Samvinnan - 01.11.1961, Blaðsíða 28
Á sólarhátíð
Framhald af bls. 20.
en látið okkur finnast til um það, sem
skeð hefur. Já, breytingin og fram-
förin er mikil, og verður sjálfsagt að
því vikið af öðrum hér í kvöld. Ég vil
þó víkja að því sérstaklega, sem gerst
hefur og er að gerast hér á Þórshöfn.
Mannabyggð í Þórshöfn er ekki nema
70 ára gömul. Staðarins er getið í
verzlunarskjölum frá fyrri öldum, en
ekki er þá kunnugt um nein verzlun-
arhús þar. Höfnin var löggilt árið
1846, og munu vöruskip lausakaup-
manna þá hafa byrjað að koma hér
við. Verzlað var á þessum skipum og
á Vopnafirði. — Ingimarshúsið er
elzta íbúðarhús hér, og var byrjað að
byggja það árið 1885 eftir því sem
mér er tjáð. Um byggingu elztu verzl-
Bezta sælgætið heima og heiman
NÓA VÖRUR
Konfektbrjóstsykur
Biskmark
Brenndur Bismark
BlandacSur
Perur
Kóngur
Mentol
Malt
/Hindber
Piparmintukúlur
Pralín
Topas
Karamellur
Konfektpokar
Konfektkassar
S I R I U S
V ö R U R
Konsum suSus.
Rj ómasúkkulaSi
meS hnetum
og rúsínum
Nizza
Adria
Capri
Negrakossar
Núggastengur
H.f. Brjóstsykursgerðin
N Ó I — Sími 24144
l
!
I
unarhúsanna, 1895 og 1897, hef ég
áður rætt. Sjósókn á árabátum héð-
an mun hafa byrjað um sama leyti
og fastaverzlunin. Hér var fyrst sett
vél i bát 1907 eða 1908, en vöxtur út-
gerðar lengi mjög hægfara, enda
höfnin ótrygg og fólk fátt. Læknis-
aðsetur hefur verið hér siðan 1908,
landsímastöð síðan 1914, fyrsta bif-
reiðin skráð 1933, akvegarsamband
við þjóðvegakerfið norðanlands síð-
an laust eftir 1940, en áður nokkuð
akfært í héraði. Þórshöfn var fram til
1946 hluti af hinum forna Sauðanes-
hreppi, og fyrir 30 árum voru hér um
130 manns. Nú er íbúatalan um 420,
og hreppurinn sá langfjölmennasti á
félagssvæðinu. Nýja Þórshöfn er
orðin ólík þeirri gömlu Þórshöfn, sem
ég man fyrst, þar sem ekki var önn-
ur byggð en timburhúsin og nokkrir
torfbæir. Nýja Þórshöfn er úr stein-
steypu eins og nýju bæirnir í sveit-
unum. Hér hefur nú verið komið upp
barnaskóla, félagsheimili, vatns-
veitu og raímagnsveitu. Hér eru nú
gerðir út yfir 20 litlir þilfarsbátar og
opnir vélbátar, og vaskir menn sækja
sjóinn fast jafnvel um vetrartímann.
Hér kom á land í fyrra nálega 1800
tonn af fiski, sem er hlutfallslega
mikið miðað við skipastólinn. Hér,
eins og í sveitunum, eru flestir heim-
ilisfeður kaupfélagsmenn, og félagið
hefur komið upp fiskiðjuveri fyrir
sjávarútveginn. Hér er nú kominn
vísir að vélaverkstæði. Framtíð Þórs-
hafnar byggist á tvennu fyrst og
fremst: Að sj ávarútvegurinn fari
vaxandi, og á starfsemi almanna-
samtakanna. Fyrstu varanlegu hafn-
armannvirkin hér voru gerð fyrir 25
árum. Stefnt er að því að koma hér
upp hafskipabryggju og sæmilega
öruggri bátakví. Sú framkvæmd er
komin vel á veg, en mikið vantar þó
á að takmarkinu sé náð. En ef það
tekst, og það verður að takast. sjá-
um við hilla hér undir miklu stærri
og fjölmennari byggð á næstu ára-
tugum. Sú byggð mun verða til
styrktar öllu atvinnulífi hér um
slóðir, á einn eða annan hátt, bæði í
sveit og við sjó.
Hér hef ég í kvöld einkum dvalið
við liðna tið og gengin spor.
En þeim ber að treysta, hinum ungu
og uppvaxandi, sem landið erfa, einn-
ig hér, til að láta alla vora fram-
faradrauma rætast — og miklu meira
„þegar grónar grafir skýla
gráum hærum nútímans“.
— Svo látum oss nú, á þessari minn-
ingastund, hefja göngu vora inn í
framtíðina, bjartsýn og vonglöð, und-
ir merki þeirra samtaka, sem hér
halda hátíð í kvöld.
Gísli Guðmundsson, alþm.
28 SAMVINNAN