Samvinnan - 01.11.1961, Blaðsíða 32
Þau valda engum efnabreytiingum, óbragði eða þef.
Draga mjög úr straumsuði. Uppfylla ýtrustu hrein-
lætiskröfur. Einangra vel fyrir hita og kulda.
REYKJALUNDUn
P L A S T
VATNSRÖR
POLYETHYLEN er í flokki þeirra gerviefna, sem bezt hafa gefizt
og að víðtækustum notum komið í heiminum á seinni árum. Þetta
efni var fyrst framleitt árið 1936.
Á meginlandi álfunnar hafa POLYETHYLENPLAST-RÖR nú þegar
verið notuð til hinna fjölbreytilegustu þarfa í hart nær fimmtán ár
og hvarvetna hafa augu manna opnazt fyrir hinum ótvíræðu kostum
þeirra, enda fer notkun þeirra sívaxandi með hverju ári sem líður.
Reynsla þessara fimmtán ára hefur fært mönnum heim sanninn um
ótrúlegan sparnað, sem notkun þeirra fylgir og endingu, sem tekur
langt fram endingu allra þeirra efna, er til sömu þarfa hafa verið
notuð fram til þessa.
Árið 1956 hóf Vinnuheimilið að Reykjalundi framleiðslu á þessum
rörum með fullkomnustu vélum og tækjum, sem völ er á. Nú þegar
eru hundruð kílómetra af þeim í notkun um land allt og hafa gefið
hina beztu raun.
að Reykjalundi
Hvers vegna plaströr
Vinnuheimilið
ÞYNGD
Þau eru að efni til um það bil átta og hálfum sinnum
léttari en járnrör. Þau eru að sama skapi léttari í
flutningi og öllum meðförum. Minni flutningskostn-
aður. Minna erfiði. Minni vinnulaun.
LENGD
Þau má leggja í allt að 300 m. heilum og tenginga-
lausum lengjum með fábreytilegum verkfærum án
nokkurrar aðstoðar fagmanna. Tímasparnaður. Erf-
iðissparnaður. Útgjaldasparnaður.
LAGNING
Þau eru mjög sveigjanleg. Við lagningu þeirra má
því, eftir því sem bezt hentar, sveigja fram hjá
hvers kyns tafsömum torfærum. Skurðir þurfa ekki
að vera miklu breiðari en rörin sjálf. í gljúpum, ó-
grýttum jarðvegi má vel draga þau í með kíl-
plóg. Margháttaður sparnaður.
ENDING
Þau þola hið ótrúleasta hnjask, högg og þrýsting að
innan, sem utan Springa ekki þótt í þeim frjósi.
Standast hvers kyns efnasamsetningu jarðvegs og
vatns og alls kyns efnablöndur. Tærast ekki.
RENNSLISEIGINLEIKAR
Þau eru spegilslétt að innan og með öllu ójöfnulaus.
Innra borð þeirra skapar enga viðloðun. Það hrindir
frá sér vökvum og veitir þeim því mótstöðulítið
fram. Engin hrúðurmyndun. Engin ryðmyndun.
Þrengjast aidrei né því síður lokast eins og járnrör
kunna að gera. Straummótstaða og þrýstingstap eru
því ætíð minni í þessum rörum en járnröruunm.
AÐRIR KOSTIR