrir félögin sjálf.
Verzlunarhiis Kaupfélags Súgfirðinga.
Úr sölubúð haupfélagsins.
13