Samvinnan - 01.06.1980, Page 18

Samvinnan - 01.06.1980, Page 18
Mesta breyting frá því að sjálfsafgreiðsla var tekin upp Tölvuvœðing í verzlunum Búðartölvurnar koma frá Bandaríkjunum og hvergi nema þar eru þær enn sem komið er notaðar að verulegu marki. Gagnvart viðskiptavinum verð- ur aðalbreytingin sú, að þeir geta ekki séð á vörunni, hvað hún kostar. TOLVUVÆÐING versl- ananna verður um- bylting- níunda ára- tugarins í smásöluverslun, en jafnframt deiluefni þess tima. Samtímis því, að það hillir undir vinnuhagræð- ingu í smásöluversluninni og tækni til þess að hamla gegn komandi kostnaðar- aukningu, lítur starfsfólk verslana tölvuna sem alvar- lega ógnun við atvinnu- möguleika sína. Hvort neyt- endur fella sig við hugsan- lega afturför í verðmerk- ingum til þess að halda verðinu niðri liggur ekki ljóst fyrir. Ljóst er hins vegar, að tölvuvæðingin mun verða stærsta breyting í verslun- um, bæði fyrir viðskipta- vini og starfsfólk, frá því að sjálfsafgreiðslan var tekin upp eftir 1950. Tölvur eru í sjálfu sér ekki algjört nýmæli í verslunar- rekstri. í heildverslun hafa þær lengi verið notaðar, t.d. við stjórn birgðastöðva og innkaupa. Nýjungin er, að tölvan þrengir sér nú inn í búðirnar sjálfar. Með tölvu- kössunum og tölvustýrðum pöntunum er hægt að losna við mörg handunnin störf og spara peninga á þann hátt. Jafnframt aukast möguleikar á að tengja saman verslun, birgðastöð og söluaðila i þeim tilgangi að ná jafnara vörustreymi um kerfið. • Verðmiðar hverfa Mesti sparnaðurinn felst ef til vill í því, ef unnt reynist að losna við verð- merkingar. Meira en helm- ingur allrar vöru í smásölu- verslunum er nú merktur á handunninn hátt. Það er tímafrek og þess vegna dýr vinna. Hver verðmiði kost- ar milli fimm og tiu krón- ur. Að merkja öðru sinni kostar enn meira vegna tímaeyðslu, þar sem setja verður nýja verðmiðann yf- ir þann gamla. f kerfi með tölvukassa og verðskynjara kemur merkja- kerfi á umbúðunum i stað- inn fyrir verðmiða. Á hverri vörueiningu er kerfi af strikum, t.d. EAN merkja- kerfið. Þegar afgreiðslu- maðurinn les þetta merkja- kerfi með tölvustýrðum ljóspenna, finnur tölvan rétt verð í minninu og skrá- ir það á strimilinn ásamt ýmsum öðrum upplýsingum. Þegar breyta skal verði þarf ekki lengur að merkja hverja einingu. Það nægir að setja nýja verðið i skrána í minni kassans. Þar sem hægt er að tengja búðar- tölvuna við tölvu heildversl- unarinnar, þarf ekki einu sinni að gera verðbreyting- una i búðinni, heldur er hægt að gera hana á einni stjórnstöð. Gagnvart viðskiptavinum verður aðal breytingin sú, að þeir geta ekki séð á vör- unni, hvað hún kostar. Þeir sem vilja vita verðið, þurfa að lita á merki á hillukant- inum eða á töflum yfir verð af þeirri gerð, sem nú er, t.d. á mjólkurvörum. Nú þegar eru um 40% af þeim vörum, sem seldar eru i matvöruverslunum, ekki verðmerktar. Þar er t.d. um að ræða jafn umfangsmikl- ar vörutegundir og mjólk, egg, smjör, öl og gosdrykki, barnamat o. fl. Með tölvu- kössum og EAN merkjakerf- inu verður mögulegt fyrir verslanir að hætta verð- merkingu á öðrum 40% af vörunum. Afgangurinn, eða 20%, eru nýjar vörur, sem einnig verður að merkja í framtiðinni, m.a. vegna þess að þyngdin breytist. • Minna tap við kassann Samkvæmt könnun á tölvukössum, sem gerð var á smásöluversluninni hjá sænsku samvinnuhreyfing- unni, mundi niðurfelling verðmerkingar spara 0,6% af heildarsöluverðinu. Annar verulegur sparn- aður liggur i minna tapi við kassann. Hér er reiknað með 0,4% frekari hagnaði. Tapið við kassann stafar einkum af því að afgreiðslu- fólkið man gamla verðið og stimplar það inn, venjulega lægra verð, en einnig af því, 18

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.