Samvinnan


Samvinnan - 01.10.1957, Síða 17

Samvinnan - 01.10.1957, Síða 17
3. Stundum konia dagar þegar ekki íindar við stein eða sker. Þá er leikur einn að ganga inn í himininn eftir spegli hafsins, ef maður nennti að leggja á sig svo langt ferðalag. Maður merkir ekki fallaskiptin á öðru en því að fiskurinn hættir að koma upp. Eldri drenginir tveir, sem með mér eru á sjónum, eru allt í einu sofnaðir fram í stafni. Kannski er fátt fegurra en speglanir í hafdjúpinu á heiðarbjörtum sumar- degi. Egghvassar brúnir fjallanna bera þá við ljósan himinn og rista hyldjúpt í hafflötinn. Báturinn líður hljóðlega áfram eins ■og svolítill hvítur skýhnoðri, og dreng- irnir sofa og ég fæ mig ekki til að vekja þá; sá yngri hefur lagt arminn vfir brjóst þess eldra. En allt í einu eru þeir glaðvaknaðir og sá yngri segir: — Er kominn nýr dagur? Sá eldri: — Ég held það komi engin nótt núna. Sá vngri: — Nei, stundum er engin nótt. Sá eldri: — Hvernig á að koma nótt þegar sólin hverfur ekki á bak við neitt fja.ll. Svolítill mótorbátur rennur fram hjá okkur. Karlinn í stýrishúsinu veifar til okkar með frollunni sinni. Trillur og mótorar eru á víð og dreif út um allan sjó. Sumum bátunum fylgir mikið fuglager. Sólin svífur lágt fvrir opnu hafi. og skerin spegla sig í sóleyjargulu og grasgrænu vatni. I nóttleysu hásumarsins hillist ég kannski allt í einu til að fara einn á sjóinn. Þá verður mér stundum lítið úr fiskidrættinum, en yfir mig fellur nær því ólýsanleg værð og kyrrð, alls ólík því sem maður á að venjast í hvers- dagslífinu. Engin áleitin hugsun leitar á hugann. Mér dettur blátt áfram ekk- ert í hug, en er fullkomlega sæll með sjálfum mér. A þessum augnablikum kemst sálarástand mitt ef til vill næst því að líkjast hugarástandi þorsksins, sem lepur strauma, ef maður má þá gerast svo djarfur að tala um sálræna eiginleika í sambandi við þá skepnu. En eitt sinn er ég vakinn heldur snögglega upp úr þessum unaðssemdum dýraríkisins. Ég heyri sérkennilegan nið eða blástur, og er strax vaknaður til fullrar mannlegrar meðvitundar. Og hvað sé ég? Skammt frá mér rís skipsstafn, kol- svartur og ógnarhár eins og fjall og sker sjóinn með miklum gný. í fátinu, sem á mig kemur, virðist mér þessi óskapn- aður stefna beint á mig. En í því að ég legg á flótta, brunar þetta hræðilega ferlíki framhjá með miklum bægsla- gangi. Það er talsvert bil milli mín og þess, svo ég er síður en svo í nokkurri hættu. En er þetta ekki eitt ógurlega mikið hafskip, einhver Andrea Doria úthafsins? SKJALDBREIÐ Já, þarna stendur þetta nafn stórum skírum stöfum á skipshliðinni: Skjald- breið. Ég hlæ — en ekki lengi. Því hvað er stórt og hvað er smátt? Fer það ekki allt eftir ástæðum hverju sinni? Eitt sinn skellur hann á með svo nið- dimma þoku að ekki sér út fyrir borð- stokkinn. Eftir stund hyggst ég keyra upp undir landið í þeirri von að þar sé einhver skíma. Við eru staddir drjúgan spöl út af víkinni, og góða stund held ég uppi fullri ferð, síðan slæ ég meira og meira af, af ótta við að mig beri upp á sker. En hið undarlega skeður að ég sé ekkert nema biksvartan þokuvegg- inn framundan. Hver ræður fyrir þessu? Hvað ætlar þetta eiginlega að verða? Hefur landinu verið kippt burt alveg þegjandi og hljóðalaust? Nú tek ég eftir því að drengirnir eru orðnir kátlega spurulir á svipinn. Er það nema von? Ég hef samt ekki orð á neinu, en rýni sem fastast inn í þoku- vegginn í leit að Iandinu. Allt í einu dettur upp úr eldri drengnum: — Pabbi, þú ert að keyra til hafs. — Er ég hvað? — Þú heldur beint til hafs, maður, segir eldri drengurinn aftur. — Hættu þessu bjánatali, anza ég, en sé þó strax á strák að hann veit bet- ur en ég. — Líttu við, þá sérðu fjallatoppana upp úr þokunni, kallar strákur. Og ég lít við —, og þarna rofar í tindana upp úr þokuhafinu. Ég sný bátnum og segi í trúnaðartón við dreng- ina: — Þið skuluð ekki hafa orð á þessu við mömmu. Hún hlær þá svo óskap- lega að mér. En ég hef tapað öllum átt- um í þokunni, það gerir lognið. Drengirnir brosa ... Síðbúinn sumargestur kemur í vit- ann. Hann hefur gengið fyrir Gölt, en kærir sig ekki um að ganga fyrir aftur. Honum finnst Gölturinn ferlegur í nær- sýn, og helzt gæti ég trúað því, að hann óttist, að tröll hendi grjóti í hausinn á honum, ef hann hættir sér undir fjallið öðru sinni. Það er heldur ekkert sjálf- sagðara en að fara sjóleiðina meðan fært er. Þessi kunningi minn er prýðis drengur, en innisetumaður, stofumað- ur, og hefur ekki stigið fæti út í árabát síðan hann var smástrákur. Honum lízt vel á sjólagið í dag og hvggur gott til sjóferðarinnar. Og við erum ekki fyrr lagðir af stað en hann talar um það með mörgum fögrum orðum. hversu það sé afskaplega skemmtilegt að ferðast á Iitlum báti. Svo sezt hann sem snöggv- ast undir stýri, og það leynir sér ekki. að hann þykist talsverður stjórnari og upplagður sjómaður —, eins og ég, fvrst eftir að ég eignaðist bát. En gamanið fer af þegar við komum út undir Göltinn. Það er bullandi straumur út úr firðinum og komin suð- vestan gola. Aldan er allkröpp og sæ- löðrið drífur yfir bátinn, sem heggur fast í ölduna og skellur hastarlega niður í öldudalina. Kunningi minn situr nú í einum hrauk á miðþóftunni og rígheldur sér með báðum höndum. Ég segi: — Það kyrrir strax og við komum inn á fjörðinn. Þögn. Litlu seinna reyni ég að ávarpa kunningja minn aftur, en það fer á sömu leið, ég fæ ekkert svar. ILræðslan hefur heltekið hann svo að liann fær ekki stunið upp einu orði. Hann nístir tönnum og skelfingin í augum hans er svo ofboðsleg, að ég hef aldrei séð neitt annað eins. Og hann opnar ekki sinn munn fvrr en við erum komnir inn á ládeyðu innfjarðarins, en þá segir hann kampakátur: — Mikið skratti var spennandi undir Geltinum. Ég glotti í laumi. Annars ferst mér ekki að gorta. Haustdag nokkurn árið 1947, var ég eymdin uppmáluð einn á báti undir Hornbjargi. Ég var gripinn þessari sömu hamslausu óttatilfinningu og kunningi minn undir Geltinum. Ég var þá nýbakaður útnesjamaður og þekkti hvorki á sjó eða loft, en var samt nógu fífldjarfur til að hætta mér undir bjargið einn á báti. 4. Daginn styttir óðum. Nóttin er dimm, — og klettarnir í fjallinu iðulega hregg- barðir, einkum í morgunsárið. Nú brimar oft við ströndina þótt sæmilega kyrrt sé á hafinu. Það má þó stundum komast út með hreininni, helzt á hálfföllnum sjó. Og aldrei er skemmtilegra á sjónum en í svolítilli golu, sem vekur líflega öldu. Annars er árabáturinn smærri en smár á úfnu hausthafinu, þegar allra veðra er von. (Framh. á bls. 35) SAMVINNAN 17

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.