Samvinnan


Samvinnan - 01.10.1957, Page 31

Samvinnan - 01.10.1957, Page 31
stað, snauðastur hinna snauðu, en ljóm- andi af kærleika til náungans og mann- kynsins í heild, ljúfur í skilnirigi og samúð með þeirn, er hann í það og það skiptið hitti á förnum vegi. Heimspekingnum varð þegar ljóst, að maðurinn andspænis honum var kominn að algerri sturlun og hann tók hann þegar tali. Til þess að leiða hug hans frá eigin eymd talaði hann fvrst um sjálfan sig. hann sagði honum frá brúðuleikhúsinu sínu og hvernig starf hans hafði farið forgörðum. Með tárin í augunum lýsti hann brúðunum sínum, hverri fyrir sig, eins og þær hefðu verið lifandi verur, nánir vinir hans og sam- starfsmenn í listinni. „En nú eru þær glataðar. Æ, mínar elskuðu,“ andvarp- aði hann. „Þeim þótti vænt um mig, þær treystu mér. Og nú liggja þær hér og þar, þræðirnir fúnir og limir þeirra sinn í hverri áttinni. Þeim hefur verið fleygt út af leiksviðinu og kastað á glæ, því að hönd mín gat ekki lengur stjórnað þeim.“ Pizutti sat þögull um stund en hóf sðan mál sitt á hugleiðingum um eilífð- ina, eins og í áframhaldi af frásögn sinni um fallvaltleik lífsins. „En örlög brúðanna eru ekkert sorgarefni,“ sagði hann. „í Paradís mun ég hitta þær aft- ur og safna þeim í faðm minn, og þar verða mér gefnir heilir fingur á báðar hendur.“ Það var ekki fyrr en komið var fram- vfir miðnætti að hann sveigði talið að Angelo sjálfum og kringumstæðum hans, fikaði sig hægt áfram þar til hann hafði alla málavöxtu á hinum sjö heilu fingrum sér. Næstu nótt sátu þeir aftur saman á kránni og Angelo sagði honum sögu sína alla og fann að hann hefði engum í heiminum getað sagt hana öðrum en þessum örkumla flakkara. Ásýnd gamla mannsins ljómaði af háleitri birtu. „Þetta er ekkert sorgarefni,“ sagði hann. „Það er gott að vera mikill synd- ari. Eða ættum við mennirnir að ætla, að Eiristur hafi dáið á krossinum fyrir smáskreytni okkar og skírlífisbrot?" Pizutti stóð á fætur, gekk þegjandi út úr herberginu og kom ekki aftur. Og sem þögnin umhverfis Angelo þéttist og varð smámsaman örlagakennd, varð hinum útskúfaða manni ljóst, að hann þyrfti ekki lengur að streitast við að halda sér við ákvörðun sína, því að hann mvndi aldrei framar geta sofnað, þótt hann vildi. Dagar og nætur liðu og hann hélt áfram að ráfa einmana innan um mannfjöldann eins og metnaðargjarn verðandi meinlætamaður með hæru- sekk við hörund sér. Hann flutti híbýli sín og settist að í lítilli súðarkompu í hinum enda borgarinnar, til þess að eiga ekki á hættu að hitta fyrri vini sína. I fyrstu var hann undrandi yfir því að honum fundust hinar svefnlausu nætur ekki langar — honum fannst aðeins eins og tíminn hefði verið þurrk- aður út: nóttin kom, síðan dagurinn. en hvorugt hafði nokkra merkingu fyrir hann. En óvænt gerði líkami hans uppreisn gegn huga hans og vilja og sú stund rann upp að stolt hans hvarf og hann hrópaði í angist til hinna miklu mátt- arvalda sem stjórna tilverunni: Fyrir- Utið mig, varpið mér burtu jrá augliti yðar ,en leyjið mér að vera eins og aðr- ir menn — leyjið mér að soja. Hann keypti sér ópíum, en það stoð- aði ekki, og síðan sterkari devfilyf, en það ruglaði aðeins skynjun hans í tima og rúmi, svo að atvik og hlutir, sem fjarri voru, virtust honum nálægir, en hlutir sem hann vissi að voru rétt fyrir augum hans, svo sem hans eigin hend- ur og fætur og steinþrepin í stiganum, er hann gekk um, virtust honum í óra- fjarlægð. Hann lagði því niður notkun allra hjálparmeðala. Hugsun hans var um þessar mundir orðin mjög sljó. Dag einn sá hann Luc- reziu á götu, því að hún var komin aftur til borgarinnar og bjó hjá móður sinni. En það var ekki fyrr en um nóttina þegar klukkan í kirkjuturninum sló tólf, að hann gerði sér grein fyrir því og sagði við sjálfan sig: Ég sá konu á göt- unni i dag. Það var Lucrezia. Einu sinni átti ég að koma til hennar en ég jór aldrei. Hann sat lengi og velti þessari hugs- un fyrir sér og loks brosti hann eins og gamall maður brosir að endurminningu frá löngu liðinni tíð. Einn morgun datt honum í hug Marí- anna, gamla konan sem átti krána þar sem hann hafði hitt Pizutti. Hún var vitur kona og hann vissi að hiin hafði gefið mörgum holl ráð, — hún myndi ef til vill geta hjálpað honum. En al- vöruleysi þeirra, sem til þessa höfðu reynt að tala um fyrir honum, hafði fælt hann frá því að leita ráða til nokk- urs manns og hann leitaði lengi að ein- hverri afsökun fyrir því að fara á fund Maríönnu. Loks rámaði hann í það, að hann hefði átt bláa skikkju með brún- um útsaum, en skilið hana við sig ein- hvers staðar og hann liélt rakleitt til ðíaríönnu í þeirri sannfæringu að hann hefði glejnnt skikkjunni sinni þar. Maríanna gamla horfði á hann drykklanga stund. „Ja, ja, Angelo Santasilla. þú ert meiri afturgangan og langt er nú síðan þú hefur látið sjá þig hér. En við kristnir menn eigum ekki að vera langræknir og ég fyrirgef þér og hvað get ég nú gert fyrir þig?“ Angelo leiddi talið að vandræðum sínum. „Já, já, ég kann ráð við því“, sagði gamla konan. „Og hlustaðu nú vandlega á það sem ég segi og gerðu svo nákvæmlega eins og ég mæli fyrir. Farðu inn í breiðustu götu borgarinnar, gakktu eftir henni þar til þú kemur að götu sem er ekki eins breið, síðan úr henni í þrengri götu og úr henni í enn þrengri götu, og haltu þannig áfram. Og ef þú finnur einhver göng úr þrengstu götunni, sem eru ennþá þrengri en gatan sjálf, skaltu fara inn í þau og ganga þau á enda, draga svo andann léttilega — einu sinni, tvisvar — þá verður þú sofnaður." Angelo þakkaði Maríönnu ráðlegg- ingu hennar og hafði hana yfir fyrir sjálfum sér þar til hún var sokkin ofan í hugardjúp hans, og þetta sama kvöld ákvað hann að fara nákvæmlega eftir því, sem Maríanna hafði fyrir hann lagt. Húsið sem Angelo bjó í stóð við þrönga götu og þaðan var langur vegur að breiðasta og bezt lýsta torgi borg- arinnar. Langt var síðan hann hafði komið í þennan borgarhluta og hann undraðist mannfjöldann, sem þar var á ferð, hann var búinn að gleyma að svona margt fólk væri til í heiminum. Allir gengu hraðar en hann og allir virt- ust eiga sér ákveðið takmark, og jafn- margir vera á ferð í hvora átt. Angelo spurði sjálfan sig hvaða nauð- syn það væri sem knúði vesturbæjar- búa austur fyrir torg og austurbæjar- búa vestur yfir. Honum fannst það SflMVINNAN 31

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.