Samvinnan - 01.07.1958, Síða 13
þjóðin yrði að skapa heilbrigðan
grundvöll undir framtíðar uppbjí'gg-
ingu sína.
Þegar Erlendur Einarsson hafði
lokið máli sínu, fluttu framkvæmda-
stjórar hinna ýmsu deilda Sambands-
ins skýrslur sínar, fullar af fróðleik
um hina margþættu starfsemi. Helgi
Þorsteinsson skýrði frá innflutnings-
og verðlagsmálum, Valgarð Olafsson
frá útflutningi og afurðasölu innan-
lands, Hjörtur Hjartar frá rekstri
skipanna, Hjalti Pálsson frá vélasölu
og Harry Frederiksen frá iðnaðinum.
Starfsemi deildanna, sem hafa að-
drætti og innkaup með höndum,
markaðist mjög af gjaldeyris- og
reksturfjárskorti, en það þótti sér-
staklega ánægjulegt, að innlend fram-
leiðsla, sem SIS hafði til sölu á árinu,
komst upp í 400 milljónir króna.
Sérstök ástæða er til að vekja at-
hygli á afkornu Hamrafells, sem þeir
gerðu báðir að umtalsefni, Erlendur
og Hjörtur. Skipið skilaði engum
ofsagróða, eins og andstæðingar sam-
vinnumanna höfðu fullyrt í hinni
miklu áróðurssókn út af rekstri skips-
ins snemma á árinu 1957. Að vísu
varð nokkur ágóði af rekstri skips-
ms, en farmgjöld þess fóru hraðlækk-
andi á árinu og fram á líðandi ár,
þannig að skipið er þegar búið að
éta upp þann gróða, og er fyrirsjáan-
legt mikið tap á rekstri þess í ár.
Að kvöldi fyrri fundardagsins flutti
Benedikt Gröndal, forstöðumaður
fræðsludeildar, erindi um lýðræðið í
samvinnufélögunum, og er það birt í
heild í þessu blaði.
Þegar skýrslum framkvæmdastjór-
anna lauk, hófust þegar fjörugar um-
ræður, og tóku þessir til máls: Bjarni
Bjarnason, skólastjóri, Hólmgeir Þor-
steinsson, Akureyri; Jón Sigurðsson,
Yztafelli; Finnur Kristjánsson, Húsa-
vík; Erlendur Einarsson, forstjóri;
Skúli Guðmundsson, alþm.; Eysteinn
Jónsson, fjármálaráðherra; Kjartan
Sæmundsson, Reykjavík; Kristján
Jónsson frá Garðsstöðum; Ragnar
Pétursson, Hafnarfirði; Jón Melstað,
Hallgilsstöðum; Sveinn Guðmunds-
son, Akranesi; Hallgrímur Sigtryggs-
son, Reykjavík; Metúsalem Metúsal-
Tekið upp léttara hjal í fundarhléi. —
Þarna eru m. a. Erlingur Davíðsson, rit-
stjóri Dags á Akureyri, til v. og næstur
honum Teitur Björnsson, bóndi í Brún.
Erlendur Einarsson, forstjóri, flytur skýrslu sína. Til vinstri eru Sigurður Kristins-
son, formaður SÍS og Jörundur Brynjólfsson, fundarstjóri. Fundarritarar frá v.:
Skúli Ólafsson, Baldur Baldvinsson og Ármann Dalmannsson.
Fulltrúar á aðalfundinum hlýða á umræður um málefni samvinnuhreyfingarinnar.
Kjörbréfanefnd að störfum. — Frá v.: Páll Hallgrímsson, sýslumaður, Ingimundur
Árnason, Akureyri og Jón Björnsson, kaupfélagsstjóri á Borgarfirði eystra.
S.’VMVINNAN 13