Samvinnan - 01.10.1957, Blaðsíða 13
Helgi Björgtnruson er fæddur 23. ág. 1934 á
Akranesi. Hann lauk gagnfræðaprófi 1952, en
hefur stundað akstur síðan. Hann ekur til skipt-
is fólksbíl og vörubílum. Hann er ókvæntur.
Helgi hóf ungur að leika knattspyrnu, en lék
fyrst í fyrra á Islandsmóti meistaraflokks, en hef-
ur verið varamaður síðan 1951. Hann hefur
leikið 1 landsleik, á móti Englendingum, og
þrisvar verið -varamaður. Hann er \ instri inn-
herji í liðinu.
Sveinn Teitsson er fæddur 1. marz 19.31 á Akra-
nesi. 18 ára gamall hóf hann nánt í málaraiðn
og lauk því, en sneri sér þremur árum síðar
að trésm.'ðanámi og vinnur nú að þeirri grein
í sementsverksmiðjunni. Kvæntur er Sveinn
Agústu Ágústsdóttur frá Þingeyri við Dýra-
fjörð. Auk knattspyrnu hefur Sveinn lagt
stund á frjálsar íþróttir, einkum hlaup. Hann
lék fyrst á íslandsmóti 1950 og hefur leikið 12
landsleiki.
Helgi Danielsson er fæddur 1(>. apríl 1933 á
Akranesi. Hann lattk gagnfræðaprófi 1950, en
hóf prentnám í Isafoldarprentsmiðju haustið
eftir og lék þá með Val. 1 fyrravor fluttist hann
aftur til Akraness og vinnur nú i prentsmiðj-
unni þar. Kvæntur er hann Steindóru Steins-
dóttur úr Reykjavík og eiga þau þrjá syni. Helgi
er markvörður og hefur leikið 11 landsleiki. 39
sinnurn hefur knötturinn hafnað í marki hans
i þeim leikjum.
Þnrður Jónsson er fæddnr 29. nóv. 1934 á Akra-
nesi. Hann er bróðir Ríkharðs. Hann stundaði
nám í Gagnfræðaskóla Akraness, síðan ýmiss
konar störf, en hóf nám i húsamálun hjá bróð-
u’r sínum 1955. Hann er kvæntur Sigþóru Karls-
dóttur frá Akranesi og eiga þau tvö börn. Þórð-
ur lék fyrst á Islandsmóti meistaraflokks 1952
og alltaf síðan utan eitt ár. Hann hefur fimm
sinnum leikið í landsliði Islendinga. Hann er
vinstri útherji.
Helgi Hannesson er fæddur 10. jan. 1939 í
Reykjavík, en hefur alla ævi verið búsettur á
Akranesi. Hann lauk gagnfræðapórfi 1956, en
hefur síðan ýmist unnið hjá rafveitunni sím-
anum eða í íshúsinu. Hann er ókvæntur. Helgi
hefur mikið iðkað sund og var Islandsmeistari
í 100 m. skriðsundi 1955 og 56 og einnig í bak-
sundi s.ðara árið. Hann lék fyrst í fyrra með
liði Akurnesinga á Islandsmóti meistaraflokks.
Hann er hægri bakvörður.
Þórður Þórðarson er fæddur 26. nóv. 1930 á
Akranesi. Hann hóf slarfsferil sinn sem sendill
hjá kaupfélaginu, en síðan hann fékk ökurétt-
indi hefur hann unnið hjá föður sínum, Þórði
B. Þórðarsyni, sem hefur sérleyfi milli Revkja-
v.'kur og Akraness. Kvæntur er Þórður Ester
Teitsdóttur frá Akranesi og eiga þau fjögur
börn. Hann var fyrst í liði Akurnesinga á Islands-
móti 1947 og hefur leikið 17 landsleiki. Hann
er miðframherji.
SAMVINNAN 13