Samvinnan - 01.11.1961, Blaðsíða 17
frá því, að Bára hefði næstum verið
hætt við að senda bréfið með svörun-
um við getrauninni. Hefði hann séð það
uppi á hillu í eldhúsinu og spurt hana
hvers vegna bréf til Samvinnunnar væri
þar. Sagði hún honum efni bréfsins, en
jafnframt það, að hún væri raunar á
báðum áttum. Hún myndi hvort eð væri
áreiðanlega ekki fá nein verðlaun nú
fremur en endranær. Bjarki hvatti hana
samt til að senda bréfið og árangurinn
varð sem sagt þessi.
— Ég var nú farin að halda að ég
fengi ekki verðlaunin, sagði Fríða G.
Beck, þegar henni voru tilkynnt úrslitin.
— Áttirðu von á verðlaunum? Þig hef-
ur ef til vill dreymt fyrir þessu?
— Ekki segi ég það, en ég átti von á
þessu samt.
— Já, auðvitað eiga allir jafnan mögu-
leika, en þú vilt meina að þú hafir ver-
ið viss um að fá verðlaunin?
— Já, eiginlega.
— Hvernig má það vera?
— Það er nú svona með ýmsa hluti.
— Þú lætur næstum að því liggja að
þú sért göldrótt.
— Göldrótt og ekki göldrótt, en ég ætl-
aði að fá vinning, kannski ekki endilega
sjóferðina.
— Ertu óánægð með hana?
— Nei, síður en svo. f rauninni er hún
bezti vinningurinn. Manni veitir svei mér
ekki af að litast örlítið um í heiminum
og taka sér hvíld frá öllu amstrinu.
— Þú ert þá ákveðin í að fara?
— Já, einhvemtíma í marz—apríl,
gæti ég trúað, áður en sauðburður hefst.
Ég vona bara að ég fái eiginmanninn
með.
— Þótti þér getraunin erfið?
— Nei, en hún var góð, alveg ágæt.
Þetta var skemmtileg nýbreytni, sem
vonandi verður haldið áfram með. Og
blessuð samvinnuskipin ættu allir að
þekkja. Þess vegna var einmitt ágætt að
Kristján Kröyer og kona hans Malen Gunnarsdóttlr me3 börnin á milli sín. Þau heita
Elín (næst Kristjáni), Sigrún og Guðlaug. — Myndina tók Kristián Ólafsson.
A U N I N
i
kynna þau með þessum hætti. Einmitt
alveg ágætt. Heyrðu, villtu ekki senda
mér seðilinn með svörunum.
— Það er sjálfsagt.
— Ég ætla að eiga seðilinn til minja,
hann er vel þess virði.
Og Fríða fékk seðilinn sendan aftur
heim til Kollaleiru. f bréfinu var einnig
farseðill fyrir þau hjón, farseðill, sem
síðar mun veita þeim tækifæri til að
sigla í 30 daga á ókunnum slóðum. Blað-
ið óskar þeim góðrar ferðar og góðrar
heimkcmu. Jafnframt óskar það þeim
hinum vinningshöfunum til hamingju og
vonast til að þeim komi hlutirnir að
góðu gagni. — Að lokum þakkar það öll-
um sem tóku þátt í keppninni og sendir
þeim sínar beztu kveðjur. Ö. H.
SAMVINNAN 17
Hjónin Fríða og Hans Richard Beck vi'rSa fyrir ser getraunaseðilinn, sem færði þeim far-
seðilinn. Þau hjón eiga 5 börn, Þuríði 24 ára, Ingu 23 ára, Kristinn 17 ára, Má 11 ára og
Þorbjörgu 7 ára.
Bára Elíasdóttir opnar Singersaumavélina. Börn hennar, Elís Björn 6 ára og Friðrika Þór-
unn 2 ára, horfa á. Önnur börn Báru eru Jórunn 17 ára, Vignir 14 ára og Þorsteinn 12 ára.