Samvinnan


Samvinnan - 01.11.1961, Side 18

Samvinnan - 01.11.1961, Side 18
I. Sumar ekur sólarvagni hátt of himinskeið. Varmur af orku anganþeyr hvíslar í grœnu grasi. Vaka um víðerni vorsins ómar. Titrar vonartónn. Langæ lífsþrá Ijósið teygar. Árviss óskasigur. Gerast enn undur — undur lífsins —; frœ verður furustofn. við upprisu alls á vori. Hugarlaukar laufgast þá. Svo skal innra sem ytra. II. Á sólarhátíð signir friður jörð og svœfir raddir kviðans óttaþungu og flytja. blómaklukkur bænagjörð um bœttan hag og frelsi kynslóð ungu. Fagnar allt, sem öndu dregur á hœstri sólarhátíð. Maðkur í mold, már á skeri syngja lífi lof. Andi og efni i upprisutrú um síðir sameinast. Mœtast í miðju maður og guð. Einn er vegur vega. í framsókn lífsins eitt er boðorð œðst, sem allir skyldu muna, virða og rœkja og setja jafnan öllu háu hæðst. Vor heimur þangað lausnarmátt skal sækja. Það hljóðar svo: Ef hendi styður hönd og hugur veitir fæti brautargengi, má breyta sandi og urð í akurlönd, — I átt til sólar klifa hátt og lengi. JÓNAS A. HELGASON, bóndi í Hlíð á Langanesi. Hálfrar aldar afmæli Kaupfélags Langnesinga, Þórshöfn Allifsins ást umvefur jörð. Skilst að allt er eilíft. Faðmar fegurð fo!d og mar. Blaktandi skar verður blys. Dimmur vetur dœmdur l útlegð. Ríkir náttleysa norðurs. Gamall verður ungur í annað sinn Bjart er um fjöll, — bjart um strendur, sœrinn silfurblár. Bíða sem brúðir ins bjarta dags lendur ósnortnar alls. Samtíð og framtíð við Sögu mynnast — verða allar eitt. Brosir þá Fjallkonan við börnum sínum móðurbliðu brosi. Ljóðið, sem hér er að framan skráð, flutti höfundur þess á afmælishátíð mik- illi, sem Kaupfélag Langnesinga efndi til á sl. sumri. Tilefni þeirrar hátíðar var það, að hálf öld var liðin frá stofnun kaupfé- lagsins. Höfundurinn er ekki myrkur í máli um gildi samvinnusamtakanna fyrir fólkið í landinu, undir því merki getum við sigr- ast á erfiðleikunum, og „breytt sandi og urð í akurlönd — i átt til sólar klífa hátt og lengi.“ Og allt sem gera þarf er að hönd styðji hönd. Það kom fram í hinum fjölmörgu ræð- um, sem fluttar voru á afmælishátíðinni, að Langnesingar eru sama sinnis og skáld- ið í Hlíð. Fimmtíu ára samvinnustarf hef- ur eflt trú þeirra á mátt samtakanna, aukið hana og styrkt. Jóhann Jónsson, sem undanfarin ár hef- ur verið kaupfélagsstjóri á Þórshöfn, hef- ur nýlega látið af því starfi, en við hefur tekið Gísli R. Pétursson. Gísli flutti ræðu á hátíðinni og sagði m. a.: 18 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.