Samvinnan


Samvinnan - 01.11.1961, Side 26

Samvinnan - 01.11.1961, Side 26
sækja að honum, leggjast á hann eins og mara. Hann sezt afsíðis — og honum rennur í brjóst. Hann fannst í katakombun- um daginn eftir, þegar slag- brandar voru þar úr dyrum dregnir. Og var þá orðinn bandamaður. Það hefur verið ónotalegt að rakna úr ölvímunni á þess- um stað. Vínguðinn villir oft um fyrir þrælum sínum — læt- ur þeim í té óþægilegar skyn- villur, þó að umhverfið sé við- felldið. En hér hefur maðurinn ráf- að um í kolniðamyrkri, leitað útgöngu, rammvilltur. Óttinn liggur í launsátri, þokast nær, þrengir sér inn í hugsun og hverja taug; verður að ofsa- hræðslu. Annarleg hljóð berast að eyrum, bergmála í hljóðhimn- unum. Ef til vill er það aðeins þrusk í músum, sem dansa á kistuloki eða naga kjúkur og rísla í fúinni flík. Myrkrið verður sótrautt. Sogandi andardráttur manns- ins hverfur út í grafargöngin — kemur til hans aftur og er þá orðinn að sárum andvörp- um. Þá missir hann allt taum- hald á tilfinningum sínum. Hann hrópar og kallar á hjálp — trúir því í fyllstu alvöru, að hann sé í samfélagi for- dæmdra, þar sem er grátur og gnístran tanna. Og þó er þetta aðeins bið- salur. Trúrækið og sómakært fólk bíður þarna eftir lúðurhljómi hins efsta dags. Við höfum litið inn í lík- hellinn undir klaustrinu utan við borgina Palermo, leitum þaðan út í sólskinið. Deplum augum móti birtunni — öndum léttar, sogum ofan 1 lungun ferskan andvara, sem streym- ir inn yfir ströndina utan af safírbláu hafinu. Það gellur við lúðurhljómur. Andartak hvarflar í hugann, að lokadagurinn mikli sé upp- runninn og englarnir kveðji til dómþinga. Við hlerum og lít- um ósjálfrátt um öxl: Rumska nú hinir dauðu inni í grafhýs- unum? Þar er allt undrahljótt og þungar hurðir ganga í gróp. Enda seg*a spádómarnir, að á dómsdegi komi mannsins son- ur í skýjum himinsins. En hér skín sól í heiði. Og lúðurhljómurinn barst frá bílhorni, sem þeytt var úti á þjóðveginum. — Við röltum á vit lífsins, virðum fyrir okkur svipmynd- ir: Á leikvelli eru falleg dökk- hærð börn. Þau brosa. Lífs- þráin er eðlislægur þáttur í brjóstinu og lifsgleðin ólgar í blóðinu. Unglingar, piltar og stúlkur, eru skammt frá veginum og ræða dægurmál. Þau eru fríð sýnum og mennileg. Einn pilt- urinn er hraðmælskur. Tungu- takið nægir honum þó ekki til túlkunar: látbragð og hreyf- ingar eiga að sannfæra áheyr- endur um ágæti ræðunnar. 1 vöngum unga fólksins er heitur roði og undir brúnum leiftra suðræn bjarmablik. Landslagið er milt og mjúk- legt. Mold sléttunnar er frjó- söm. í aldingörðum svigna trjágreinar undan ávöxtum. Runnarnir roðna af berjum. Akrarnir eru erjaðir — þar er sáð og lúð og uppskorið. Gul sítrónan grær og gull- eplið hlær í dökku laufinu. Handan við flatlendið rís fjallið Pellegrino, teygir sig inn í himininn, leyndardóms- fullt og töfrandi blátt. BDKHALDSVELIN F I X □ M A T Bókhaldsvél þessi frá Taylorix, sem fram- leidd er af Odhner-verksmitSjunum í Sví- þjócS hefur öðlazt miklar vinsældir og munu um næstu áramót vera 1 8 slíkar í notkun hjá kaupfélögunum. Bókhaldsvélina má einnig nota sem sam- lagningarvél. BOKHALDSVELINA MA EINNIG NOTA SEM S AM LAG NING ARVE L Verð ca. kr. 61.000,00 Upplýsingar gefur HAGDEILD KAUPFÉLAGANNA Sambandshúsinu, Reykjavík 26 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.