Samvinnan - 01.10.1957, Qupperneq 2
Útgefandi: Samband ísl.
samvinnufélaga.
Ritstjóri: Benedikt Gröndal.
Ritstjórn og afgreiðsla í
Sambandshúsinu, Reykjavík.
Ritstjórnarsími: 17080.
Kemur út mánaðarlega.
Verð árgangsins kr. 90.00
Verð í lausasölu kr. 9.00
Prentsmiðjan Edda.
Efni:
ísland og fríverzlunarsvæðið 3
Bið ég guð, að byggist upp
blessað Snæfellsnesið. —
Eftir Teit Þorleifsson 4
Hitler og Icarus — innrásin
í ísland 7
Nokkur orð um Jóhann Jóns-
son, skáld, eftir Kristján
Jóhannsson 8
Sól á náttmálum — úr
skáldsögu Hagalíns 9
Farið framhjá — kvæði
eftir Pál H. Jónsson 10
Knattspyrnuævintýrið á
Akranesi 11
Hvernig á nýja íbúðin
að vera? 14
Bruna þú nú bátur minn —
frásögn eftir Oskar Aðal-
stein 16
Getur dáleiðsla leyst gátuna
um líf og dauða 18
Gamalt og nýtt úr Tálkna-
firði. Sig. í Holti 20
Sonnetta, eftir Pál H. Jónsson 21
Rússneski skákmeistarinn
Alexander Aljechin, eftri
Svein Kristinsson 22
Ríma, eftir Sveinbjörn Bein-
teinsson 23
Svipmyndir frá Vestfjörðum 24
Bláa skikkjan — fram-
haldssagan 26
Minnst merkrar bókar —
eftir Ólaf á Hellulandi 39
Sept.-okt. 1957
Ll. árg. 9.-10.
2 SAMVINNAN
BÓKAÚTGÁFAN NORÐRI mun á næst-
unni gefa út margar vandaðar og girni-
legar bækur. í síðasta hefti Samvinnunn-
ar var getið um bókina um Guðjón Sam-
úelsson og verk hans. Þar fyrir utan
verða þessar bækur gefnar út:
SKRIÐUFÖLL OG SNJÓFLÓÐ, eftir
Ólaf Jónsson á Akureyri. Sú bók verður
um 80 arkir í stóru broti með mörg-
hundruð myndum. Ólafur er afburða
fræðimaður og hann hefur ferðast um
allt land og náð saman öllu því helzta,
sem vitað er um þessi óhugnanlegu nátt-
úrufyrirbrigði.
SÓL Á NÁTTMÁLUM, skáldsaga eftir
Guðmund Hagalín. Kafli úr bókinni birt-
ist hér í blaðinu. Þetta er fyrsta skáld-
saga Hagalíns í 12 ár og er ekki ólíklegt
að bún verði mönnum forvitnileg. Sagan
gerist aðallega á Snæfellsnesi og í
Reykjavík.
HRAKNINGAR OG HEIÐAVEGIR, 4.
bindi. Tekið hafa saman þeir Pálmi heit-
inn Hannesson og Jón Eyþórsson. Þessir
þættir hafa náð miklum vinsældum með-
al þeirra sem unna þjóðlegum fróðleik.
FORSPÁR OG FYRIRBÆRI, eftir El-
ínborgu Lárusdóttur. Eins og nafnið
bendir til fjallar bókin um dularfull fyr-
irbrigði. Kristín Helgadóttir Kristjáns-
son, sem hefur verið búsett vestan hafs
og hér heima, er gædd mikilli skyggni-
gáfu og bókin fjallar um atburði, sem
hún hefur séð og lýst. Sigurður Þórðar-
son, söngstjóri, ritar formála.
SLEIPNIR, skáldsaga eftir Einar E. Sæ-
mundsen, fyrrv. skógarvörð. Einar er
landskunnur fyrir ást sína á dýrum, rit-
störf og hagmælsku. Þetta er eina skáld-
sagan, sem liggur eftir hann og fjallar
hún um hest. Bókin er mjöl vel skrifuð
og heldur óskiptri athygli lesandans frá
upphafi til enda.
i KILI SKAL KJÖRVIÐUR, ævisaga
Jessens, fyrrv. skólastjóra Vélstjóraskól-
ans í Reykjavík. Ritað hefur Guðmundur
Hagalín. Fyrst er greint frá uppvaxtar-
og lærdómsárum Jessens í Danmörku,
svo og siglingum hans víða um heimshöf-
in. Hingað til lands var Jessen ráðinn til
að kenna meðferð á vélum um það leyti
er vélar byrjuðu að flytjast til landsins.
Jessen hefur kennt flestum íslendingum,
sem lært hafa vélfræði, svo bókin er að
öðrum þræði saga vélvæðingar á íslandi.
MANNAMÁL, sagnaþættir eftir Þórar-
in Grímsson Víking. í bókinni dregur Þór-
arinn fram í dagsljósið sagnir, sem að
mestu voru gleymdar. — Þar er m. a.
þáttur um atburð þann, er varð þess
valdandi, að draugur tók að fylgja Ein-
ari skáldi Benediktssyni og hvernig Einar
losnaði við fylgilag hans.
OLlUFÉLAGIÐ hefur nýlega unnið
þarft verk til að bæta aðstöðu bifreiða-
stjóra í Reykjavík, með því að koma upp
nýju fyrirkomulagi á afgreiðslu benzíns.
Afgreiðslusvæði Olíufélagsins er á mót-
um Hofsvallagötu og Ægisíðu. Afgreiðsl-
an gerist með þeim hætti, að ökumaður-
inn ekur bíl sínum að einhverjum tank-
inum og tekur sjálfur slönguna og setur
hana í stút benzíntanksins. í skýli þar
á svæðinu er stúlka, sem fylgist með því,
sem þar gerist. Hún styður á hnapp og
við það losnar slangan. í skýlinu er
mælaborð, sem sýnir, hversu mikið ben-
zín hefur verið látið á bílinn og hvað það
kostar.
Við venjulega afgreiðsluhætti hefði
ekki verið hægt að komast af með færri
en fjóra menn. Þessi sparnaður er látinn
koma viðskiptavinunum til góða og á
þann hátt gat Olíufélagið lækkað verð
hvers benzínslítra um 5 aura.