Samvinnan


Samvinnan - 01.11.1961, Qupperneq 23

Samvinnan - 01.11.1961, Qupperneq 23
„Ekkert, sem máli skiptir, lögregluþjónn,‘‘ svaraSi hann og brosti. Síðan gekk hann leiðar sinnar og veifaði eftir vagni, settist inn í hann og skipaði ökuþórnum að aka til Belgrave Square. Næstu daga var hann milli vonar og ótta. Stundum fannst honum að hr. Pod- gers myndi þá og þegar birt- ast í gættinni, en í önnur skipti fannst honum óhugs- andi að örlögin myndu leika sig svo grátt. Tvisvar sinnum fór hann til West Moon Street, en kom sér ekki að því að hringja bjöllunni. Hann þráði að fá að vita vissu sína, en óttaðist það jafnframt. Loksins kom það. Hann sat í reyksal klúbbsins, drakk te og hlustaði fremur áhuga- lítill á frásögn Surbitons af síðustu gamansöngvunum í Gayety þegar þjónninn kom inn með kvöldblöðin. Hann tók ST. JAMES og fletti því annars hugar. Þá rak hann augun í þessa einkennilegu fyrirsögn: LÓFALESARI FREMUR SJÁLFSMORÐ Hann náfölnaði af hugar- æsingi og las áfram. Greinin var svohljóðandi: „I gærmorgun klukkan sjö fannst lík hr. Septimus R. Podgers, hins fræga lófales- ara, þar sem því hafði skol- að á land við Greenwich, rétt við Ship hótel. Hins látna hafði verið saknað í nokkra daga og töluverðra áhyggna var farið að gæta meðal lófalesara. Allar líkur benda til þess, að hann hafi framið sjálfsmorð af völdum tímabundinnar geðtruflunar vegna ofþreytu og var það álit staðfest af líkskoðuninni í gærdag. Hr. Podgers hafði nýlokið við mikið ritverk um mannshöndina og mun það bráðlega verða gefið út og er ekki að efa, að það muni vekja mikla athygli. Hinn látni var 65 ára er hann lézt og virðist hann ekki hafa átt neina ættingja. “ Arthur lávarður ruddist út úr klúbbnum með blaðið í hendinni, dyraverðinum, sem reyndi árangurslaust að stanza hann, til mikillar undr- unar. Hann ók rakleiðis til Park Lane. Sybil sá hann út um gluggann og eitthvert hugboð sagði henni, að hann hefði gleðifregnir að færa. Hún hljóp niður stigann til að taka á móti honum og er hún sá gleðisvipinn á ásjónu hans, sannfærðist hún um, að allt væri komið í samt lag. „Ástin mín, “ hrópaði hann, „við skulum gifta okk- ur strax á morgun. “ „Heimski drengurinn minn. Það er ekki einu sinni búið að panta tertuna," sagði hún og hló í gegnum tárin. 6. Þegar brúðkaupið var haldið þrem vikum síðar, var St. Péturskirkj an þétt- skipuð prúðbúnu fólki. Dóm- prófasturinn í Chichester gaf þau saman og gestirnir voru sammála um, að þeir hefðu aldrei verið viðstaddir jafn tilkomumikla og hátíðlega athöfn. Öllum kom saman um, að aldrei hefðu sést jafn glæsileg brúðhjón fyrir alt- arinu. En þau voru ekki að- eins glæsileg, þau voru einn- ig hamingjusöm. Ekki eitt andartak iðraðist Arthur lá- varður alls þess, sem hann hafði lagt í sölurnar fyrir Sybil. Hún gaf honum allt hið bezta, er nokkur kona getur látið eiginmanni sínum í té; tilbeiðslu, blíðu og ást- úð. Grár hversdagsleikinn spillti ekki ástum þeirra. Þau yrðu ávallt ung. Nokkrum árum síðar, er þeim höfðu hlotnast tvö yndisleg börn, kom lafði Windermere í heimsókn til þeirra á Alton Priory, dá- samlegs gamals herragarðs, sem var brúðkaupsgjöf her- togans til sonar síns. Kvöld nokkurt sátu hún og Sybil undir linditrénu í garðinum og horfðu á börnin, sem léku sér milli rósarunnanna eins og flögrandi sólargeislar. Þá tók hún hendur hennar í sín- ar og sagði: „Eruð þér ham- ingjusamar, Sybil?" „Kæra lafði Windermere, auðvitað er ég hamingjusöm. Eruð þér það ekki líka?" „Ég hef engan tíma til að vera hamingjusöm. Mér geðj- ast ávallt að þeirri persónu, sem ég var kynnt fyrir sein- ast. En þegar ég kynnist fólki nánar, fer mér að leiðast það.“ „En hafið þér ekki ánægju af sirkusljónunum yðar, lafði Windermere? “ ,,Ó nei, kæra mín. Ljónin mín endast aðeins eitt missiri. Þegar búið er að svipta þau hárprýðinni, fyrirfinnast ekki leiðinlegri fyrirbrigði undir sólinni. Þar að auki ganga þau á lagið ef eitthvað er lát- ið eftir þeim. Munið þér eft- ir þessum hræðilega hr. Pod- gers? Hann var ekkert ann- að en auvirðilegur svika- hrappur. Að vísu kippti ég mér ekki upp við það og jafnvel þegar hann vildi fá lánað fé hjá mér, fyrirgaf ég honum. En þegar hann tók að fara á fjörurnar við mig, var mér allri lokið. Síðan gat ég ekki þolað lófalestur. Núna hef ég mestar mætur á fjarskynjunum. Það er ólíkt skemmtilegra. „Þér megið ekki segja neitt misjafnt um lófalestur hér, lafði Windermere, því það er hið eina, sem Arthur getur ekki þolað, að haft sé í flimtingum. Hann tekur þá hluti mjög alvarlega.‘‘ „Þér ætlið þó ekki að segja mér, að hann trúi því- líkri hégilju, Sybil?“ „Spyrjið hann sjálfan, lafði Windermere, þarna kemur hann. “ Arthur lávarður kom eftir stígnum og hélt á stórum vendi af gulum blómum og börnin ærsluðust í kringum hann. „Arthur lávarður? “ „Já, lafði Windermere.“ „Er það satt, sem konan yðar var að segja mér, að þér trúið á lófalestur.‘‘ „Já, auðvitað geri ég það, “ sagði hann og brosti. „En hvers vegna?“ „Vegna þess að ég á ham- ingju mína alla lófalestri að þakka," sagði hann lágt og lét fallast í tágastól. „Kæri lávarður, hvað get- ur það nú verið.“ „Sybil,‘‘ svaraði hann og rétti konu sinni blómin og horfði inn í blá augu hennar. „Hvílík endemis vitleysa," hrópaði lafði Windermere. ,,Ég hef aldrei heyrt aðra eins vitleysu á minni ævi. “ SAMVINNAN 23

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.