Samvinnan


Samvinnan - 01.11.1961, Qupperneq 8

Samvinnan - 01.11.1961, Qupperneq 8
S A G N - FRÆÐI - S T E F N U R 2 Guðmundur Sveinsson IV. ALFRÆÐIKÖNNUNARSTEFNAN Upp úr 1930 koma fram nýjar stefnur á sviði sagnfræðinnar. Hinni merkustu þeirra hefur verið gefið heitið „Alfræðikönnunar- stefnan" (Encyklopædisk-analytisk stefna). Þessi stefna hefur að visu greinzt nokkuð, en tveir megin-straumarnir eru kenndir við sagnfræðingana Arnold Toynbee, prófessor við Lundúnaháskóla, og Pítírím Sorokin, prófess- or við Harvardháskólann í Bandaríkjunum. Báðum þessum mönnum var gefið tækifæri til rannsókna í sagnfræði, sem engum öðrum sagnfræðingum hafði áður verið gefið. Voru þeim látnar í té sérstakar rannsóknarstofur með hóp sérmenntaðra aðstoðarmanna. Skyldi ekkert til sparað að þeim tækist að kanna sögu mannkynsins frá upphafi, reyna að finna lögmál, sem sagan og menningin kynnu að lúta. Hvor um sig hefur gefið út mikið rit og birt niðurstöður rannsókna sinna. Arnold Toynbee hefur lokið ritverki sínu í 10 bindum og kallar það „Study of History". Sorokin hefur gefið út 4 fyrirferðarmikil bindi, hið síðasta 1941 og nefnist sagnfræðiverkið: „Social and Cultural Dynamics" (þ. e. „Öfl þjóðfélaga og menningar"). A. SÖGUSKOÐUN ARNOLDS TOYNBEES Aðaleinkenni veraldarsögunnar eru samfé- lög manna (societies), ekki þjóðríki. Mörg þjóð- ríki mynda samfélag með sameiginlegum ein- kennum. Hafa frá upphafi verið 21 (eða 23) slík samfélög í veröldinni, en af þeim eru 5 aðal-samfélög í dag, en sum horfin með öllu. Hin 5 aðal-samfélög í dag eru: 1. Kristni Vesturlanda. 2. Samfélag grísk-kaþólskra (hið ortodoxa) I Súðaustur-Evrópu og Rússlandi. 3. Samfélag Múhameðstrúarmanna f Nálæg- ari Austurlöndum, Islam. 4. Samfélag Hindúa. 5. Samfélag Austur-Asíuþjóða. Samfélög skapast af sameiginlegum menn- ingararfi, sem margar þjóðir hafa eignast. Hinn sameiginlegi menningararfur okkar sam- félags, þ. e. Kristni Vesturlanda, er þessi fyrst og fremst: 1. Kristindómurinn. 2. Endurreisnin (renessansinn). 3. Siðbótin (Reformationin). 4. Þingræðið (Parlamentarisminn), þ. e. lýð- ræðishugsjónin. 5. Iðnbyltingin (mekaniseringin) þ. e. a. s. vélvæðingin eða iðnvæðingin. Samfélög okkar tíma eiga langa sögu að baki. Þau byggja á arfi eldri samfélaga, sem horfin eru. Þannig er hið kristna samfélag okk- ar tíma. Það byggðist upp á rústum hellensks samfélags, en síðasti þátturinn í sögu þess var Rómarríkið. Tengsl eldri og yngri samfé- laga eru ævinlega á einn veg. Á mörkum þeirra er: 1. Alríkl, sem að lokum tengir saman öll smáríki hins eldra (Universal state). 2. Kirkjufélag, sem lifir skuggatilveru í hinu eldra en verður kjarni hins nýja samfé- lags (Universal church). 3. Þjóðflutningatfmi við upplausn alríkisins, hetjuskeið hins nýja samfélags (Völker- wanderung). Kirkjan var þannig aflið, sem orsakaði breyt- inguna. Algengt er, að landamærasvæði eldra sam- félags verði þungamiðja hins nýja. Þannig er um sambandið milli Rómarrikis forna og hins kristna samfélags Vesturlanda. Svæðið milli Rómar oa Aachen f Þýzkalandi. Þar var hluti vesturlandamæra Rómarríkisins. Við þau landamæri komu Rómverjar fyrir þrælum frá nálægari Austurlöndum. Meðal þeirra náði kristnin útbreiðslu. Er varnir Rómverja gegn Germönum brustu, kynntust hinar germönsku villiþjóðir fyrst kristinni trú á svæði þessu. Það varð miðstöð vestrænnar menningar í upp- hafi Vesturlandakristni. Toynbee telur að finna megi í menningu þjóðanna tvö megin lögmál, annað lýtur að upphafi menningar, hitt að þróuninnl sjálfri og viðhaldi menningarinnar. Lögmálið fyrir upphafi menningarinnar nefnir hann Challenge and Response (Eggjun og andsvar). Með þessu á Toynbee við, að sérhver menning er framkölluð við það, að viðkomandi þjóð hefur tekizt að yfirvinna einhverja erfiðleika eða leysa einhvern þann vanda, sem kringumstæðurnar hafa skapað henni. Þetta skýrir Toynbee með gömlu grísku máltæki: „Hið góða er alltaf erfitt". Eggjunin felst t. d. í: A. Erfiðu landi. B. Nýju og óhagstæðu umhverfi. C. f áfalll sem þjóð verður fyrir. D. Refsingú. Mörg fleiri dæmi eggjunar nefnir Toynbee einnig. Hitt lögmálið, sem ræður sjálfri þróuninni og viðhaldi menningarinnar, nefnir Toynbee „Withdrawal and Return" (Undanhald og aft- urkoma). Þetta einkenni samfélaganna skýrði Toynbee út frá hliðstæðum úr lífi einstakling- anna. Það er algengt að menn, sem búa yfir snilligáfu og þó sér í lagi skáld og spámenn, séu á stundum mjög starfsamir, og hafi mikla starfsorku, en hins vegar gera þeir oft hlé á starfi sínu og það jafnvel svo árum og ára- tugum skiptir. Þá er engu líkara en viðkom- andi dragi sig í hlé til að safna nýjum kröft- um. Þetta einkenni úr lífi skálda og spámanna telur Toynbee næsta áberandi í sögu samfé- laganna. Þar skiptist á tímaskeið mikiliar grósku og tímaskeið, þegar allt virðist liggja í dái og sköpunarmáttur samfélagsins horfinn. B. SÖGUSKOÐUN SOROKINS Sorokin telur að greina megi milli tvenns konar menningarheilda i sögu þjóðanna. Þess- ara: 1. Ideational culture, sem þýðir hugsunar- menning. Einkenni: ró, íhugun. 2. Sensate culture, sem þýðir hughrifamenn- ing. Einkenni: ólga, geðhrif. Af þessum tveim menningarheildum finnast síðan 2 afleiddar myndir, þ. e.: a) Idealistic culture, sem þýðir hugsjónamenning (samein- ing hugsunar og hughrifa). Slík menning kem- ur fram þar sem jafnvægi hefur náðst á milli hinna fyrri menningarfyrirbæra. — b) Mixed eulfure, þ. e. blönduð menning, þar sem önn- ur stefnan, annað hvort hugsunar eða hug- hrifamenning, er drottnandi. Sorokin telur að menning skapist og mótist ætíð af Innra samræmi, innra tilgangi, „logico meaningful unlty". Hann talar um megin lög- mál, „central prineiple", sem gegnsýri hina einstöku þætti allra menningarfyrirbæra. Sorokin álítur að þetta meginlögmál skapi samræmda heild (kosmos) úr óskapnaði (kaos). 8 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.