Samvinnan


Samvinnan - 01.10.1957, Blaðsíða 14

Samvinnan - 01.10.1957, Blaðsíða 14
Hvernig á nýja íbúðin að vera? Hugleiðing um íslenzka byggingahætti og sænska fyrirmyndaríbúð Hveinig á nýja íbúðin að vera? Hvernig getum við hagað herbergja- skipun, hvernig skipt rúminu milli svefns og vöku, vinnu og hvíldar, bama og fullorðinna? Hvernig á að hafa eldhúsið, þvottaaðstöðu, geymslurúm og skápa? Slíkum spurningum hafa íslend- ingar verið að svara í stærri stíl und- anfarin ár en nokkru sinni og því er eðlilegt, að meira sé rætt um þessi mál opinberlega, svo að þeir, sem eiga eftir að byggja geti notið reynslu hinna, sem hafa nýlokið við íbúðir sínar. A ellefu árum, 1945—55, reisti þjóðin 6 270 íbúðarhús með 10 433 íbúðum, að því er Framkvæmda- bankinn hefur nýlega upplýst í fróð- legri skýrslu. Þannig hlýtur rúmlega þriðjungur þjóðarinnar að búa í þess- um nýju íbúðum og má vafalaust fullyrða, að óvíða í heiminum finn- ist 50 þúsundir manna betur hýstar. Þó hafa ýmsir látið í ljós margvíslega gagnrýni á þessum nýju íbúðum í heild og bent á hugmyndir, sem Is- lendingar virðast tregir til að endur- Á sýningu, sem haldin var í Stohk- hólmi í sumar í sambandi við þing Alþjóðasambands samvinnumanna, var sýnd ibúð, sem hentug er fyrir meðalstóra fjölskyldu, íburðarlaus en smekkleg og þœgileg. Teiknari var Lennart IIolvi. I þessari grein er rœtt um einkenni íslenzkra í- búða og þau borin saman við sœnskar íbúðir. v_________________________________J skoða, en telja verður dýrar og ó- raunhæfar. Slíkt er sennilega óhjá- kvæmilegt, þegar svo mikið er byggt á svo skönnnum tíma, húsameistarar og byggingasmiðir eru ofhlaðnir og geta takmarkaða hjálp veitt hverjum og einum, og lítið hefur verið um al- menna fræðslu á íslenzkri tungu. SÆNSKA ÍBÚÐIN. Við skulum nú ræða nokkur atriði í þessu sambandi og nota til saman- burðar sænska teikningu á 90 fer- metra íbúð, en það er nokkru rninni íbúð en meðalstærð nýju íbúðanna er hér á landi. Þessa teikningu lét sænska samvinnusambandið gera og bað um látlausa og íburðarlausa en raunhæfa hugmynd um íbúð, sem sænskur ahnenningur mætti gera sér vonir um á næstu árum. Húsameist- ari var valinn Lennart Holm og í- búðin var í sumar sýnd í Stokk- hólmi. Við skulum bvrja á því að athuga, hvernig ibúðin á að snúa. Hér á fs- landi er það lang algengast, að stof- urnar séu sólarmegin en eldhús, bað og e. t. v. svefnherbergi norðaustan- megin. Þessu breytir Svíinn og segir, að lnismóðirin sé við vinnu í eldhús- inu mestallan daginn, en í stofunum sé aðallega setið á kvöldin. Hví ekki að lofa húsmóðurinni að njóta birt- unnar og sólarinnar við vinnu sína? Og sé fögur útsýn, hví þá að snúa eldhúsinu, sem mest er unnið í allan daginn, frá þeirri útsýn? Það er hvort sem er dregið fyrir stofugluggana, þegar gestir koma á kvöldin og ljós eru kveikt (utan auðvitað sumar- mánuðina, sem eru 4 á móti 8 hér á landi). Þetta era ástæðurnar til þess, að í sænsku íbúðinni er eldhúsið mót suðri. Hér á landi (og víðast erlendis líka) er algengast, að svalir séu hafðar við stofurnar, sólarmegin. Svíinn heldur þeim sólarmegin, en við eldhúsið. Af hverju? Af því að reynslan sýnir, að svalir eru aðallega notaðar til ým- issa þarfaverka, svo sem að þurrka og viðra og hví þá ekki hafa þær við eldhúsið? Þar koma þær að mestu gagni, auk þess sem húsmóðirin get- ur setið í sólinni, en haft auga með grautnum um leið og drekki fjöl- skyldan kaffi á svölunum, cn þarf ekki að bera það gegnum alla íbúð- ina. Segja má, að komi fínir gestir, sem verða að sjá útsýnina fögru, sé leiðinlegt að fara með þá gegnum eldhúsið. En hve oft kemur það fyr- ir? Hve miklu oftar er það fjölskyld- an sjálf og nánustu vinir, sem koma í eldhúsið hvort sem er, sem nota sval- irnar? ELDHÚS OG ÞVOTTUR. íslendingar hafa í byggingum sín- um yfirleitt viljað gera mjög mikið fvrir húsmóðurina og veitt henni mikil og fögur eldhús. Þó fylgir oft sá böggull skammrifi í þeirra rausn, að eldhúsin verða stór og húsmóðirin þai-f að hlaupa langar leiðir (þegar öll hlaup dagsins eru lögð saman) fram og aftur. Sjálfur vinnuhluti eld- hússins á að vera lítill, svo að aldrei þurfi að hlaupa fram og aftur við vinnuna. Hins vegar má vera rúmgott um matkrókinn vegna þess, hve mik- ið hann er notaður og gæta þarf þess, að þar sé rúm við borðið fyrir hús- móðurina líka, svo að hún þurfi ekki alltaf að standa, meðan fjölskvldan borðar. Þá kemur að þvottinum, en þar er um að ræða mestu breytinguna frá nýju íbúðunum íslenzku. Hér á landi em yfirleitt þvottahús í kjöllurum lnisanna, og þarf húsmóðirin, ef fleiri 14 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.