Samvinnan - 01.08.1984, Side 10
Axel Gíslason,
svarar
spurningum
Samvinnunnar
Mér var gefin gimbur
fyrsta sumarið mitt í
sveitinni - og að
hausti stofnaði ég til
viðskipta við KNP á
Kópaskeri og lagði þar
inn afurðirnar.
# Mér var gefin gimbur
Hver voru fyrstu kynni þín af sam-
vinnuhreyfingunni?
Ég kynntist henni snemma. Faðir
minn starfaði lengi hjá Kaupfélagi
Eyfirðinga, var félagsmaður þar, og
hjá honum hafði ég því kynni af
ýmsum þáttum í samvinnustarfinu.
Aðallega kynntist ég þó á Akureyri
neytendahliðinni á starfseminni, og
sjálfur gerðist ég félagsmaður í KEA
fjórtán ára gamall, vegna þess að ég
vildi vera þátttakandi og meðeigandi í
kaupfélaginu.
Framleiðendahliðinni kynntist ég
fyrst í gegnum sumardvöl mína í
Hafrafellstungu. Bændurnir ætluðu
kaupfélaginu mikilvægt hlutverk og
treystu að miklu leyti á það með
hagkvæm innkaup og örugga afurða-
sölu. Starfsemi kaupfélagsins var afar
þýðingarmikill þáttur í lífsafkomunni
eins og reyndar er ennþá.
Mér var gefin gimbur fyrsta sumarið
mitt í sveitinni og hún fóðruð fyrir mig
mörg ár á eftir. Fegar ég átti svo
sjálfur sláturlömb að hausti, stofnaði
ég til viðskipta við KNÞ á Kópaskeri
og lagði þar inn afurðirnar.
Þannig snerti starfsemi samvinnufél-
aganna snemma mína eigin hagi, en
skilningur minn á þýðingu samvinnu-
starfsins í víðtækari merkingu og
mikilvægi þess um land allt kom þó
ekki fyrr en síðar.
• Erilsamt en ánægjulegt starf
Pú hefur nú um árabil verið fram-
kvœmdastjóri Skipadeildar Sambands-
ins á tímabili mikilla framfara og
velgengni. Hefur þetta ekki verið erfitt
starf?
Eftir að hafa starfað hjá Iðnaðardeild
á Akureyri í tvö ár, var ég í tæpt ári
aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Ice-
land Products Inc. í Harrisburg í
Bandaríkjunum og svo tvö ár fram-
kvæmdastjóri Skipulags- og fræðslu-
deildar Sambandsins. Ég tók svo við
Skipadeild í ársbyrjun 1977 og eru því
bráðum átta ár síðan.
Þetta hefur verið skemmtilegt starf,
oft erfitt jú, en ég hef átt því láni að
fagna að hafa mjög gott samstarfsfólk,
og í sameiningu höfum við tekist á við
verkefnin oftast með góðum árangri.
Ég setti mér það markmið að byggja
upp á vegum Skipadeildar traust og
hagkvæmt flutningakerfi, sem boðið
gæti upp á ódýra alhliða flutninga-
þjónustu í samræmi við kröfur mark-
aðarins. Við höfum nú aðlagað skipa-
kost, siglingaleiðir og starfshætti þess-
um markmiðum samtímis því sem
aflað hefur verið nýrra tækja og bún-
aðar, keyptir og leigðir gámar til
vöruflutninga og byggð upp framtíðar-
aðstaða við Holtabakka í Reykjavík,
en þar er starfrækt aðal vöruafgreiðslu-
miðstöð fyrir inn- og útflutning á
vegum Skipadeildar.
Samgöngur á sjó eru mikilvægur
þáttur í utanríkisverslun íslendinga,
og það er nauðsynlegt að viðhalda
eðlilegri samkeppni á þeim markaði
engu síður en í versluninni sjálfri.
Þess vegna er afar brýnt fyrir sam-
vinnuhreyfinguna að hafa yfir að ráða
hagkvæmu flutningakerfi til eigin af-
nota, jafnframt því sem þjónustan er
boðin á almennum markaði.
Þegar ég nú horfi til baka, er ég
nokkuð ánægður með árangurinn hjá
Skipadeild. Þetta hefur verið fjöl-
breytt og erilsamt en ánægjulegt starf,
og á þessu ári er vissum áfanga náð,
þegar við tökum í notkun nýtt og
fullkomið frysti- og gámaskip til að
annast flutninga til og frá Bandaríkj-
unum og fjölgum um leið viðkomu-
höfnum þar vestra til að bæta þjónustu
við viðskiptavinina.
En enda þótt við höfum nú náð
þeim áfanga sem stefnt var að undan-
farin ár hvað uppbyggingu flutninga-
kerfisins varðar, er þetta aðeins eitt
skref á þróunarbrautinni, og við erum
þegar farnir að velta fyrir okkur
þróuninni næstu árin og hvernig við
getum haldið áfram að bæta rekstur-
inn og tryggja betri þjónustu á kom-
andi árum.
Og hvað viltu segja um hið nýja starf
þitt sem aðstoðarforstjóri Sambands-
ins?
Þetta er nýtt starf og spennandi, og
það spannar yfir fjölbreytta starfsemi.
Ég hlakka til að takast á við þau
verkefni, sem framundan eru, ekki
síst þar sem ég hef þá bjargföstu trú,
að samvinnuhreyfingin geti með bættu
skipulagi og starfsháttum náð betri
árangri bæði á sviði félagsmála og
reksturs.
# Eftirminnilegur fundur
Aðalfundur Sambandsins í ár var að
margra dómi hinn átakamesti og sögu-
legasti um langt skeið. Varstu ánægður
með fundinn?
Þetta var eftirminnilegur fundur, sem
sýnir og sannar, að lýðræðið innan
samvinnuhreyfingarinnar er í fullu
gildi. Ég er að vísu þeirrar skoðunar,
að nauðsynlegt sé að aðlaga starfsemi ,
10