Samvinnan - 01.06.1980, Blaðsíða 33

Samvinnan - 01.06.1980, Blaðsíða 33
Páll H. Jónsson Vandinn að finna nýjar leiðir frá grundvallarhugsjónunum Benedikt Gröndal Á biskup að spyrja hvort biblían sé úrelt þótt kristilegu lífemi hraki? Sé með orðinu „hugmyndafræði" í þessari spurn- ingu átt við þá hagfræðikenningu og lífsviðhorf sem eftir allnokkra þróun kristölluðust i hinum frægu reglum „vefaranna i Rochdale“, svara ég henni um- yrðalaust neitandi. Meginkjarni þeirra kenninga sem þá voru mótaðar stendur óhaggaður enn i dag. Sé þar þörf á breyttu orðalagi er það vegna breyttrar málskynjunar fólksins en ekki breyttra lögmála. Hitt er annað mál að stóraukin fræðsla um þessa svonefndu „hugmyndafræði“, sem sumir leyfa sér að nefna hugsjónir, er lifsnauðsyn. Langflestar þær blekkingar sem rugla dómgreind manna og vekja tortryggni á samvinnuhreyfingunni stafa af þekk- ingarleysi. Stundum á lífsviðhorfum sem eru allt önnur en þau sem samvinnumenn boða. Látlausar rökræður og fræðsla um samvinnuhreyfinguna, I grundvallarkenningar hennar og reynslu þjóðanna af samvinnustarfinu, eru af hinu góða. Það er einnig allt annað mál, að framkvæmd sam- vinnustefnunnar hlýtur að breytast með nýjum við- horfum og nýjum verkefnum. Vandi samvinnumanna liggur meðal annars í þvi að finna alltaf nýjar leiðir sem liggja frá hinum fastmótuðu grundvallarhug- sjónum, til verkefnanna sem við er að fást og erfið- leikanna sem þarf að yfirstíga á hverjum tíma. Því hrjáðari sem veröldin er af ótrúlega margs konar meinsemdum, krefst þessi framkvæmd meiri vand- virkni, umhugsunar, réttlætiskenndar og þekkingar. Það má vel vera að framkvæmd svonefndrar „hug- myndafræði“ samvinnuhreyfingarinnar þurfi endur- skoðunar við á einhverjum sviðum. En kjarni hug- sjónanna er ekki úreltur. 4 Samvinnuhugsjónin er i eðli sínu einföld og óum- breytanleg. Hún getur dugað jafnt sem lífsskoðun manns eða rauður þráður í stefnu stórfyrirtækja. Hinir fyrstu samvinnuhugsuðir, sem oft voru kallaðir draumóramenn, ætluðu að byggja á hugmyndum sínum nýtt þjóðfélag með nýrri skipan og reyndu það í sérstökum samvinnubyggðum. Pyrstu áratugi iðnbyltingarinnar um miðja siðustu öld voru gerðar margar tilraunir til að beita sam- vinnuhugsjóninni í viðskipta-, atvinnu- og menn- ingarlifi. Árangur varð misjafn, en frægastar urðu meginreglur vefaranna i Rochdale, sem Hallgrímur Kristinsson innleiddi hér á landi upp úr aldamótum. Rochdale reglurnar má að mestu nota sem mæli- kvarða á samvinnufélög, eins og gert er um allan heim. Starfsemi samvinnumanna er nú, á tækni- og tölvuöld, víða orðin að risafyrirtækjum. Fjarlægð stjórnenda og hinna einstöku félagsmanna hefur aukist, og oft þykir hugsjónin hafa hjaðnað. Þetta er aðlögunarvandi við nýjar og oft gerbreyttar að- stæður, og er það góðs viti, að hann skuli vera rædd- ur og áhugi sé á að bæta úr ágöllum, ef unnt er. Hins vegar er varhugavert að lita á málið ofanfrá og spyrja, hvort „hugmyndafræðin" sé ekki úrelt. Á biskup að spyrja, hvort biblían sé úrelt, þótt kristi- legu líferni hraki um sinn? Vandinn hefur alltaf verið og er, hvernig beita megi hugsjóninni við lausn á mismunandi vanda- málum i síbreytilegu þjóðfélagi. Samvinnueinkenni verða helst að vera einhver á allri starfsemi, svo að glöggur einstaklingur sjái mun á rekstrarkerfum. Að sjálfsögðu hlýtur að vera mikill munur á SÍS eða Samvinnutryggingum og hinni litlu sölubúð vefar- anna í Rochdale, rétt eins og munur er á þjóðmála- baráttu og kosningum nú á dögum og torgfundum borgaranna i Aþenu til forna. Ekki má gleyma mismunandi aðstæðum eftir lönd- um og héruðum. Það getur verið réttlætanlegt, eða jafnvel nauðsynlegt, að samvinnuhreyfingin ráðist í verkefni við íslenskar aðstæður, sem ekki þætti að- kallandi i Englandi eða ísrael. Þá geta einstakir hlekkir verið hlutafélög, en keðjan samt félagsleg uppbygging heilla atvinnugreina. Upphaflegur tilgangur íslenskra samvinnumanna var að taka örlög sín í eigin hendur, og sá verður vonandi tilgangur hreyfingarinnar um alla framtíð. ♦

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.