Samvinnan - 01.12.1970, Page 56
Frumdrög að sviðsmynd jyrir „Lér konung“ cftir Norman Bel Geddes.
nægt a3 skapa þau nánu tengsl milli
t- 'ksviðs og áhorfenda, sem leikhúsgestir
„ ru farnir að heimta.
Á fjórða áratug aldarinnar jukust vin-
sældir söngleiksins og hafa haldizt framá
þennan dag. Vafasamt er, að vinsældir
þessa skemmtiforms eigi eftir að dvína,
þareð magnið og litauðgin ljá því sér-
staka töfra, að ógleymdu því að hér er
um „lifandi" skemmtun að ræða, ekki
fyrirframgerða. Hér nýtur stóra leikhúsið
sín bezt — þvi stærra því betra.
En Okhlopkov var ekki eini leikstjór-
inn sem hafði áhuga á að breyta lögun
og staðsetningu leiksviðsins. Margir aðrir
voru farnir að biðja um, að sviðið yrði
flutt inní bygginguna miðja, þannig að
áhorfendur gætu setið allt umhverfis
það.
Árið 1914 sviðsetti Azubah Latham leik-
rit með þessum hætti í fimleikasal Kenn-
araháskólans í New York. Árið 1930 gerði
Norman Bel Geddes uppdrætti að hring-
laga leikhúsi, og tveimur árum síðar hóf
Glenn Hughes að sviðsetja sýningar í
sliku leikhúsi i Washington-háskóla.
Þessi nýi háttur hafði einnig sina van-
kanta. Sumum fannst hann vera of stíf-
ur og ósveigjanlegur; sumir vildu fá
skeifulaga svið einsog í forn-grísku leik-
húsunum; sumir vildu að leiksviðið kæmi
skáhallt niður einn vegg salarins; og enn
aðrir töldu að skemmtilegt gæti verið að
hagnýta hornin í salnum og búa til L-
laga svið. En um eitt voru allir sammála:
Litlu leikhúsin sköpuðu nánari tengsl
milli sviðs og áhorfenda. Þau áttu fram-
tíð fyrir sér.
Niðurstaðan varð sú, að árið 1947 voru
komin meira en 60 lítil leikhús um gervöll
Bandaríkin, sem störfuðu að staðaldri og
höfðu „meðfærileg" leiksvið, þ. e. a. s.
leiksvið sem hægt var að breyta í sam-
ræmi við verkefnin sem sviðsett voru.
VI.
Að þekkja vandamálið er ekki það sama
og að þekkja lausn vandamálsins. Samt
held ég að eftirfarandi tillaga sé verð
umhugsunar.
Þjóðleikhúsið hefur stórt, velbúið leik-
svið, einsog greinilega kom fram í „Fiðl-
aranum á þakinu“. Það á sér örugga
framtíð sem leikhús viðamikilla sýninga,
og þær ættu að geta veitt minniháttar
sýningum fjárhagslegan bakhjarl.
Leikfélag Reykjavíkur, sem hefur á að
skipa fámennari hópi hæfileikaríkra
leikenda, er án efa í fararbroddi að því er
varðar leikrænar framfarir, en það sem
háir félaginu er úrelt húsnæði. Iðnó er
vissulega meðal þeirra leikhúsa, sem
skapa náin tengsl milli sviðs og salar, og
óþvingað andrúmsloftið sem þar ríkir á
óefað talsverðan þátt i vinsældum þess.
(Og er ég þó ekki að gera litið úr vel-
skipulagðri verkefnaskránni eða hæfi-
leikunum sem birtast á sviðinu).
En þegar Leikfélagið fær nýja húsið
sitt, verður þá gert ráð fyrir „meðfæri-
legu“ tilraunasviði (auk hins hefðbundna
sviðs), þannig að hin nákomnu félags-
legu leikhúsverk hafi lífsvon?
Hér þarf ekki annað en sal sem rúmi
milli fimmtíu og hundrað áhorfendur og
veiti olnbogarúm til að leika og koma
fyrir ijósaútbúnaði. Reksturskostnaður
ætti ekki að þurfa að vera hár, þvi hér
þyrfti ekki að gera nein leiktjöld, en einu
vandamálin yrðu búningar og leikmunir,
sem yrðu að vera vel gerðir. Þennan sal
mætti nota til fundahalda, æfinga og
jafnvel myndiistarsýninga, þegar hann
væri ekki notaður til leiksýninga, og þess-
vegna ætti hann ekki að þurfa að vera
veruleg fjárhagsbyrði fyrir framsækið og
vakandi leikfélag.
Nýtízkulegar og framsýnar sviðsetn-
ingar eru ekki óþekktar á íslandi, þó þær
hafi verið harla fyrirferðarlitlar til þessa.
Fyrir hálfu öðru ári sviðsetti Eyvindur
Erlendsson „Frisir kalla“ þannig, að á-
horfendur sátu á þrjá vegu við leiksvæð-
inu. Fyrir ári heimsótti Óðinsleikhúsið
í Danmörku Leikfélag Reykjavikur, og
var þá leikið bæði fyrir framan áhorf-
endur og allt í kringum þá. Loks var svið-
setning Arnars Jónssonar á „Rjúkandi
ráði“ hjá Leikfélagi Akureyrar að meira
eða rninna leyti leikin á skeifulaga sviði.
Þetta nýja leikform er að mínu viti
vert fyllstu athygli nú, svo að við getum
horft fram til verulega framsækins leik-
húss hér á íslandi. „Væri það ekki reyn-
andi?“ Eigum við að losa okkur við vegg-
inn, sem í þrjár aldir hefur skilið leikar-
ana frá áhorfendum sínum? +
56