Samvinnan


Samvinnan - 01.10.1957, Page 26

Samvinnan - 01.10.1957, Page 26
Bláa skikkjan „Feginn, feginn dvel ég hér í nótt", sagði Angelo, „en fegnari vildi ég fylgjast með þér eins og við höfum svo oft fylgzt að úti í kyrrð og fegurð næturinnar“. Leonidas brosti aftur. „Leið mín í nótt, undir stjörnunum, eftir grasi grón- urn döggvotum fjallastígnum“, sagði hann, „flytur mig að einu — og aðeins einu — takmarki. Ég mun hvíla mína síðustu nótt í faðmi konu minnar“. „Ég skal segja þér eitt, Angelo: til þess að maðurinn, fullkomnasta verk guðs, sem hann hefur blásið anda lífs- ins í, gæti orðið eitt með höfuðskepn- unum, gaf hann honum konuna. I örm- um Lucreziu mun ég innsigla trúnaðar- heit mitt við höfuðskepnurnar, á brott- fararnótt minni“. Leonidas sat grafkyrr um stund án þess að mæla. — „Lucrezia dvelur í fárra mílna fjarlægð héðan, hjá góðum vinum“, sagði hann svo. „Ég hef tryggt það, gegnum þá, að hún hefur enga vitneskju fengið um handtöku mína og dóm. Ég vil ekki stofna vinum mínum í hættu. Þess vegna fer ég leynilega til húsa þeirra. Ekki vil ég heldur koma til hennar sem dæmdur maður með daun grafarinnar í vitum mér, en fundur okk- ar skal vera sem hin fyrsta nótt okkar í faðmi hvors annars og leynd fundarins skal vera henni sem ungs manns gaman og elskhugans þrá“. „Hvaða dagur er í dag?“ spurði Angelo skyndilega. „Hvaða dagur?“ endurtók Leonidas. „Spyr þú mig, sem þessa dagana hef lif- að í eilífðinni en ekki í tímanum? Fyrir mig er þessi dagur síðasti dagurinn, en bíðum við — á morgun er sunnudagur. Þér og öðrum er þessi dagur laugar- dagur“. »Ég er vel kunnugur leiðinni“, hélt hann áfram hugsandi, eins og hann væri þegar kominn af stað. „Eftir fjallastíg nálgazt ég gluggann á herberginu henn- ar að húsabaki. Ég mun taka upp stein- völu og kasta í gluggann. Þá mun hún vakna undrandi, fara að glugganum, koma auga á mig gegnum vafningsvið- inn og opna gluggann fyrir mér.“ Hinn þrekni barmur bifaðist og hann dró andann djúpt. „Barnið mitt, vinur minn. Þú þekkir fegurð þessarar konu. Þú hefur dvalið á heimili okkar og setið við borð okkar. Þú þekkir líka hve glöð hún er, hve barnslega rólynd og ótrúlega saklaus. En það sem þú þekkir ekki — sem enginn í heiminum þekkir nema ég — er hinn ótakmarkaði hæfileiki hennar til að gefa sig alla, líkama og sál. Hve sá sjór getur brennt! Hún hefur verið mér öll hin dýrðlegu listaverk veraldar — öll í einum einasta líkama. í faðmi hennar á nóttunni hefur kraftur minn til að skapa listaverk á daginn hlotið endurnæringu. Og nú, þegar ég tala um hana við þig, svellur blóðið í æðum mér eins og risavaxin alda.“ Hann lét aftur augun. „Þegar ég kem hingað í fyrramálið mun það vera með lokuð augu. Þeir munu leiða mig frá hliðinu hingað inn, og síðar, utan við vegginn, munu þeir binda fyrir lokuð augu mín. Ég mun enga þörf hafa fyrir þessi augu þá. Það mun ekki verða myndin af hellulögðum fangelsisgarðinum eða byssuhlaupunum, sem ég skil eftir í þessum kæru, skæru augum .þegar ég skil við þau.“ Aftur var hann þögull nokkra stund, en svo hélt hann áfram í mýkri tón: „Stundum, þessa viku, hef ég ekki get- að séð fyrir mér bogalínuna á andliti hennar frá höku til eyra. Þegar lýsir af degi í fyrramálið mun ég athuga hana, svo ég gleymi henni ekki framar.“ Þegar Leonidas opnaði augun á ný mætti hann augnaráði hins unga manns. „Horfðu ekki á mig með slíkri þján- ingu og kvíða,“ sagði hann, „og kenndu ekki í brjósti um mig. Ég á annað skilið af þér, og þú hlýtur að skilja, að ég verð ekki aumkunarverður í nótt. — Sonur minn, sonur minn! Ég hafði rangt fyrir Framhaldssaga eftir danska höfundinn Isak Dinesen mér áðan. í fyrramálið, þegar ég kem til baka, mun ég opna augu mín til þess að líta enn einu sinni ásjónu þína, sem hefur verið mér svo kær. Láttu mig sjá þar frið og gleði, eins og þegar við vor- um að vinna saman.“ Fangavörðurinn sneri þungum lykl- inum í skránni og gekk inn í klefann. Hann tjáði föngunum að klukkuna í tuminum vantaði fjórðung í sex. Inn- an fjórðungsstundar yrði annar hvor þeirra að yfirgefa klefann. Allori svar- aði, að hann væri viðbúinn, en hikaði seni snöggvast. „Þeir handtóku mig á vinnustofunni og í vinnusloppi mínum,“ sagði hann við Angelo. „Loftið kann að verða kalt þegar upp í fjallshlíðina kemur. Viltu lána mér skikkjuna þína?“ Ungi maðurinn bjóst til að losa skikkjuna af herðum sér en fálmaði sem snöggvast við sylgjuna, því hann var henni óvanur. Allori greip um hönd hans og hélt henni fastri. „En hvað þú ert glæsilegur, Angelo,“ sagði hann. ,Þessi skikkja er ný og dýr. I heimasveit minni gengu brúðgumar í slíkum skikkjum til brúðkaups síns.“ „Manstu?“ sagði hann svo, er hann hafði slegið skikkjunni um herðar sér og var tilbúinn að fara. „Manstu nótt eina, þegar við villtumst á fjallinu? Allt í einu féllst þú saman örmagna af þreytu og kulda og sagðist ekki geta haldið lengra. Þá tók ég af mér skikkjuna, eins og þú gerðir núna, og vafði henni um okkur báða .Við láum alla nóttina hvor í annars örmum, og í skikkju minni sofnaðir þú næstum því undir eins, eins og lítið barn. Þú átt að sofa í nótt.“ Angelo minntist nú þessarar nætur. Leonidas hafði ætíð verið meiri fjall- göngumaður en hann og að öllu leyti meira hreystimenni. Hann mundi eftir ylnum frá þessum stóra líkama í myrkr- inu, eins og frá stóru, vingjarnlegu dýri. Hann minntist þess, að sól var komin á loft þegar hann vaknaði og að allar 26 SAMVINNflN

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.