Samvinnan - 01.06.1980, Side 34

Samvinnan - 01.06.1980, Side 34
Smásaga eftir Honoré de Balzac Stúlkan frá Portillon STÚLKAN frá Portillon, sem seinna — eins og allir muna — giftist Taschereau, var þvottakona áður en hún gekk í hjóna- bandið og stundaði þetta starf i Portillon. Og ef þið þekkið ekki bæinn Tours, get ég sagt ykkur, að Por- tillon stendur við ána sömu megin og nokkru neðar en St. Cyr og jafnlangt frá brúnni, sem liggur yfir að dómkirkjunni, og Marmous- tier, eða með öðrum orðum að brúin er mitt á milli þessara nefndu bæja, Por- tillon og Marmoustier. Skil- urðu? Ágætt. — Nú, þarna hafði stúlkan þvottahús sitt, og þaðan gat hún geng- ið með þvottinn niður að ánni og skolað hann. Svo fór hún með þvottinn yfir ána til St. Martin, Chateau- neuf og fleiri bæja, þvi að þar bjuggu flestir viðskipta- vinir hennar. Rétt um Sankti-Hans- messu, sjö árum áður en hún gekk að eiga hinn ágæta Taschereau, öðlaðist hún þann þroska, sem nauð- synlegur var til þess að hægt væri að fara að elska hana. Og af þvi hún var snotur stelpa lofaði hún ungu mönnunum að elska sig án þess að gefa nokkr- um einum öðrum fremur undir fótinn. Þeir sátu þar til skiptis á bekknum undir glugganum hennar, sonur Rabelais, sem átti fimm báta i förum á ánni Loire, Marchandeau klæðskeri og Peccard gullsmiður, en hún dró þá alla saman á asna- eyrunum, því að hún var staðráðin í að fara í kirkju áður en hún byrjaði á nokkru þess háttar, og það sýnir, að hún var siðprúð stúlka áður en óhappið henti hana. Hún var ein af þessum ungu stúlkum, sem eru dálitið hræddar við byrjunina, en þegar þetta er einu sinni skeð, kæra þær sig kollóttar næsta sinn og ætíð þaðan í frá. Slíkt verður maður að líta á með skilningi. Ungur aðalsmaður tókeft- ir henni dag nokkurn, er hún var á leið yfir ána með ferjunni. Yndisþokkinn ljómaði af henni i hádeg- issólinni, og hann fór að spyrjast fyrir um hana, því hann langaði til að vita hver og hvaðan hún væri. Karl einn, sem hafði þann starfa að hreinsa allt rusl af árbakkanum, sagði honum að þetta væri „fallega stúlk- an frá Portillon", annars þvottakona að atvinnu og alþekkt heima fyrir glaðan hlátur og góða skynsemi. Og ungi maðurinn, sem var klæddur í kjól og hvítt og átti auk þess mikið af stroknu líni heima hjá sér, ákvað að láta hana njóta ofurlítilla viðskipta, og gaf sig á tal við hana í því skyni. Hún þakkaði honum innilega þá virðingu sem hann sýndi henni, þvi að þetta var herrann af Fou, kammerherra kóngsins sjálfs. Hún var svo glöð og hreykin af þessu, að hún gat tæplega opnað munn- inn án þess að nefna nafn hans. Hún talaði um hann i St. Martin og hún talaði um hann þegar hún kom aftur heim til sín. Hún tal- aði jafnvel meira um hann en sjálfan guð almáttugan, og var hún þó sannarlega trúuð og sannkristin stúlka. — Ja, sú er uppveðruð í forhlaupinu, hún verður varla svona borubrött, þeg- ar hún er búin að lenda í einhverju klandri, sagði gömul þvottakerling, sem varla gat heitið annað en ofurlitlar leifar af raun- verulegum kvenmanni. — er bandvitlaus i honum, og hann gómar hana áreiðan- lega, þessi flagari af Fou. í fyrsta sinn, sem stúlkan fór með þvottinn tók kamm- erherrann sjálfur á móti henni og kom henni svika- laust i skilning um það, að hún væri alveg óvenjulega falleg stúlka, og að það væri hreint ekki svo galið af henni að lita svona vel út. Hann ætlaði líka að borga henni vel i beinhörðum peningum, og hún hélt að hann ætlaði aðeins að taka budduna upp og borga og leit hógvær undan og sagði aðeins: — Það er bara lágmarks- verð. — Jæja, bara venjulegt gjald, sagði hann. En sumir álitu, að honum hefði hreint ekki gengið vel að fá hana til við sig, og það hefði tekið hann lang- an tima, og aðrir sögðu, að hann hefði komizt að því fullkeyptu, þvi að hún hefði hljóðað og barizt um og ver- ið snöktandi og fokreið, þegar hún kom út úr hús- inu — og þaðan fór hún beint til dómarans. En svo óheppilega vildi til að dóm- arinn var nýfarinn út, svo að hún settist niður til þess að biða eftir honum. Hún grét mikið og sagði við þjónustustúlku dómarans, að hún hefði verið beitt valdi og herrann af Fou hefði ekki greitt sér með öðru en ónotum og illsku, og að siðustu rænt frá sér því, sem kanúkinn sagði að væri mikilla peninga virði. Og ef einhvern tíma kæmi að því, að henni þætti nógu vænt um einhvem mann til þess að gera þetta fyrir hann, vildi hún líka hafa einhverja ánægju af þessu, en kammerherrann hefði alls ekki verið góður við hana. Hann hafði verið að bisa og bjástra með hana fram og aftur og meitt hana og móðgað á allan hátt, og þess vegna skuldaði hann henni nú þúsund dúkata eftir virðingu kanúkans. Svo kom dómarinn, og þegar hann sá þessa fallegu stúlku, ætlaði hann strax að fara að gamna sér smávegis við hana, en hún vísaði öllu gamni á bug og sagðist vera komin til þess að bera upp fyrir honum alvarlegt kæru- mál. Dómarinn fullvissaði hana um, að hann væri reiðubúinn að hengja svo að segja hvern sem væri fyr- ir hana, því að hann lang- aði til að gera henni ein- hvern mikinn greiða. En fallega stúlkan tók það skýrt fram, að hún færi alls ekki fram á það, að um- ræddur maður yrði tekinn af lifi, heldur aðeins að hann greiddi henni þúsund dúkata, þvi að hann hefði, satt bezt sagt, nauðgað henni. — A — ha, sagði dómar- inn og greip andann á lofti. — Þó það nú væri, þú ert sannarlega þess virði og rúmlega það, hjartað mitt. — Það getur verið, en ég læt mér það nú samt nægja og gef fúslega kvittun fyrir þúsund dúkötum, því að þá get ég lifað góðu lífi án þess að stunda þvotta, sagði hún. — Og sá, sem hefur rænt þessu dýrmæta hnossi, get- ur hann þá borgað? spurði dómarinn. — Já, það getur hann áreiðanlega. — Þá skal hann sannar- lega fá að gera það svika- laust. En hver er maðurinn? — Það er herrann af Fou. — Ja, þá horfir málið reyndar dálítið öðru vísi við, sagði dómarinn. 34

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.